Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 95

Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 95
94 Þjóðmál VETUR 2011 án aðildar vegnað betur en flestum eða öllum ríkjum ESB . Óhjákvæmilega vekur frásögn bókar innar af þróun samvinnunnar allt frá stofnun Kola- og stálbandalagsins 1951, Rómar sátt- málanum 1957 og fram til Lissabon-samn- ingsins 2007 til umhugsunar um hvernig vald yfir mikilsverðum málum þjóðanna í Evrópu hefur í æ ríkara mæli fjarlægst fólk ið í aðildarlöndunum án lýðræðislegra ákvarð- ana þess sjálfs . TIO gerir því eðlilega að um talsefni hinn „svokallaða lýðræðislega halla- rekstur Evrópusambandsins . . . Vandinn rekur uppruna sinn til innri mótsagnar í upp byggingu ESB . Evrópu- sambandið getur ekki lengur talist samstarfsvettvangur sjálf stæðra ríkja . Þau hafa flutt hluta af sjálfstæði sínu til Brussel . Hins vegar er ESB ekki enn sjálfstætt ríki, sem hefur umboð frá íbúum aðildarríkjanna . Uppruni löggjafar er enn í aðalatriðum hjá framkvæmdavaldinu . Þær tilraunir, sem gerðar hafa verið til að efla lýðræði innan sambandsins, hafa reynst hálfkák eitt“ (bls . 93) . Þarna er m .a . vikið að því sem kynduglega kemur fyrir sjónir margra, að þing menn Evrópuþingsins mega ekki bera fram frumvörp . Þeir 4–6 þingmenn sem Ísland hlyti á þessu nær 8 hundruð fulltrúa þingi fengju því ekki slíkan rétt frekar en aðrir . Þeir sætu heldur ekki á bak við skilti með heiti Íslands, til að gæta þar saman hagsmuna landsins, en myndu dreifast á pólitíska flokka þingsins . „Lítill áhugi íbúa aðildarlandanna á ESB, sem endurspeglast m .a . í lítilli og minnkandi þátttöku í kosningum til Evrópuþingsins, er í raun átakanlegur . Ótti ráðamanna í ESB-löndum við að vísa meiri háttar breytingum á stofnsamningum sambandsins til íbúanna er táknrænn fyrir brestina sem komnir eru í sjálfan grundvöll samstarfsins“ (bls . 94) . Báknið í Brussel hefur látið að sér kveða á stöðugt fleiri sviðum, sett reglur sem vægt sagt hafa hentað þjóðunum misvel þótt þær búi nær allar á meginlandi Evrópu og liggi hver að annarri . Hvað um eyþjóð við allt aðrar aðstæður víðs fjarri? Það stangast einfaldlega á við mikilvægt og verðmætt einkenni evrópskr- ar menningar, fjölbreytileik- ann, að reynt sé án afláts að steypa þjóðirnar í eitt mót . Hvert þróunin á eftir að leiða er óráðið . „Evrópskar sam- ræmingarstefnur hafa oftast alið af sér innri sundrungu og látið í minni pokann fyrir innbyggðu miðflóttaafli álfunnar“ (bls . 85) . Samt er nú í alvarlegum þrengingum ESB talað kröftuglega fyrir auknum ítökum sambandsins í fjármálum einstakra aðildar ríkja, „ríki ESB verði að fram selja meira af fullveldi sínu til Brussel . Að öðrum kosti falli þau fram af barmi hengi flugsins“ (bls . 92) . Stöðu smáríkja innan ESB er gerð skýr skil: „Eftir því sem meiri völd eru færð til Brussel, minnka að vonum áhrif smáríkja á stefnumótun 500 milljóna samfélags“ (bls . 9) . Lissabon-samningurinn örvaði þessa þróun . En bent er á að frá lýðræðislegum sjónarhóli hljóti raunar áhrifum fámennra ríkja í svo stórum samtökum að vera takmörk sett . Staðhæfingar stuðnings- manna aðildar Íslands á þá lund, að smáríki séu næsta örugg með að fá fram allt sem skiptir þau verulegu máli, njóta ekki meðbyrs í bókinni . Né fullyrðingar á borð við þær, að „með aðild að ESB fáum við stórkostlegt tækifæri til að taka þátt í að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.