Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 3

Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 3
Samtíminn er tími mikillar gerjunar og þar er kennarastarfið ekki undanskilið. Kennarar standa frammi fyrir flóknum spurning- um sem varða inntak starfsins og viðhorf samfélagsins til þeirra sjálfra við breyttar aðstæður á breyttum tímum. Spurningum á borð við: Eigum við að ala upp nemendur okkar, er ekki nóg að kenna þeim? Hvaða áhrif viljum við hafa á þróun skólastarfs í landinu og viðhorf til menntunar? Hvað leggjum við sjálf áherslu á og hvaða leiðir veljum við að því marki? Orðið kennari er fallegt og hljómmikið orð. Orð sem vekur þakklæti og virðingu í hugum þeirra sem höfðu góða kennara sem bakhjarla í uppvext- inum. En einnig orð sem gerir kröfur til handhafa sinna. Að viðhalda og efla þessa virðingu er samt sem áður ekkert einkaverkefni kennara sem halda áfram hér eftir sem hingað til að kenna af alúð og umhyggju fyrir skjólstæðingum sínum. Nei, ábyrgðin á virðingu fyrir kennurum og þeirri menntun sem þeir veita hvílir jafnt á þeim sjálfum og öðrum landsmönn- um en ekki síst á ráðamönnum og fjölmiðlum. Það eru því hagsmunir kennara sem og annarra að fylgjast með athöfnum ráðamanna og fjöl- miðla og veita þeim aðhald með einörðum og málefnalegum afskiptum. Í Skólavörðunni verður lagt sitthvað af mörkum í þessa veru, gagnrýnt það sem slæmt er, því hrósað sem gott er og síðast en ekki síst: Hvatt til þess á alla lund að rödd kennara sjálfra verði sú stefnumarkandi rödd í menntamálum á Íslandi sem fólk hlustar eftir. Skólavarðan, málgagn Kennarasambands Íslands, er alfarið kennara- megin í tilverunni og þar með nemendamegin eins og kennarar vita manna best því að hagsmunir þessara hópa fara saman. Aðstandendur þessa nýja tímarits Kennarasambandsins sem nú lítur dagsins ljós eru allir félagar KÍ. Hver og einn hefur tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast í blaðinu. Ritstjórnarstefna Skólavörðunnar Markmið blaðsins er að vera lifandi, öflugur og lýðræðislegur miðill fé- lagsmanna Kennarasambandsins þar sem leitast er við að styðja og efla fé- lagsmenn, starf þeirra og faglegan þroska á alla lund. Í því skyni eru farnar eftirfarandi leiðir: Blaðið lýtur forsendum almennrar vandaðrar blaða- mennsku. Ritstjórn tekur ákvarðanir um meginefni blaðsins í umboði stjórnar en ábyrgðarmaður og ritstjóri bera að öðru leyti ábyrgð á efni þess að undanskildum aðsendum greinum sem birtar eru undir nafni. Áhersla er lögð á fjölbreytt efni, fréttir, pistla og lengri greinar um fag- mál, kjaramál og önnur hagsmunamál í víðu samhengi. Leitast er við að birta sem flest sjónarhorn, vekja umræðu um allt er viðkemur kennara- starfi og menntun og hvetja til skoðanaskipta. Blaðið er auk þess miðill þar sem upplýsingum um Kennarasambandið, aðildarfélög þess og önnur málefni sem varða hagsmuni félagsmanna er komið á framfæri. Jafnframt er leitast við að upplýsa um og útskýra breytingar af ýmsum toga sem hafa áhrif á kjör félagsmanna, svo sem vegna laga og reglugerða, almenns efna- hags- og atvinnuástands í samfélaginu, ákvarðana sem teknar eru innan Kennarasambandsins, stjórnskipulegra þátta sem tengjast ríki og sveitarfé- lögum og fjölþjóðlegra samninga og tilskipana Evrópusambandsins. Kristín Elfa Guðnadóttir Skólavarðan janúar 2001 Leiðar i 4 Efni Greinar Ekki á færi einnar manneskju að laga 7 Dr. Rosemary Tannock kom hingað til lands í tilefni af ráðstefnunni Skörun námsvanda við erfiðleika í hegðun og athygli og önnur geðheilbrigðisvanda- mál barna sem haldin var í nóvember sl. Gífurlegar breytingar 8 Í tengslum við viðtalið við dr. Tannock lýsa tveir kennarar á unglingastigi reynslu sinni af agastarfi í gegnum árin. Lífæð samskiptanna 12 Enginn efast um mikilvægi trúnaðarmannakerfisins. Steinn Ólafsson lýsir reynslu sinni af trúnaðar- mannsstarfinu og Valgeir Gestsson segir frá uppbyggingu þess. Klappað, stigið og stappað 14 Tónmennt í tveim dönskum grunnskólum. Guð- mundur Óli Sigurgeirsson sótti Dani heim og kynntist tónmenntastarfi hjá þeim. Menningarmiðlun sem virkar 16 Garðaskóli er einn þeirra skóla sem hafa verið ötulir í erlendu samstarfi. Sagt frá þátttöku í Comeniusar- áætluninni og með fylgja ítarlegar upplýsingar um Sókratesarstyrki. Fréttir og smáefni 5,11,14,15,18,19,20,21 Meðal annars sagt frá námstefnu Skólastjórafélags Íslands (14), Degi íslenskrar tungu í Korpuskóla (19), og peningum sem gufuðu upp (21). Fastir liðir Formannspistill 3 Að þessu sinni skrifar Eiríkur Jónsson en formenn félaga Kennarasambandsins munu skrifa pistlana til skiptis. Kaup og kjör 6,11,20 Hannes Þorsteinsson skrifar um veikindaréttinn og Helgi E. Helgason um fæðingar- og foreldraorlof (6), Elna Katrín Jónsdóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir um samningamálin (11, 20). Rannsóknir 6 Er skólinn bara fyrir stelpur? Gestaskrif 13 Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri skrifar um leiklist og skóla. Á öndinni 19 Skopsögur úr skólalífinu Vefanesti 21 Smiðshöggið 22 Á síðustu efnissíðu hvers blaðs munu kennarar taka sér mús í hönd og skrifa pistil um hvaðeina sem tengist skólamálum undir heitinu Smiðshöggið. Elín Vigdís Ólafsdóttir grunnskólakennari ríður á vaðið. Stefnumarkandi rödd í menntamálum Útgefandi: Kennarasamband Íslands Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir - kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason - helgi@ki.is Ritstjórn: Auður Árný Stefánsdóttir, Ása H. Ragnarsdóttir, Eiríkur Jónsson, Helgi E. Helgason, Kristín Elfa Guðnadóttir, Kristín Stefánsdóttir, Magnús Ingvason, Sigurrós Erlingsdóttir Hönnun / Umbrot: Penta ehf. Ljósmyndari: Jón Svavarsson Teiknari: Ingi Auglýsingar: Ritstjórn Prentun: Prentsmiðjan Grafík ehf. Kristín Elfa (með börnum og dótturdóttur), Þórhildur Vígdögg, Marteinn Hörður og Margrét Heiður með Hrafnhildi Diljá.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.