Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Side 7

Bókasafnið - 01.06.2015, Side 7
7 Útdráttur Þessi grein fjallar um nýtt skráningarsnið, Bibframe, sem ætlað er að leysa MARC21 skráningarsniðið af hólmi. Greint er frá að- draganda verkefnisins og gagnrýni á marksniðið sem varð til þess að farið var að huga að skráningu gagna sem ekki miðast eingöngu við bókasöfn, heldur nær til skráningar á alls konar gögnum í mismunandi gagnasöfnum og vinnur með öðrum gögnum á vefnum. Fjallað er um samtengd gögn (e. linkded data) á merkingarvefnum, en nýja skráningarsniðið byggist á þeirri tækni. Sagt er frá uppbyggingu Bibframe, sýnd eru dæmi um útfærslu, samanburður við marksniðið og hvernig því er ætlað að nýtast. Að lokum er greint frá gagnrýni á verk- efnið. Bibframe – nýtt skráningarsnið Marksniðið, sem notað er í Gegni, er dauðadæmt. Það verður ekki þróað öllu lengur. Við tekur nýtt skráningarsnið sem fengið hefur nafnið Bibframe.1 Flest bókasafnskerfi hafa notað marksniðið sem sitt skráningarsnið eftir að spjaldskrár hættu að þjóna hlutverki sínu. Það hefur verið notað í nær hálfa öld. Ætlunin er að segja frá hugmyndinni að baki Bibrame-verk- efninu um nýtt skráningarsnið fyrir upplýsingageirann, hverju Bibframe – nýtt skráningarsnið því er ætlað að koma til leiðar og gagnrýni á það. Bibframe byggir á tækni og hugmyndafræði samtengdra gagna (e. lin- ked data) og merkingarvefsins (e. semantic web) og nauðsyn- legt er að gera grein fyrir hvoru tveggja. Forsagan Bókasöfnin standa frammi fyrir vanda. Það hefur verið að molna undan bókasafnsskrám um nokkurt skeið. Hefðbundin skráning þykir of dýr og flókin og nær ekki til allra þeirra gagna sem notendur bókasafnanna leita að. Hún nær hvorki til tímaritagagnasafna né gagna á Netinu. Leit í gagnasöfnum sem söfnin kaupa lýtur öðrum lögmálum en leit í bókasafns- kerfum og gögnin vinna ekki vel saman. Leitargáttir eins og Leitir.is reyna að samhæfa þessi mismunandi lýsigögn með mikilli vinnu og misjöfnum árangri. Marksniðið var hannað á 7. áratug 20. aldar til þess að sam- nýta bókfræðifærslur (Furry, 2009). Að baki því lá sú hugmynd að hægt væri að skrá gagn einu sinni og senda skráningar- færslurnar á milli safna. Og marksniðið fór sigurför um bóka- safnsheiminn. Það stuðlaði að samnýtingu gagna, dró úr kostnaði við skráningu og stuðlaði að samvinnu bókasafna sem ekki verður snúið aftur frá. Marksniðið er einkum ætlað til Ragna Steinarsdóttir er sviðsstjóri aðfanga og skráningar á Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni. 1. Heitið er dregið af vinnuheitinu: Bibliographic Framework Initiative. Dauðadómurinn á reyndar bara við um MARC21. Það eru til fleiri afbrigði af marksniðinu, svo sem Unimark, en hér er einungis rætt um MARC21. Í gamla Gegni var breska marksniðið notað, en þegar nýi Gegnir kom til sögunnar árið 2003 var bókfræðigögnunum varpað úr breska markinu yfir í MARC21.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.