Þjóðmál - 01.12.2008, Page 50

Þjóðmál - 01.12.2008, Page 50
48 Þjóðmál VETUR 2008 meta virði austur-þýska marksins einungis til helmings á við vestur-þýska markið myndu skapast tækifæri fyrir fyrirtæki, framleiðslu og þjónustu í Austur-Þýskalandi og komið yrði í veg fyrir verðbólguþrýsting. Yfirleitt hefur almenningur í Þýskalandi alltaf tekið undir og stutt málstað þýska seðlabankans gegn stjórnmálamönnum, þ.e. almenningsálitið hefur verið bankanum mjög hagstætt. En svo varð ekki í þessu mikilvæga tilfelli. Hér unnu sjónarmið Helmuts Kohls kanslara og ríkis stjórnar hans sér miklu meiri hljómgrunn en varfærin stefna seðlabankans. Deutsche Bundesbank tapaði slagnum og allir þekkja hinar hörmulegu afleiðingar þessa. Atvinnuleysi og eymd varð allsráðandi í Austur-Þýskalandi og er það ennþá 18 árum seinna. Öll Evrópa leið undir gerræðislega háum stýrivöxtum þýska seðlabankans sem þurfti einmitt að kljást við þann verðbólguþrýsting sem hann varaði svo mjög við. Öll Evrópa saup seyðið af þessu því stjórnmálamenn þröngvuðu þýska seðlabankanum til að grípa til örþrifaráða. * Hinn 20. mars 1991 lýsti banka-stjóri Deutsche Bundesbank, Karl Otto Pöhl, yfir því að hugmyndir og fyrirætl anir ríkisstjórnarinnar um myntbandalag væru vitfirring og til vitnis um endalausa röð af mistökum Evrópusambandsins og sjón- hverfingar einar. Hann kvað ríkisstjórn Þýska- lands bera ábyrgð á því að hagkerfi fyrrver- andi Austur-Þýskalands lægi í rúst. Allar hug- myndir um myntbandalag væru ótímabærar og óraunhæfar. * Nokkrum árum seinna, eða í maí 1997, voru átök Kohls kanslara og þýska seðla bankans enn í brennidepli. Fjöl miðl ar sögðu að seðlabankinn hefði „kast að kjarn- orkusprengju“, svo alvarleg voru slagsmál- in, enda hélt seðlabankinn því fram að vegið væri að sjálfstæði hans. Hér var það gullforði Þýskalands og væntanlegt mynt bandalag og evran sem voru þrætueplið. Kansl arinn hafði krafist þess að seðlabankinn endurmæti bókfært verðmæti gullforða seðlabankans. Kanslarinn hélt því fram að gullforðinn væri meira virði en seðlabankinn taldi. Tilgangurinn var að láta ríkisfjármál Þýskalands líta betur út á pappírnum en bókhald seðlabankans sýndi. Það var nefnilega hætta á að Þýskaland kæmist ekki með í myntbandalagið vegna þess hve illa stödd ríkisfjármálin voru, þ.e.a.s að Þýskaland sjálft myndi ekki uppfylla inngönguskilyrðin inn í myntbandalagið. Ef svo yrði, þá myndi myntbandalagið sennilega hrynja áður en evran kæmist í umferð. En í sjálfu Þýskalandi voru kjósendur farnir að kenna áætlunum um sameiginlega mynt um hið háa atvinnuleysi í landinu. Í þessu efni treysti almenningur seðlabankanum betur en stjórnmálamönnum og studdi því bankann. „Þetta eru meiri og verri sjónhverfingar en átt hafa sér stað í hin- um löndunum sem ætla að taka upp evru,“ sagði í yfirlýsingu seðlabankans. * Í danska þinginu 22. mars 2000 var til um-ræðu fyrirspurn til efnahagsmála ráð herra Danmerkur, Marianne Jelved, frá þing- manninum og þjóðhagfræðingnum Frank Dahlgaard: „Getur ráðherrann staðfest að mynt Evrópusambandsins, euro, sé fyrst og fremst pólitískur gjaldmiðill og pólitískt verkefni? Ég spyr vegna þess að fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, Uffe Ellemann Jensen, skrifar í grein sinni í Berlingske Tidende hinn 15. mars 2000 að sameiginleg mynt Evrópusambandsins sér fyrst og fremst pólitískt verk og verkefni. Sama dag slær ESB-kommissarinn Pedro Solbes, sem er ábyrgur fyrir myntbandalaginu og evru, því föstu í Politiken að evran sé fyrst og fremst pólitískt verkefni. Að sögn Politiken segir kommissarinn að ef Danir kjósi að taka upp evru þá verði Danir og Danmörk að samhæfa hluta af efnahagslegri pólitík lands- ins, þar á meðal í skattamálum, með hinum

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.