Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 4

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 4
Nú er hið frábæra 30 ára afmælis­ár að baki og við taka önnur en ekki síður spennandi verk­ efni. Allir atburðir afmælisársins tókust einstaklega vel, jafnt málþingin, sem skólatöskudagar og ekki síst ráðstefnan í lok september og glæsilegt afmælishóf í lok hennar. Þetta er einungis mögu­ legt vegna þess að félagsmenn eru virk­ ir, bæði í að leggja fram efni sem og að mæta og taka þátt í umræðum. Á ráð­ stefnunni kynntu 80 iðjuþjálfar rann­ sóknir sínar í erindum og á veggspjöld­ um. Geri aðrir betur í 189 manna félagi. Mikil aukning hefur orðið á um­ fjöllun um iðjuþjálfun í fjölmiðlum á undanförnum árum. Þetta hefur skilað sér í því að fleiri landsmenn þekkja hvaða þjónustu iðjuþjálfar veita og eftirspurn eftir þjónustu iðjuþjálfa hefur aukist. Fólk sem þarf á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda, gerir kröf­ ur um að njóta þjónustu iðjuþjálfa en því miður er hún allt of víða af skorn­ um skammti. Dæmi um það er mann­ ekla á stærsta sjúkrahúsi landsins, Land­ spítala Háskólasjúkrahúsi en þar eru yfir 10 stöður iðjuþjálfa ómannaðar á öllum deildum spítalans. Sömu sögu er að segja um fleiri staði. Það liggur í augum uppi að eftirspurn eftir þjónustu iðjuþjálfa er langt umfram framboð. Þrátt fyrir mikla fjölgun í stéttinni með tilkomu námsbrautar í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri næst engan veg­ inn að anna eftirspurn, útskrifa þarf fleiri iðjuþjálfa. Á nýafstöðnum aðal­ fundi Iðjuþjálfafélags Íslands kynnti Guðrún Pálmadóttir, brautarstjóri í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri, tölulegar upplýsingar um nýliðun í stéttinni út frá brautskráningu frá Háskólanum á Akureyri. Frá fyrstu brautskráningu árið 2001 hafa 77 iðju­ þjálfar lokið námi eða að meðaltali 13 á ári. Fyrstu 2 árin sem námsbrautin starfaði var fjöldatakmörkun 15 nem­ endur á ári en 1999 var hún hækkuð í 18. Af þessum 77 iðjuþjálfum sem hafa brautskráðst eru 33 búsettir á Norður­ landi eystra, 30 á höfuðborgarsvæðinu, 8 annars staðar á landinu og 6 eru búsettir utan Íslands. Alltaf eru ein­ hverjir sem kjósa að fara til náms í öðrum löndum og teljast þeir ekki með í þessum upplýsingum. Það er vissulega ánægjulegt hversu margir iðjuþjálfar eru starfandi á lands­ byggðinni og hversu fjölbreyttum störf­ um þeir sinna en það er nokkurt áhyggjuefni ef ekki tekst að manna stöður á höfðuðborgarsvæðinu. Það er ljóst að eitt af megin verk­ efnum stjórnar IÞÍ á næstu árum er að stuðla að fjölgun í stéttinni með öllum ráðum. Það er einnig mikilvægt að allir félagsmenn taki þátt í að kynna iðjuþjálfun ekki síst fyrir ungu fólki sem er að velta fyrir sér framtíðarstarfi. Haldið áfram því góða starfi sem þið vinnið því þau eru mikilvægsta auglýs­ ingin. Lilja Ingvarsson formaður Pistill formanns ■ Lilja Ingvarsson, formaður IÞÍ  • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.