Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 14

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 14
1 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 Elín Hönn Einarsdóttir er iðjuþjálfi sem starfar nú hjá Alcoa á Reyðarfirði en hún hóf störf þar þann 1. september 2006. Elín lærði iðjuþjálfun í Árósum í Danmörku, útskrifaðist þaðan 1994 og lauk BSc. frá Háskólanum á Akur­ eyri í júní 2006. Elín Hrönn hefur starfað við iðjuþjálfun hér á landi, í Danmörku og Bandaríkjunum. Við í ritnefnd höfðum áhuga á að fræðast um störf hennar sem iðjuþjálfa í stóriðjufyrirtæki sem þessu, þar sem um er að ræða nýjan starfsvettvang stéttarinnar hér á landi. Við fengum Elínu Hrönn til að svara nokkrum spurningum sem brunnu á okkur tengdum nýja starfinu. Reynsla og fyrri störf Fyrsta vinnan sem iðjuþjálfi var í Álaborg á Sygehus Syd á lyfja­ og bæklunardeild þar sem ég var í tæpt ár. Frá 1996­99 vann ég sem iðjuþjálfi hjá Hjálpartækjamiðstöð (HTM) og var aðallega í því að samþykkja umsóknir, fór í heimilisathuganir og var með ráðgjöf varðandi val á hjálpartækjum, á þessum tíma sem ég vann hjá HTM tók ég þátt í einu þróunarverkefni, RIT, sem er norrænn upplýsingarvefur um hönnun og upp­ setning á vinnuaðstöðu, þetta eru hag­ nýtar upplýsingar um rétta hönnun og uppsetningu á vinnuaðstöðu við tölvur fyrir gigtarsjúklinga. Einnig gerði ég könnun um notkun og umhirðu hjóla­ stóla hjá eldri borgurum á dvalar­ heimilum aldraðra á höfuðborgarsvæð­ inu. Árið 1999 flutti ég ásamt fjölskyldunni aftur til Árósa í Dan­ mörku og var ætlunin að vera þar í eitt ár en dvölin lengdist í þrjú ár. Vegna þessa sótti ég einungis um afleysingar­ stöður þar sem markmið okkar var alltaf að fara aftur til Íslands. Í þessi ár vann ég sem Sagsbehandlende ergoter­ apeut á þremur mismunandi lokal­ centrum. Þetta var svipað þeirri vinnu sem ég vann hjá HTM, jafnframt vann ég sem tengiliður við spítalana þegar aldraðir og aðrir hreyfihamlaðir ein­ staklingar voru að útskrifast heim, þá aðallega ef það þurfti einhver hjálpar­ tæki eða breytingar á heimili. Árið 2002, fékk eiginmaður minn vinnu í Bandaríkjunum (Boston), en þar bjugg­ um við í fjögur ár. Ég var heima fyrstu tvö árin en seinni tvö árin vann ég í grunnskóla sem iðjuþjálfi í sjálfboða­ starfi. Ég var þar tvo daga vikunnar og vann með hóp barna með sérþarfir á aldrinum 5­11 ára. Markmið skólanna var að börnin þyrftu ekki að sækja sér­ þjónustu utan skóla og í lok skóladags væru þau komin í frí eins og hinir skólafélagar þeirra. Þetta var skemmti­ leg reynsla og ólíkt öðru sem ég hafði komist í kynni við. Hvað varð til þess að þú réðst þig til Alcoa og hvert er þitt hlutverk? Það var haft samband við eiginmann minn og honum var boðið að sækja um stöðu innan Alcoa. Í framhaldi af því ákvað ég að sækja um stöðu iðju­ þjálfa. Þarna bauðst tækifæri til að prufa eitthvað nýtt í nýju starfsumhverfi þ.e.a.s. utan heilsugeirans. Allt sem snýr að mínu starfi tengist öryggismálum á einn eða annan hátt og mitt hlutverk verður að m.a. sjá um vinnuvistfræðihlutann, sjá um alla fræðslu er snertir vinnuvistfræði, jafn­ framt verður hluti af starfi mínu að starfa sem „Industrial Hygienist“ þar sem ég mun m.a. þurfa að samþykkja öll efni sem koma inn á svæðið, fylgjast með mengun í andrúmsloftinu, hávaða­ mengun og sjá til þess að starfsfólk sem vinnur við framleiðsluna fái réttan öryggisbúnað s.s. heyrnarhlífar og öndunargrímur. Þá þarf ég að notast við þar til gerð mælitæki og safna upplýsingum frá þeim og senda áfram á innra net Alcoa. Annars er ekki búið að skilgreina starf mitt ennþá en þetta er eitt af mörgu sem ég þarf að sinna núna og í framtíðinni. Hvað nákvæm­ lega verður get ég ekki svarað að svo stöddu. Ramminn er langt frá því að vera fastmótaður, þetta er eins og að fá leirklump í hendurnar og svo mótar þú leirinn eins og þú vilt hafa hann. Hvernig hefur starfið farið á stað? Á undirbúningsferlinu hef ég verið Viðtal við Elínu Hrönn iðjuþjálfa hjá Alcoa ■ Elín Hrönn Einarsdóttir BSc. í iðjuþjálfun Industrial Hygiene and Ergonomics manager Umhverfis-heilsu og öryggissvið / EHS Alcoa Fjarðaál

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.