Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 19

Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 19
Skólavarðan janúar 2001 Frétt i r og smáefni 21 fyrir okkur og féll mjög vel að þeirri vinnu sem þegar lá fyrir í félaginu. Auk þess fékk hver samninganefndarmaður það heimaverkefni í haust að skrá hlutverk sitt í nefndinni og hvernig þeir gætu starfað sam- an til sigurs. Meðal þess sem þar kom fram var að allir höfðu brennandi áhuga á starfi sínu og vildu leggja sitt af mörkum til að það yrði metið að verðleikum í stað þess að vera áhorfendur eða skorast undan ábyrgð. Við höfum leyft öllum að segja það sem þeim finnst umbúðalaust og rætt okkur út úr þeim kreppum sem upp hafa komið. Við ákváðum að tala vel um viðsemjendur okkar og líta aldrei á þá sem óvini eða andstæðinga. Við erum sammála um að kjaramálin geta verið skemmtileg og að samningafundir þurfi hvorki að vera þrúgandi né leiðinlegir. Að lokum langar mig að þakka fyrir hlýjar kveðjur í okkar garð og ég á mér þá ósk heitasta að þessi nýi kjarasamningur feli í sér betri skóla fyrir alla: grunnskólakennara, nemendur, skólastjórnendur, sveitarfélögin og þjóðina alla. Guðrún Ebba Ólafsdóttir formaður Félags grunnskólakennara Símenntunarstofnun Kennaraháskóla Íslands var stofnuð árið 1999 og tók þá við hlutverki endurmenntunardeildar skólans sem hafði gegnt lykilhlutverki í endurmennt- un grunnskólakennara og fengið til þess fé á fjárlögum ár hvert. Í ársbyrjun 1999 var stofnaður Endurmenntunarsjóður grunnskóla og voru fjárveitingar til endurmenntunar grunnskólakennara settar í sjóðinn og fleiri aðilum en Kennaraháskólanum gert kleift að halda námskeið. Símenntunarstofnun fékk samt sem áður sérstaklega fjármagn til að standa fyrir námskeiðum auk þess sem hún sótti um í Endurmenntunarsjóð líkt og aðrir. Til skýringar má nefna að á árinu 2000 fékk Símenntunarstofnun styrk úr sjóðn- um til að halda 13 námskeið en vegna fjárveitingar á fjárlögum var hægt að bjóða upp á mun fleiri námskeið. Nú virðist sem peningarnir til Símenntunarstofnunar séu gufað- ir upp og fjárveiting til Endurmenntunarsjóðs lækkar að auki. Á fjárlögum fyrir árið 2001 er ekki gert ráð fyrir fjárveitingu til stofnunarinnar og þar sem hún fær ekki þetta fé til starfsemi sinnar á næsta ári er ljóst að hún verður að fara að selja inn á námskeið sín sem ekki verða styrkt sérstaklega af Endurmenntunarsjóði grunnskóla. Kennarar eru vanir því að geta sótt endurmenntun til KHÍ sér að kostnaðarlausu en nú má gera ráð fyrir að þeir þurfi að ábyrgjast greiðslu á þeim námskeiðum sem þeir fengu áður milliliðalaust, hvort sem þeir borga þau úr eigin vasa eða fá vinnuveitendur sína til að borga beint eða með endurgreiðslu úr Endurmenntunarsjóði Kennarasambandsins. Vegna nýrrar aðalnámskrár var samþykkt að gera sérstakt átak í endurmenntun á að- lögunartíma hennar sem áætlaður er þrjú ár frá haustinu 1998. Þetta átak virðist nú helst felast í því að koma í veg fyrir endurmenntun í stað þess að efla hana, samanber féð sem finnst hvergi. Er ríkið að draga saman seglin eða er þetta tilflutningur í önnur verkefni á vegum menntamálaráðuneytisins? Við því hafa enn ekki fengist svör. Til glöggvunar: Árið 1999 fær Símenntunarstofnun 15,4 miljónir á fjárlögum en Endurmenntunar- sjóður grunnskóla tæpar 18 miljónir. Árið 2000 fær stofnunin 10 miljónir og sjóðurinn tæplega 22 miljónir. Árið 2001 á ekki að veita neinu fé til Símenntunarstofnunar og fjárveiting til Endurmenntunarsjóðs lækkuð í 18,4 miljónir. keg Hvar liggja peningarnir? Barnavefsíða NASA, geimvísinda- stofnunar Bandaríkjanna, er eftirtektar- vert framtak. Marga krakka dreymir um að verða geimfarar og NASA nýtir sér vinsældirnar og sýnir fram á að slíkir draumar og dóp eiga ekki saman. Slóðin er http://www.nasa.gov/kids.html Kannaðu geiminn en láttu dópið eiga sig Vefritið Hrekkjusvín er skrifað af ungu fólki með skoðanir og vel þess virði að gefa því gaum. Slóðin er www.hrekkjusvin.is Hrekkjusvín eða European Schoolnet er með afskaplega langa slóð: http://www.en.eun.org /eun.org2/eun/en/index.html en vefurinn er fjölbreyttur og mikið af hagnýtum upplýs- ingum, meðal annars um ráðstefnur. Evrópska skólanetið er í mikilli þróun og undan- farið auglýst eftir starfsfólki, aðallega vefsmiðum, á heimasíðunni. Nýleg áhugaverð grein á vefnum fjallar um „hypervideo“, nýju kyn- slóðina í gagnvirkri miðlun, sem er eins konar samkrull hreyfi- mynda og margmiðlunar og þykir líkleg til að auka enn á gróskuna í spennandi námsgögnum sem vekja áhuga nemenda. Evrópska skólanetið Sláðu þá inn slóðina www.megastories.com og áhuginn eykst örugglega til muna. „Stórufréttavefurinn“ er fullur af ítarlegum fréttaskýringum um stóru málin sem alltaf eru til umræðu í heiminum en fæstir hafa yfirsýn yfir. Sögulegt yfirlit, gott samhengi og mörg sjónarhorn (t.d. bæði Ísraela og Palestínu-Araba) gera það að verkum að vefurinn nýtist vel í kennslu sem ítarefni fyrir kennarann og einnig þá unglinga sem hafa gott vald á enskunni. Á vefnum eru líka skemmtilegir spurningalistar þar sem hægt er að kanna vitneskju sína á t.d. Rússlandi, Atlantshafsbanda- laginu eða Microsoft-fyrirtæk- inu. Þetta efni er undir liðnum Newsquest og þegar spurning- um hefur verið svarað er gefin einkunn, rétt svör og vísað á ít- arefni. Hefurðu takmarkaðan áhuga á fréttum? Þetta er yfirskriftin á bandarískum fréttavef á Netinu, á frummálinu „The Positive Press - Good News Every Day.“ Slóðin er www.positivepress.com og fréttirnar eru samtíningur úr ýmsum dagblöðum og öðrum miðlum. Á vefnum er líka að finna uppbyggilegar tilvitnanir, já- kvæða spjallrás og upplýsingar um bækur og sögur sem örva fólk til dáða. Einnig er hægt að láta senda sér fréttirnar í tölvupósti. Meðal fréttanna nýverið er ein um rannsókn sem sýnir að ofbeldi fer minnkandi í bandarískum skólum og hefur gert frá 1992. Það ríkir því ekki eilíft svartnætti í byssulandi og kannski sleppum við undan því að flytja inn ameríska skólaofbeldið fyrst það er að komast úr tísku þar í landi án þess að hafa náð fótfestu hér svo nokkru nemi. Ágætur vefur, ekki síst í ljósi þess að margir hafa áhyggjur af að ofgnótt slæmu fréttanna hafi mótandi áhrif á samfélagið, geri það sem sagt verra. Slagsíða á fréttavali á kostnað já- kvæðu fréttanna er alþekkt, enda sagt að engar fréttir séu góðar fréttir. Fréttaheimurinn virðist hafa skilið þetta svo að góðar fréttir séu bara alls ekki fréttir. Jákvæða pressan er innlegg í baráttuna gegn þessu fréttamati. Jákvæða pressan - góðar fréttir daglega Vefanest i

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.