Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 20
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201016
Í mars og apríl 2009 bárust fréttir af
inflúensuveikindum fólks í Mexíkó
sem ágerðust fljótt með alvarlegum
afleiðingum. Á sama tíma greindist í
Bandaríkjunum ný tegund inflúensuveiru
úr hálsstrokssýnum sem tekin voru hjá
einstaklingum með einkenni sem bentu til
inflúensu og smit breiddist hratt út. Þessi
nýja gerð inflúensuveiru innihélt erfðaefni
úr inflúensuveirum manna, fugla og svína
og hafði aldrei áður greinst. Við þá
uppgötvun hófust aðgerðir Alþjóðaheil
brigðismálastofnunarinnar og þjóða
heims til að verjast nýrri inflúensuveiru.
Inflúensufaraldrar
Inflúensa er bráður öndunarfæra sjúk
dómur sem orsakast af inflúensuveirum
af veirufjölskyldunni Orthomyxoviridae.
Þessar veirur eru af tveimur megin
stofnum, A og B. Inflúensuveirur geta sýkt
menn og dýr en mismunandi undirstofnar
veiranna sýkja mismunandi dýrategundir
og verður oftast lítil blöndun á milli veira
ólíkra dýrategunda. Á hverju ári breyta
veirurnar sér lítillega og valda stöðugt
nýjum faröldrum sem leiða til umtalsverðra
veikindaforfalla meðal almennings
(510%) og dauðsfalla meðal aldraðra og
fólks með langvinna sjúkdóma. Sagan
hefur sýnt að með nokkuð reglulegu
millibili stökkbreytast veirurnar og valda
þá mun alvarlegri faröldrum sem geta
blossað upp á hvaða árstíma sem er,
fara um heiminn eins og eldur í sinu
og margfalt fleiri (3050%) smitast en í
árstíðabundnum inflúensufaraldri. Slíkir
heimsfaraldrar urðu fjórum sinnum á
SVÍNAINFLÚENSAN Á ÍSLANDI
Fyrir fjórum árum hófu sótt
varnalæknir og almanna
varnadeild ríkis lögreglustjóra
gerð viðbragðs áætlunar
vegna yfir vofandi heims
faraldurs inflúensu. Hvað
hefur gerst síðan?
Ása St. Atladóttir, asa@landlaeknir.is
síðustu öld, árin 1918, 1957, 1968
og 1977. Faraldurinn, sem varð 1918,
spánska veikin, var sá langalvarlegasti
og er talið að allt að 50 milljónir manna
hafi látist í heiminum af hans völdum.
Þar sem langt er liðið frá síðasta heims
faraldri hafa heilbrigðisyfirvöld um allan
heim á undan förnum árum, fyrir áeggjan
Alþjóða heilbrigðismálastofnunar innar,
búið sig undir nýjan heims faraldur. Vegna
við varandi fuglainflúensu í Asíu undan
farinn áratug voru mestar líkur taldar á
að nýr heimsfaraldur myndi eiga upptök
sín í Asíu og breiðast þaðan út um
heiminn. Sú hætta er áfram til staðar þó
heimsfaraldur svínainflúensunnar hafi átt
upptök í Ameríku og standi enn yfir.
Viðbúnaðaráætlanir vegna
inflúensufaraldra
Í febrúar 2006 ákvað ríkisstjórn Íslands
að markvisst yrði unnið að undirbúningi
viðbragða ef til heimsfaraldurs inflúensu
skyldi koma og var ráðist í að kaupa
birgðir inflúensulyfjanna Oseltamivír
(Tamiflu®) og Zanamivír (Relenza®),
kaupa hlífðarbúnað og tryggja kaup
á bóluefni. Tvær nýjar reglugerðir
voru samþykktar árið 2007 sem lutu
að styrkingu sóttvarna. Annars vegar
var ákveðið að skipta landinu í átta
sóttvarnaumdæmi og yfirlæknar tiltekinna
heilsugæslustöðva gerðir ábyrgir fyrir
sóttvörnum í sínu umdæmi undir stjórn
sóttvarnalæknis. Hins vegar var sett
reglugerð um sérfræðiþekkingu og
aðbúnað á Landspítala til að einangra og
veita meðferð vegna sýklaógna og um að
deildarskiptum sjúkrahúsum bæri skylda
til að sinna skipulögðu sýkingavarnastarfi.
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra hófust handa við
að gera viðbragðsáætlun en markmið
hennar eru að tryggja skipulögð og
samræmd viðbrögð allra aðila þegar til
inflúensufaraldurs kemur. Áætlunin styðst
við lög um almannavarnir nr. 94/1962 og
sóttvarnarlög nr. 19/1997 og til hennar
skal grípa þegar hluti þjóðarinnar verður
rúmfastur vegna veikinda og dauðsföll
verða umfram það sem búast má við í
venjulegu árferði og atvinnulíf í landinu
riðlast í ákveðinn tíma. Sóttvarnalæknir