Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Qupperneq 27

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Qupperneq 27
tekið fram er stefnt að því að könnunin Ingibjörg Ásgeirsdóttir starfar á nái til allra iðjuþjálfa á íslandi. Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Margrét Sig- urðardóttir á vinnuheimilinu að Reykjalundi og Valerie Harris hjá Sjálfsbjörgu, iandsambandi fatlaðra. Tengsl milli færni við athafnir daglegs lífs (ADL) og sálrænna einkenna, af vefrænum toga hjá sjúklingum sem fengið hafa heilablóðfall Ilokaverkefni mínu er ég að rann- saka tengsl milli færni við athafnir daglegs lífs (ADL) og sálrænna einkenna af vefrænum toga hjá sjúk- lingum sem fengið hafa heilablóðfall. Ég spyr tveggja rannsóknarspuminga: Hvaða sálræn einkenni, af vefræn- um toga (neurobehavioral impair- ments) hafa áhrif á þætti er lúta að eigin umsjá, það er að klæðast og af- klæðast, snyrtingu, að komast um á dvalarstað og fá sér að borða? Er mim- ur á milli færni einstaklinga sem hlot- ið hafa heilablóðfall annars vegar í hægra heilahveli og hins vegar í vinstra heilahveli? Ég byrjaði að safna gögnum í rann- sóknina í janúar síðast liðnum og fyrir- huga að safna gögnum hjá að minnsta kosti 30 einstaklingum (körlum og konum), 50 ára og eldri sem hlotið hafa sjúkdómsgreininguna heilablóð- fall í hægra eða vinstra heilahveli. VÐ gagnasöfnunina nota ég færnimatið: The Árnadóttir OT-ADL Neuro- behavioral Evaluation (A-ONE) sem Guðrún Amadóttir iðjuþjálfi þróaði og gaf út 1988. Ég hef fengið iðjuþjálfa starfandi á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Landspítalanum í lið með mér við gagnasöfnunina. Slík gagnasöfnun er liður í hefðbundnu ADL-færnimati iðjuþjálfa á báðum þessum sjúkrahús- um. I rannsókninni eru einungis tveir kvarðar notaðir úr matinu. Þeir eru Functional Independence Scale og Neurobehavioral Specific Impairment Subscale. Ég vona að niðurstöðumar muni í fyrsta lagi auka skilning á færni og sjálfsbjargargetu sjúklinga við eigin umsjá og á þeim sálrænu ein- kennum, af vefrænum toga sem hafa áhrif á og koma jafnvel í veg fyrir að þeir nái fullri fæmi. í öðru lagi að þær auðveldi iðjuþjálfum að setja fram markvissa þjálfunaráætlun. Sigrún Garðarsdóttir starfar á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykja- víkur Tilraunaverkefni á vegum Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis: 15. september 1997- 15. september 1998 IÐTUPTÁLFUN í H6lLf)U6./eí>LU Anna S. Jónsdóttir, heilsugæslustöðin Sólvangi í Hafiiarfírði Guðrún Hafsteinsdóttir, heilsugæslustöðin í Mjódd Ingibjörg Pétursdóttir, tengiliður hópsins, Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur • Iðjuþjálfar verkefnisins halda fundi á fimmtudagsmorgnum á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Ahugasamir geta haft samband í síma 552 2400

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.