Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Qupperneq 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Qupperneq 11
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 7 Tíðni lyfjamistaka Rannsóknir sýna að lyfjamistök eru algeng meðal hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum en erfitt er að meta tíðni þeirra af ýmsum ástæðum. Í mörgum tilfellum gerir enginn sér grein fyrir því að lyfjamistök hafi átt sér stað. Mörg af þeim lyfjamistökum, sem uppgötvast, eru ekki skráð auk þess sem erfitt er að bera saman rannsóknir þar sem notaðar eru mismunandi rannsóknaraðferðir og lyfjamistök eru skilgreind á mismunandi hátt. Sem dæmi má nefna að það að gefa sjúklingi lyf á röngum tíma er ekki alltaf skilgreint sem lyfjamistök. Niðurstöður rannsókna benda til þess að 65­78% hjúkrunarfræðinga á sjúkra­ húsum telji sig einhvern tímann á starfs­ ferlinum hafa gert lyfjamistök (Mrayyan o.fl., 2007; Ulanimo o.fl., 2007). Í rannsókn, þar sem fylgst var með hjúkrunarfræðingum á vettvangi við tiltekt og gjöf 3.216 lyfjaskammta á 64 deildum, kom í ljós að mistök voru gerð í 19% tilfella. Af þessum niðurstöðum má gera ráð fyrir að sjúklingur, sem fær tíu skammta af lyfjum á dag, verði tvisvar á dag fórnarlamb lyfjamistaka (Barker o.fl., 2002). Rannsóknir, sem gerðar hafa verið með beinni athugun á vettvangi, sýna tíð lyfjamistök þegar lyf eru gefin í æð, eða í 18­73% tilfella (Fahimi o.fl., 2008; Han o.fl., 2005; Taxis og Barber, 2003, 2004). Mistök eru algengari þar sem tilgangur athugunar var ekki þekktur meðal þátttakenda. Í ljósi þess má ætla að hjúkrunarfræðingarnir, sem vissu um tilgang rannsóknarinnar, hafi gert færri mistök þar sem þeir vissu hvers vegna fylgst var með þeim. Tíðni lyfjamistaka á Íslandi Niðurstöður tveggja rannsókna, sem gerðar voru á lyfjamistökum hjúkrunarfræðinga á Íslandi, sýna að yfir helmingur hjúkrunarfræðinga telja sig hafa gert lyfjamistök á starfsferlinum. Í þessum rannsóknum var notaður sami spurningalistinn þar sem m.a. var spurt hvort hjúkrunarfræðingur hefði einhvern tímann átt aðild að lyfjamistökum. Í rannsókn, sem gerð var á Landspítala­ háskólasjúkrahúsi (LSH), töldu 78% þátttakenda sig hafa átt aðild að lyfjamistökum á starfsferlinum og taldi helmingur þeirra sig hafa átt aðild að lyfjamistökum síðastliðna 12 mánuði (Anna White o.fl., 2006). Í rannsókn, sem gerð var á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA), töldu 65% hjúkrunarfræðinga sig hafa átt aðild að lyfjamistökum á starfsferlinum og þriðjungur þeirra taldi sig hafa átt aðild að lyfjamistökum síðastliðna 12 mánuði (Ann­Merethe Jakobsen o.fl., 2003). Þess ber að geta að það að gefa sjúklingi lyf á röngum tíma var talið til lyfjamistaka í rannsókninni sem gerð var á FSA en ekki í rannsókninni sem gerð var á LSH. Tegundir lyfjamistaka Rangur skammtur er algengasta tegund lyfjamistaka eða 31­36% mistakanna. Næstalgengustu lyfjamistökin eru þegar hjúkrunarfræðingar gefa sjúklingum rangt lyf eða 16­31% allra mistaka. Talið er að í 20% tilfella, þar sem rangt lyf var gefið, hafi ástæðan verið sú að læknir hafði stöðvað lyfjagjöfina en hjúkrunarfræðingur ekki orðið var við það og gefið lyfið (Sheu o.fl., 2008). Önnur algeng ástæða þess að rangt lyf var gefið var talin vera að hjúkrunarfræðingar rugli saman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.