Víkurfréttir - 10.11.1983, Qupperneq 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. nóvember 1983 5
Handbolti - 2 deild:
Dómarar og markverðir
í aðalhlutverkum
- þegar Reynismenn töpuðu fyrir Fylki 19:22
l-X-2
„Hef haldið
með Spurs
síðan 1967“
„Tottenham vinnur
Liverpool, það er aiveg
öruggt, eigum við ekki
að segja 2:1?“ sagði
Sverrir Einarsson,
smiður á Keflavikurflug-
velli. Sverrir er (ásamt
undirrituðum) einn al-
harðasti Tottenham-að-
dáandinn á Suðurnesj-
um. „Ég hef haldið með
SPURS síðan 1967 og ég
hef trú áþví að þeirlendi
i einu af fimm efstu sæt-
unum í 1. deildinni
ensku, og óg spái því
einnig að þeir fái örugg-
lega einn titil á þessu
tímabili.
Þetta er frekar erfiður
seðill, en við skulum
vona að ég geri betur en
Stebbi. Ég vil endilega
reyna að lækka rostann í
þessum uppblásnu Man.
Utd.-aðdáendum og
bæta við smá skoti til
þeirra hér, að þaö er nú
orðið hart þegar2jamill-
jóna maðurinn þeirra er
farinn að skora í eigið
mark, eins og skeði í síð-
asta leik þeirra", sagði
Sverrir Einarsson.
En hér kemur heildar-
spá Sverris:
Lelkir 12. nóvember:
Coventry-Q.P.R........ 1
Everton-Nott’m For. ... X
Ipswich-Arsenal ...... 1
Leicester-Man. Utd. ... 2
Luton-Birmingham .... 1
Notts County-Norwich X
Southampton-W.B.A. .. 1
Sunderland-Watford .. 1
Tottenham-Liverpool .. 1
Wolves-West Ham .... 2
Chelsea-Newcastle .... X
Derby-Middlesbro...... X
Hjörtur „léttr
með 4 rétta
Síðasti spámaður
okkar, Hjörtur Kristjáns-
son, reið ekki feitum
hesti á síðasta seðli, sem
var svo léttur að sögn
hans, útkoman aðeins 4
réttir. Stefán Jónsson
hefur enn besta útkomu,
6 rétta. En sjáum hvað
Sverrir gerir. - pket.
l-X-2
Dómarar og markmenn
liða Reynis og Fylkis settu
stærstan svip á leik liðanna
sl. föstudag. Leikurinn fór
fram í íþróttahúsinu í Sand-
gerði og lauk með sigri
Fylkis, 22:19, en staöan í
hálfleik var 11:6 fyrir þá.
Fylkismenn gerðu út um
leikinn í fyrri hálfleik er þeir
náðu 5 marka forystu, 8:3,
og í seinni hálfleik var mest-
ur munur 7 mörk, 14:7, en
þá náðu Reynismenn góð-
um leikkafla og minnkuðu
muninn í 3 mörk, 19:16, og 5
mínútur til leiksloka. Mjög
umdeilt atvik kom upp í
næstu sókn hjá Reynis-
mönnum, er markvörður
Fylkis hremmdi boltann
ólöglega með því að kasta
sér á hann, en dómarar
leiksins, þeir Guðmundur
Kolbeinsson og Þorgeir
Pálsson, dæmdu ekkert á
brotið og Fylkismenn brun-
uðu upp og skoruðu. Má
segja að þetta hafi verið
vendipunktur í leiknum, því
Marteinn með
Víði
Ákveðið hefur verið að
Marteinn Geirsson, fyrrum
landsliðsfyrirliði og leik-
maður Fram, þjálfi Víði
næsta tímabil.
Mun Marteinn jafnframt
leika með liðinu, og ekki er
að efa að Víðismenn verða
sterkir undir hans stjórn og
fari að líta 1. deildar sæti yl-
hýru auga. - pket.
SBK fer fram á
úrbætur á
gatnamótum
Þar sem komið hefur í Ijós
að gerð gangstétta við
gatnamót er með þeim
hætti, að það skapar veru-
leg vandræði og hættu fyrir
umferð sérleyfisbifreiða og
annarra stórra farartækja,
svo sem við gatnamót Vest-
urgötu og Hringbrautar,
hefur stjórn SBKóskaðeftir
því að lagfæringar verði
framkvæmdar með því að
rýmka akstursleiöirnar, svo
komið verði í veg fyrir
óhöpp.
Sérleyfisbifreiðum verði
gert kleift að aka þar sem
hentugast þykir fyrir far-
þega. Ef ekki verður ráðin
bót á ýmsum gatnamótum í
bænum, má gera ráð fyrir
verulegum erfiðleikum á aö
halda uppi strætisvagna-
og skólaakstri um bæinn,
að því ersegiríbókunfund-
ar stjórnarinnar 27. okt. sl.
epj.
NÆSTA BLAÐ
KEMUR ÚT
17. NÓVEMBER
hefðu heimamenn skorað
og minnkað muninn í 2
mörk, þá hefði allt getað
gerst á þeim 5 mín. sem eftir
voru. Lokatölur urðu svo
22:19 eins og áður segir.
Leikur þessi var mjög
slakur ef undan er skilinn
leikur markvarða liðanna.
Markvörður Fylkis hélt lið-
inu á floti í fyrri hálfleik og
lokaði hreinlega markinu,
en Ólafur Róbertsson í
marki Reynis varði mjög vel
allan tímann. Reynismenn
léku þennan leik afar illa,
ráðaleysi í sókn, vörnin illa
á verði og aragrúi dauöa-
færa fór forgörðum. Von-
andi fara leikmenn liðsins
að taka sig saman í andlit-
inu og vinna leik, því liðiö
hefur alla burði til þess, og
ef þessi „neisti" kemursem
á vantar, þá er ekki að efa að
liðið á eftir að sigra ófáa
leiki í 2. deildinni.
Dómararnir í þessum leik,
áður nefndir, höfðu nánasl
engin tök á leiknum og var
mikið um ósamræmi i dóm-
um þeirra. Náði það há-
punkti á síðustu mínútum
leiksins er annar þeirra,
Guðmundur Kolbeinsson,
sýndi Guðmundi Árna,
þjálfara og leikmanni Reyn-
is, rauða spjaldið fyrir að
hafa látið orð út úr sér falla
sem dómaranum þóttu sér
misboðin.
Mörk Reynis: Daníel 5,
Sigurður Óli 4, Guðmundur
Árni 3, Páll 3, Snorri, Krist-
inn, Jón Kr. og Eiríkur 1
hver.
Markahæstur Fylkis-
manna var Andrés Magnús-
son meö 7 mörk. - pket/val.
Samvinnuferdir - Landsýn
Umboðsmaður í Keflavík
frá 10. - 17. nóvember:
Guðjón Stefánsson
skrifstofu K.S.K., sími 1500
Heimasími 2459.
- Efri salur -
FOSTUDAGUR 11. NOVEMBER:
Leikfélag Keflavíkur:
HVAÐA KVENMAÐUR ER ÞETTA . . . ?“
Sýning hefst kl. 21.
LAUGARDAGUR 12. NOVEMBER.
LOKAÐ VEGNA EINKASAMKVÆMIS.
[SAMKAUPj
mmm
Siml 1540
Siml 1540
VÖRUKYNNING
Þýsk-íslenska verslunarfélagið
kynnir:
OBOY súkkulaöidrykkinn og
METABO rafmagnshandverkfæri
föstudaginn 11. nóvember (á morgun)
frá kl. 15 - 19.
Sími1540
SAMKAUP
Sími 1540