Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 21
21
1. mál kirkjuþings 2014
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs
Inngangur
Inngangur Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir er forseti kirkjuráðs lögum
samkvæmt. Auk biskups sitja í ráðinu fjórir fulltrúar kjörnir af kirkjuþingi til fjögurra
ára, tveir leikmenn og tveir guðfræðingar. Kjörnir fulltrúar í kirkjuráði eru Ásbjörn
Jónsson hrl., sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli, Húnavatns- og
Skagafjarðarprófastsdæmi, sr. Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur í Heydalaprestakalli,
Austurlandsprófastsdæmi og Katrín Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Sólskóga ehf.
Varamenn þeirra eru Birna G. Konráðsdóttir, háskólanemi, Svana Helen Björnsdóttir,
verkfræðingur og dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Nesprestakalli. Sr. Elínborg
Gísladóttir, sóknaprestur í Grindavíkurprestakalli var kosinn varamaður í kirkjuráð
á kirkjuþingi 2012 í stað sr. Solveigar Láru Guðmundsdóttur, en hún var þá kosin
vígslubiskup í Hólaumdæmi árið 2012 og sagði því af sér sem varamaður í kirkjuráði.
Kjörtímabili þess kirkjuráðs sem nú situr lýkur í lok kirkjuþings 2014 en það var kosið á
kirkjuþingi 2010. Í maí sl. var kosið til kirkjuþings og verður því nýtt kirkjuráð kjörið á
næsta reglulega kirkjuþingi.
Starfsemi kirkjuráðs
Almennt
Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr.
78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni
kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem
lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings,
prestastefnu, samtaka leikmanna, ráðherra og Alþingis. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í
samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið þingmál sín og veitir
kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við framsetningu þingmála. Kirkjuráð annast
almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð
hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum þjóðkirkjunnar og fer með stjórn
Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og úthlutar úr sjóðunum á grundvelli umsókna
og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir
og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem ráðið stýrir og leggur fram á
kirkjuþingi.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fund að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu starfsári
hefur ráðið haldið 12 fundi. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra sitja að jafnaði
fundi ráðsins skrifstofustjóri Biskupsstofu, fjármálastjóri Biskupsstofu og biskupsritari
sem ritar fundargerðir. Forseti kirkjuþings situr fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings