Þjóðmál - 01.06.2007, Blaðsíða 75
Þjóðmál SUmAR 2007 73
nútíminn.hefur.af.sér.getið.og.þarf.ekki.annað.
en. að.benda. á. „fastasæti“.þjóða. í. evrópsku.
söngvakeppninni .. Jafnvel. í. svo. lítilfjörlegu.
máli. tryggja. stóru.þjóðirnar.hagsmuni. sína.
og.sýnileika ....
Ég. vil. sjá. flugvöllinn. í. Vatnsmýrinni.
festan. í. sessi .. Þjóð.
sem. ekki. getur. tryggt.
öllum. þegnum. sínum.
góðan.aðgang.að.stjórn-
sýslunni. getur. varla.
talist. til. fyrirmyndar ..
Lífríki.Vatnsmýrarinnar.
hefur. liðið. fyrir. það. að.
stjórnvöld,. bæði. ríki.
og.borg,.hafa.keypt. sér.
augnabliks. vinsældir.
með.úthlutun.skika.vítt.
og. dreift. um. mýrina ..
Einnig. hefur. verið.
kallað.eftir.að.samskonar.
spjöll. verði. unnin. á.
Lönguskerjum. og. eng-
inn. umhverfisvinur.
andmælti.því.í.nýafstað-
inni. kosningabaráttu ..
Flutningur.flugvallarins.
til.fjalla.er.ekki.lausn,.því.þar.er.allra.veðra.
von. sem,. að. sjálfsögðu,. skerðir. aðgengi.
landsbyggðarfólks.til.þjónustunnar ..Mér.er.
málið.skylt,.því.sem.unglingur.vann.ég.við.
gróðursetningu.skógar.sem.nú.hylur.land.
sem.leggja.á.undir.Háskólann.í.Reykjavík,.
Listaháskólinn.hefur.fengið.úthlutað.landi.
mófuglanna. og. Askja. byrgir. mér. sýn. að.
einum. fegursta.fjallahring. í.heimi ..Þessar.
árásir.yfirvalda.og.atvinnulausra.arkitekta.
rýra.lífsgæði.mín .
Miklar. framfarir. hafa. orðið. í.
menntamálum. á. síðustu. árum. og. þá.
helst. á. háskólastiginu ..Tíminn. einn. mun.
leiða. í. ljós. hvernig. til. hefur. tekist,. en.
engan. á. að. undra. þótt. gæði. kennslu. og.
árangur.eigi.eftir.að.skipa.skólum.í.flokka ..
Gæðastimpillinn. mun. sjást. í. ráðningum.
fyrirtækja.og.stofnana.á.þeim.nemendum.
sem. skólarnir. skila. út. í. atvinnulífið .. Ég.
myndi. vilja. sjá. breytingar. á. miðstiginu,.
þ .e ..framhaldsskólastiginu ..Það.þarf.að.gefa.
verk-.og.iðnmenntun.aukið.vægi ..Bóknám.
hefur. hingað. til. verið.
eina. viðurkennda.
námið. á. Íslandi,. svo.
jaðrar.við.snobb ..Setja.
má. spurningarmerki.
við. skólaskyldu. til. 16.
ára. aldurs .. Fleiri. og.
fleiri. unglingar. koma.
upp.úr.grunnskólanum.
án.nauðsynlegs.þroska.
til. að. sitja. innilokaðir.
langtímum. saman. og.
upplifa. það. því. sem.
nauðung .. Eru. drengir.
þar. í. meirihluta .. Al-
varleg. mistök. voru.
gerð. þegar. lög. voru.
sett. um. „skóla. fyrir.
alla“. í. kringum. 1990 ..
Engar. ráðstafanir.
voru.gerðar. til. að.búa.
framhaldsskólakennara. undir. að. taka. á.
móti.nemendum.sem.tæpast.voru.læsir.eða.
skrifandi .. Og. þótt. ástandið. hafi. batnað.
með. endalausum. styrktaraðgerðum. og.
námsráðgjöf.þá.er.nú.svo.komið.að.grunn-
skólinn.skilar.af.sér.börnum,.svo.illa.á.vegi.
stöddum,. að. fornámið. (núll. bekkirnir),.
sem.sett.var.inn.í.framhaldsskólakerfið,.þarf.
nú. á. fornáms-fornámsbekkjum.að.halda ..
Við.eigum.að.hætta.að.berja.hausnum.við.
stein ..Það.þarf.að.styrkja.samstarfið.milli.
atvinnulífs. og. skóla. svo.þessi. börn.hafi. í.
eitthvert.annað.hús.að.venda.en.„kassann“.
í. Bónus .. Ekkert. skólakerfi. ræður. við. að.
sinna. hverjum. og. einum. og. því. þarf. að.
fjölga.tækifærum.þessara.barna.með.því.að.
breikka.sviðið.og.tengja.það.atvinnulífinu ..
Ragnhildur.Kolka .