Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 7

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 7
Skáldið á Bægisá sinnti lítið um stefnur og strauma í þjóðmálum hérlendis eða erlendis. Það vekur óneitanlega nokkra undrun hversu sinnulaus hann er um hræringar í menningarmálum á þeim árum þegar upplýsingartíminn er að hefjast hér á landi. í einkalífl hans skorti þó hvorki átök né sviptingar. Séra Jón var þó giaðiyndur og léttur á fæti, gamansamur og vinsæll. Besti vitnisburðurinn í því efni eru stökur hans sem margar urðu iandfleygar. Jón Þorláksson var prestssonur, fæddist í Selárdal fyrir 250 árum, 13. desember árið 1744. Um æsku hans er lítið vitað en svo mikið er víst að foreldrar hans fluttust úr Selárdal 1750 þegar faðir hans missti embættið fyrir embættisafglöp. Jón sest í Skálholtsskóla 1760 og lýkur þar námi þrem árum síðar með miklum sóma. Eftir það fékk hann starf hjá mesta valdamanni landsins, amtmanninum á Leirá, Magnúsi Gíslasyni. Tengdasonur hans og aðstoðarmaður var Ólafur Stefánsson faðir Magnúsar Stephensens sem mjög kemur við sögu séra Jóns Þorlákssonar. Þegar amtmannssetrið var flutt að Bessastöðum vorið 1766 fylgdi Jón húsbændum sínum, um haustið lést Magnús en Ólafur tók við amtmannsembætti. Eftir fjögur góð og lærdómsrík ár í þessari vist fór Jón að huga að brauði. Hann fékk Saurbæjarþingaprestakall í Dalaprófastsdæmi sumarið 1768. Tveim árum síðar missti hann kallið vegna barneignar með Jórunni Brynjólfs- dóttur í Fagradal en faðir stúlkunnar meinaði þeim að eigast. Tvö næstu árin er hann m.a. skrifari landlæknis og einnig kynnist hann séra Arna Þórarinssyni á Lambastöðum á Seltjarnarnesi, síðar Hólabiskupi, sem átti eftir að reynast honum vel. Jón fékk uppreisn æru að tveim árum liðnum og um haustið það ár, 1772, fékk hann Stað í Grunnavík. En aftur missti hann embætti ári síðar fyrir sömu sakir og fyrr, barneign með Jórunni öðru sinni. Nú fékk hann starf við hina nýju prentsmiðju í Hrappsey á Breiðafirði og vann þar að meira eða minna leyti uns hann fékk Bægisá fimmtán árum síðar, árið 1786, þegar honum var veitt uppreisn í annað sinn. Hann tók við kallinu á jólaföstu 1788 og hélt til æviloka 1819. Árið f 774 giftist hann Margréti Bogadóttur í Hrappsey Benediktssonar og hófu þau búskap í Galtardal á Fellsströnd þar sem þau bjuggu við lítið bú þar eð Jón var jafnframt aðstoðarmaður í prentsmiðjunni. Ekki var hjónabandið sérlega farsælt og svo fór að Margrét fylgdi bónda sínum ekki að Bægisá og sáust þau aldrei eflir að leiðir skildu haustið 1788 að því talið er en lögskiinaður mun aidrei hafa farið fram. í ljóði sem hann orti við skilnaðinn og í eríiijóði eftir konu sína er djúpur tregi. Margrét lést 1808. Fyrst eftir komuna að Bægisá hafði hann vinnufólk en fjórða vorið (1792) ræður hann til sín bústýru sem hafði ekki vistaskipti meðan liann lifði. Hún hét Helga Magnúsdóttir og var merk kona. Þótt séra Jón hafi alla tíð fengist við að yrkja og þýða ljóð og sálma, er það ekki fyrr en á Bægisá að hann fer að fást við þýðingar þeirra verka sem hafa haldið nafni hans á lofti til þessa. Fyrstu kvæðasöfn Jóns Þorlákssonar komu út í Hrappsey 1774 og 1783 og er þar að finna bæði frumort kvæði og þýðingar, m.a. eru þar birtar þýðingar hans á ljóðum eftir norska skáldið Christian Braunmann Tullin. á Jffiaepöiá - LESIÐ MILLI LÍNA 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.