Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 102
Náttúrufræðingurinn
102
leg eða 343 fundargestir á árinu.
Eftirfarandi erindi voru hald in:
Dr. Bergrún Arna Óladóttir. „Senn
bryddir á Barða“ Stutt samantekt
um Kötlu. Dr. Haraldur Ólafsson.
Staðbundið veður. Magnús Jóhanns-
son. Fiskstofnar Þjórsár og göngur
þeirra. Guðmund ur Halldórsson.
Ertu yglan og hugsanleg áhrif henn ar
á lúpínu Íslandi. Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir. Með kúlustrý nebbu
undir eldhúsvaskinum – funga
íslenskra húsa. Árni Hjartar son.
Hallmundarkviða og Hall mundar-
hraun. Eldforn lýsing á elds-
umbrotum. Ása L. Aradóttir. Vist-
heimt á Íslandi í eina öld – hvað
höfum við lært?
Náttúrufræðingurinn
Undanfarin ár hafa yfirleitt komið
út tvöföld hefti af ritinu og meira að
segja eitt fjórfalt. Á síðasta aðalfundi
var greint frá því að ákveðið hefði
verið að gera tilraun með að gefa út
fjögur hefti af Náttúrufræðingnum
á árinu. Varnagli var þó sleginn
því tekið var fram að ekki væri víst
að þetta myndi takast, eða að við
hefð um efni á því, en tilraunin væri
hafin. Alltaf mætti stíga skrefið til
baka ef útgáfan reyndist of torveld.
Og það var það sem kom á daginn.
Þegar leið á árið var ljóst að menn
yrðu að sætta sig við tvö einföld
hefti en eitt tvöfalt. Síðasta heftið
kom úr prentsmiðju rétt fyrir ára-
mótin og til félagsmanna rétt eftir
þau. Segja má því að árgangurinn
hafi skilað sér nokkurn veginn
á rétt um tíma og enginn hali er
á út gáf unni. Ráðningartímabil rit-
stjórans, Hrefnu B. Ingólfsdóttur,
rann út um áramótin en var endur-
nýjaður lítt breyttur til 2014. Rit-
stjóri gaf þó í skyn að óvíst væri
með áframhaldandi störf hans eftir
þetta ár, árið 2012 og 82. árgang.
Umhverfisþing
14. október á Hótel
Selfossi
Fulltrúar HÍN sóttu Umhverfisþing
á Hótel Selfossi þann 14. október.
Á þinginu var fjallað um náttúru-
verndar mál, þar á meðal nýút-
komna hvítbók um endurskoðun
náttúruverndarlaga, friðlýsingar,
ferðaþjónustu, útivist náttúruvísindi
og viðmið fyrir náttúruvernd.
Heiðurs gestur var Ella Maria
Bisschop-Larsen, formaður Dönsku
náttúruverndarsamtakanna sem
fagna 100 ára afmæli í ár. HÍN
var með sérstakt kynningarefni um
félagið í sýningarbás á staðnum.
Nefndir
Dýraverndarráð: Margrét Björk
Sigurðardóttir er fulltrúi HÍN, og
hefur verið síðastliðin 4 ár. Störf
hennar eru tíunduð í sérstakri
skýrslu sem hún tók saman fyrir
aðalfundinn. Gert er ráð fyrir að
hún sitji áfram í ráðinu fyrir hönd
HÍN þar til væntanlegar breytingar
á dýraverndarlögum taka gildi.
Samstarfshópur frjálsra félaga-
samtaka á sviði umhverfismála á vegum
Umhverfisráðuneytis: Hóp ur inn á
full trúa í ýmsum nefndum á vegum
ráðuneytisins, svo sem í Ramma-
áætl un, stjórn og svæðisráðum
Vatna jökulsþjóðgarðs o.fl. Kristín
Svavarsdóttir, frv. formaður HÍN,
var talsmaður hópsins og hélt
utan um erindi sem honum bárust.
Síðast liðið vor lét hún þó af þessu
starfi og hvarf úr samráðshópnum
eftir gott starf þar, sem var HÍN til
sóma. Árni Hjartarson tók við sem
fulltrúi HÍN en Hólmfríður Sig-
urðar dóttir hjá Fuglavernd var til-
nefnd sem talsmaður hópsins í stað
Kristínar.
Grænavatnsganga.
Aldarminning Sigurðar
Þórarinssonar
Þann 8. janúar 2012 voru liðin 100 ár
frá fæðingardegi Sigurðar Þórarins-
sonar jarðfræðings, eins kunnasta
vísindamanns þjóðarinnar á síðustu
öld, en hann var um skeið ritstjóri
Náttúrufræðingsins og formaður
HÍN. Á þessum degi efndu HÍN og
fleiri félög og samtök sem tengjast
náttúruvísindum, náttúruvernd
og útiveru til blysfarar kringum
Græna vatn í Krýsuvík. Ástæðan
fyrir því að Grænavatn var áfanga-
staðurinn er sú að þar hafði
Sigurð ur gert merkar jarðfræði-
athuganir og upphaf baráttu hans
fyrir náttúruvernd má að vissu
leyti rekja til Grænavatns. Um þetta
hvort tveggja má lesa í Náttúru-
fræðingnum 1950 þar sem birt er
tímamótaerindi um náttúruvernd
sem Sigurður hélt á fundi í Hinu
íslenska náttúrufræðifélagi þann 31.
2. mynd. Grænavatnsganga var farin á aldarafmæli Sigurðar Þórarinssonar 10. jan. 2012.
Á myndinni eru Magnús Hallgrímsson, Halldór Ólafsson og Páll Ásgeir Ásgeirsson sem
allir létu að sér kveða í göngunni