Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 14

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 14
14 en einnig því að byrja að vinna sem iðjuþjálfar. Strax eftir útskrift héldu fjórar til stórborgarinnar, en það voru Antonía, Ásbjörg, Erla og Svanhildur. Hinar átta dreifðu sér aðeins um Norðurland. Bergdís og Sigríður fóru til Húsavíkur þar sem Sigríður tók þátt í uppbyggingu starfsbrautar við Framhaldsskólann á Húsavík, sem er námstilboð fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðað nám. Bergdís var í tveimur hlutastörfum, annars vegar hjá Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga og hins vegar í Borgarhólsskóla. Álfheiður hélt til Grenivíkur þar sem hún var í þremur hlutastörfum; í leikskólanum, skólanum og á dvalarheimilinu. Í skólanum og leikskólanum vann hún með börnum sem þurftu iðjuþjálfun en á dvalarheimilinu var aðaláherslan lögð á virkni, hreyfingu og hjálpartækjamál. Einnig kenndi Álfheiður nokkra tíma á viku í grunnskólanum. Valdís hélt til Dalvíkur þar sem hún er ennþá en hún hefur unnið við Dalvíkurskóla frá útskrift. Auk þess hefur hún tekið að sér skjólstæðinga og verkefni á leikskólunum í sveitarfélaginu og sinnt verkefnum í Árskógarskóla eftir þörfum hverju sinni. Dalvík hefur nýtt sér vel að hafa iðjuþjálfa og hefur Valdís verið fengin til að taka út vinnuaðstöðu starfsmanna bæjarskrifstofunnar, auk þess að panta hjálpartæki fyrir Dalbæ­ dvalarheimili aldraðra. Valdís er einnig virk í sveitastjórnarmálum, hefur verið formaður félagsmálaráðs í átta ár og situr í byggðaráði og sveitarstjórn á núverandi kjörtímabili. Í dag eru sjö úr hópnum sem vinna á Akureyri. Bergdís vinnur á Búsetudeild Akureyrarbæjar, áður var hún forstöðumaður í skóla- og sumarvistun fyrir fötluð börn á aldrinum 10­16 ára. Hún skipti um vettvang innan Akureyrarbæjar fyrir nokkrum árum og er núna forstöðumaður í heimaþjónustunni. Starfið hennar einkennist af samskiptum við þjónustuþega og aðstandendur þeirra, starfsfólk og samstarfsstofnanir. Sem forstöðumaður í heimaþjónustu hjá Akureyrarbæ ber Bergdís ábyrgð á og sér um daglega stjórn og rekstur þjónustunnar. Um er að ræða þjónustu við fólk á öllum aldri með skerta færni, þótt stærstur hluti skjólstæðinga séu aldraðir. Markmið þjónustunnar er alltaf að efla fólk til sjálfshjálpar og að skapa fólki aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á sínu heimili. Jóhanna vinnur einnig hjá Búsetudeild Akureyrarbæjar við heilsueflandi heimsóknir til 75 ára og eldri og við verkefni sem heitir Ráðgjöfin heim. Heilsueflandi heimsóknir eru fyrirbyggjandi heilsuvernd fyrir íbúa 75 ára og eldri sem búa heima og njóta ekki heimahjúkrunar. Í Ráðgjöfinni heim er aftur á móti markmið þjónustunnar að veita faglega ráðgjöf og leiðbeiningar til einstaklinga með fötlun af margvíslegum toga, sem hafa þörf fyrir aðstoð og stuðning til að takast á við ýmis verkefni daglegs lífs. Áður tók Jóhanna þátt í að byggja upp þjónustu iðjuþjálfa við Öldrunarheimili Akureyrar, vann í leikskóla og síðar Oddeyrarskóla á Akureyri þar sem hún sérhæfði sig í málefnum daufblindra, sinnti ráðgjöf og var með mál­ og hreyfiþjálfun í yngstu bekkjunum. Inga Dís byrjaði eftir útskrift að vinna á Dagdeild geðdeildar FSA og skipti svo yfir á Búsetudeild Akureyrarbæjar og vann við verkefnið Ráðgjöfin heim. Í dag vinnur hún við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA). Inga Dís er að kenna á starfsbraut, sem er sérnámsbraut í VMA. Þar kennir hún fög eins og lífsleikni, heimilisfræði, tölvur, starfsfræðslu og ADL, hvort sem er í einstaklingskennslu eða bekkjarkennslu. Margar höfum við tengst Kristnesi í Eyjafirði, sem er endurhæfingarstaður Sjúkrahússins á Akureyri, á einn eða annan hátt. Bæði Harpa og Hafdís hafa tekið að sér að vera forstöðuiðjuþjálfi á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Harpa hefur unnið á Endurhæfingardeildinni á Kristnesi þar sem viðfangsefnin eru af ýmsum toga, allt frá fræðslu upp í að hjálpa fólki að verða sjálfbjarga. Hafdís hefur að mestu starfað á endurhæfingardeildum FSA á Kristnesi og líka sem verkefnastjóri útibús Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ á Kristnesi. Þá starfaði hún í tvö ár sem iðjuþjálfi í heilsueflandi heimsóknum á vegum Búsetudeildar Akureyrarbæjar og tók á þeim tíma þátt í starfshópi sem var skipaður og fékk það verkefni að skapa jákvæða umræðu um málefni eldri borgara. Úr varð verkefnið Litríkt vor sem tókst afskaplega vel. Hafdís hefur einnig tekið að sér störf í nefndum á vegum Eyjafjarðarsveitar, þar sem hún býr, lengst af sem fulltrúi í félagsmálanefnd. Álfheiður hefur unnið á ýmsum deildum Sjúkrahúss Akureyrar, s.s. Öldrunarlækningadeild, Hjúkrunardeildinni SEL, Geðdeild og er núna á Endurhæfingar deildinni á Kristnesi. Álfheiður var einnig verkefnisstjóri Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands á Kristnesi fyrstu þrjú árin eftir að sú starfsemi hóf göngu sína norðan heiða. Sigríður starfar sem iðjuþjálfi í Þelamerkurskóla í Hörgársveit. Hún vinnur þar með nemendum á öllum aldri með aðaláherslu á sálfélagslega þætti. Markmið iðjuþjálfunarinnar er m.a. að virkja nemendur til þátttöku og leyfa áhuga og styrkleika hvers og eins að njóta sín. Auk þess að veita Við erum einnig sérlega duglegar að búa til glæsileg börn. Iðjusystur ásamt mökum fyrir utan Hvalasafnið á Húsavík á 10 ára útskriftarafmælinu okkar

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.