Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 33

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 33
En af því að auðna yðar skikkaði svo til, að þér fengjuð tækifæri til þess að koma hingað í heimsókn, þá leyfum við yður að dveljast hér í tvær nætur. Ég er hræddur um að við verðum að senda yður heim aftur á morgun. “ Á skilnaðarstundinni var frú Chang mjög döpur Hún bað bróður sinn um að bera föður þeirra innilegustu kveðjur sínar. Chang Lao sagði líka að því miður gæti hann heldur ekki haft beint samband við íjölskyldu Weis. En hann fékk Yi-fang tuttugu gull-Li til marks um, að hann minntist tengdaföður síns. „Það er best að þér takið þetta líka,“ sagði hann við Yi-fang og rétti honum gamlan hatt. „Þegar þér þarfnist peninga þurfið þér aðeins að fara með þennan hatt til Wang Lao og biðja um tíu milljónir cash-a. Wang Lao er lyfsali sem býr í norðurhluta Yangchow-borgar. Yður mun veitast auðvelt að hafa uppi á honum og hann mun vita að hatturinn er minn.“ Með þetta fór Yi-fang. Chang Lao sendi aftur Kunlun-þrælinn til þess að íylgja honum að syðri rótum Tientan-íjallsins. Þar hneigði þrællinn sig og hvarf á brott. Yi-fang kom heim með gullið. Allir ættmenn Weis voru furðulostnir. Forvimin kom þeim til að spyrja ótal margs. Sumir héldu að Chang Lao væri æðri vera. Aðrir höfðu hann grunaðan um að vera illur andi. En engu skipti hver hann var, því gullið var hér, og það var ósvikið. Fimm eða sex árum síðar hafði Wei-ættin eytt öllu gullinu sem Chang Lao hafði gefið henni. Wei Shu velti fyrir sér hvort hann ætti að fara með gamla hattinn hans Chang Laos til Wang Laos og biðja um meira. Margir ættmenn hans efuðust um að Wang Lao væri til. „Jafnvel þó þú finnir manninn,“ sagði einn, „hvernig ætlarðu að sannfæra hann um að hatturinn sé frá Chang Lao? Öðru máli gegndi ef um einkabréf væri að ræða, en gamall hattur! Ég fæ ekki séð hvernig þú getur fært sönnur á þetta. Þú munt aðeins eyða tíma þínum og ferðafé til einskis.“ Wei Shu hallaðist fremur að þessari skoðun. Honurn fannst ekki að hann ætti að reiða sig á ókunnugan mann, sem hann vissi lítil deili á. En hvað annað var til ráða? Fjölskyldan var að því komin að svelta. „Það er þess virði að reyna,“ sagði annar ættingi. „Yangchow er ekki svo ýkja langt héðan. Þú þarft ekki að eyða miklu í ferðalagið, svo þetta yrði ekki til skaða, jafnvel þó Wang Lao trúi þér ekki. “ Og þar með lagði Wei Shu í ferðina. í Yangchow, á götu í norðurhluta borgarinnar, sá Wei Shu gamlan mann sitja í lítilli sölubúð og selja grasalyf. „Má ég spyrja yður heitis, herra minn?“ spurði Wei Shu. „Ættarnafn mitt er Wang. Fólk kallar mig Wang Lao.“ „Þér eruð þá rétti maðurinn," sagði Wei Shu og dró gamla hattinn hans Chang Laos upp úr vasa sínum. „Chang Lao sagði mér að sýna yður þetta og þér mynduð þá fá mér tíu milljónir casli-a.“ „Peningana get ég vel fengið yður. En hvernig getið þér sannað að hatturinn sé frá Chang Lao?“ „Getið þér ekki skoðað hann? Ég hef enga ástæðu til þess að koma alla leið frá Luho í þeim tilgangi að segja yður ósatt.“ Áður en Wang náði að svara lyfti ung dóttir hans dyratjaldinu og kom fram. „Ég get gengið úr skugga um þetta,“ sagði hún við föður sinn. „Þegar Chang Lao hafði viðdvöl í borginni kom hann ofl til mín í þeirn tilgangi að láta mig á Jfflagúiá, - LESIÐ MILLI LÍNA 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.