Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2009, Síða 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 6. tbl. 85. árg. 200926
Bókin skiptist í 13 kafla sem ritaðir eru af
7 hjúkrunarfræðingum sem allir hafa mikla
þekkingu og reynslu af öldrunarmálum.
Þeir eru Anna Birna Jensdóttir, Dagmar
Huld Matthíasdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Hjaltadóttir, Júlíana Sigurveig
Guðjónsdóttir, Margrét Gústafsdóttir
og Sigríður Sigurðardóttir. Fjallað
er um starfsemi hjúkrunarheimila á
greinargóðan hátt og gefin góð mynd
af þeirri þjónustu sem heimilin hafa upp
á að bjóða. Umfjöllun höfunda er á
faglegum nótum og bókin er skrifuð á
góðu máli og er auðveld aflestrar.
Innihald og efnistök kaflanna eru
mismunandi, í sumum þeirra eru dregnar
saman almennar staðreyndir um efnið
en aðrir byggjast á sögu þeirra sem
lifa og hrærast á hjúkrunarheimilum. Í
byrjun bókar er fróðleg samantekt
um sögu öldrunarstofnana á Íslandi.
Höfundar leggja áherslu á að búseta
á eigin heimili með viðeigandi þjónustu
teljist alltaf besti kosturinn til að viðhalda
mannlegri reisn. Gerð er góð grein
fyrir því hvaða þjónusta er í boði fyrir
aldraða áður en til stofnanavistar kemur,
sagt frá uppbyggingu og rekstrarformi
hjúkrunarheimila á Íslandi og hvernig staðið
er að fjármögnun og hver greiðsluþátttaka
einstaklinga er. Greinargóðar upplýsingar
eru um vistunarmatsferlið og hvert fólk
á að snúa sér ef það vill sækja um
búsetu á hjúkrunarheimili. Tíundaðir
eru ýmsir þættir sem hafa þarf í huga
við flutning á hjúkrunarheimili og góður
kafli er um undirbúning og aðlögun að
stofnanavistun.
Í bókinni er dregin upp sannfærandi
mynd af daglegu lífi á hjúkrunarheimilum.
Lýst er með dæmisögum hvernig
dagleg umönnun einstaklinga á
hjúkrunarheimilum fer fram og einnig
hvað það þýðir að vera vistaður á lokaðri
deild fyrir einstaklinga með heilabilun.
Einnig er bent á hvernig fjölskyldan getur
aðstoðað ástvin sinn og hvernig best sé
að haga heimsóknum.
Sumir kaflar í bókinni byggjast á
rannsóknarverkefnum um hjúkrunarheimili
sem höfundar hafa átt þátt í við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Þar
er fjallað um gæði lífs á hjúkrunarheimilum
og gerð grein fyrir rannsóknarniðurstöðum.
Þetta er mjög áhugaverð lesning sem á
erindi til allra hjúkrunarfræðinga. Að lokum
er fjallað um mannauð og gæði í þjónustu
á hjúkrunarheimilum.
Í lok bókarinnar er kynning á nokkrum
hjúkrunar og dvalarheimilum á Íslandi og
er þeim raðað eftir póstnúmerum. Fólki
gefst þannig kostur á að skoða og bera
saman kynningar á þessum heimilum og
gefa þau flest upp heimasíðu sína.
Ákvörðun um varanlega vistun á
hjúkrunar heimili getur oft verið kvíðvæn
leg fyrir einstaklinga og aðstandendur
þeirra. Dóttir aldraðs manns, sem var
skjól stæðingur minn, fannst tilhugsunin
um að pabbi sinn færi á hjúkrunarheimili
erfið. Hann var orðinn lasburða og gat
ekki búið lengur heima. Hún var mjög
óörugg þar sem hún hafði litla vitneskju
um hvaða hjúkrunarheimili stæðu honum
til boða og hvernig umsóknarferlið væri.
Eftir lestur bókarinnar var hún orðin mun
öruggari með að taka þessa ákvörðun
með honum.
Í lokin skal áréttað að mikill fengur er að
þessari bók fyrir alla þá sem þurfa að
leita sér upplýsinga um hjúkrunarheimili
og fyrir þá sem hafa áhuga á málefnum
aldraðra. Bókin á erindi til allra
heilbrigðisstarfsmanna.
Erla Einarsdóttir er hjúkrunarfræðingur með
diplómu í öldrunarhjúkrun og forstöðu
maður dagþjálfunar fyrir einstaklinga með
heilabilun í Drafnarhúsi.
Hjúkrunarheimili: Leiðbeiningar og
fróð leikur fyrir fjölskyldur á tímamótum.
Höfundur: Margrét Gústafsdóttir
(ritstj.) o.fl. Útgefandi: Háskólaútgáfan,
Reykjavík, 2008. ISBN: 978997954
8041. Bókin er 142 bls.
Á síðasta ári kom út bókin Hjúkrunarheimili, leið
beiningar og fróðleikur fyrir fjölskyldur á tímamótum.
Ritstjóri er dr. Margrét Gústafsdóttir og Háskóla útgáfan
gefur bókina út. Markmiðið með þessari útgáfu er
að gera grein fyrir þeim úrræðum sem öldruðum og
fjölskyldum þeirra standa til boða á þeim tímamótum
þegar þörf er á flutningi á hjúkrunarheimili.
Erla Einarsdóttir, erlaei@isl.is
BÓKARKYNNING
LEIÐBEININGAR OG FRÓÐLEIKUR UM HJÚKRUNARHEIMILI