Ljóðormur - 01.10.1985, Blaðsíða 31

Ljóðormur - 01.10.1985, Blaðsíða 31
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR: Vélhjólamenn Geltandi upp götuna svartir í horn að taka gljáandi leður stál og keðjur og glittir i rifur augna. Við mætum þeim ein í nóttinni óttinn og ég. Nostalgía Ég sakna ekki þess sem var ég trúi ekki á fegurð fortíðarinnar en draumanna minnist ég með trega nú þegar kólnar og dimmir og bilið vex milli þess sem er og þess sem átti að verða. 29

x

Ljóðormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.