Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 23.09.2016, Qupperneq 61

Fréttatíminn - 23.09.2016, Qupperneq 61
 „Ég er búin að vera að horfa á Fleabag sem eru brilljant þættir um konu sem missir bestu vinkonu sína og á í ótrúlega erfiðu sam- bandi við alla í kringum sig. Þess- um þáttum tekst að vera í senn þungir en um leið ótrúlega hnyttn- ir. Aðalpersónan er fullkomlega ófullkomin, sannkölluð andhetja. Ég reyni að hafa augun opin fyrir nýjum þáttum, sérstaklega bresk- um því þeir eru oft í sex þátta syrpum sem tekur enga stund að horfa á. Auk þess hef ég verið að horfa á Catastrophe, það eru góðir þættir sem eru fullkomin blanda af gríni og raunveruleikanum og Stranger Things, sem komu skemmtilega á óvart. Svo gríp ég stundum í einn og einn þátt af Happy Endings. Það eru gamanþættir sem voru ekki nógu „mainstream“ fyrir amerískt sjónvarp og voru því miður teknir af dagskrá eftir þrjár seríur. Þeir eru byggðir upp eins og Friends, með sex vinum, en þeir eru meira absúrd og gera grín að týpíska „sit-com“-landslaginu í bandarísku sjónvarpi í dag.“ Sófakartaflan Nikólína Hildur Sveinsdóttir mannfræðinemi. Frábærir þættir um fullkomlega ófullkomna konu Gerir allt sem þarf Netflix Luther Spennu- og sakamálaþættirnir Luther fjalla um rannsóknarlög- reglumann sem er leikinn af Idris Elba. Hann hefur tileinkað líf sitt starfinu og gerir allt sem þarf til að góma morðingja, þó það sé ekki alltaf löglegt. Nú er fjórða þáttaröðin komin á Netflix en hún samanstendur af tveimur þáttum. Luther fær 8,6 á IMDb. Milljón og málið er dautt RÚV kl. 22.50 The Box Spennutryllir með Cameron Diaz og James Marsden í aðalhlut- verkum. Lítið viðarbox birtist fyrir utan dyrnar hjá ungum hjónum með hrikalegum fyrirmælum: Ef þau opna boxið fá þau milljón dollara og ókunnug manneskja verður myrt. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. Frábær fjölskyldumynd Netflix Zootropolis Vinsæl fjölskyldumynd sem kem- ur inn á útlenskt Netflix í dag. Íslenska útgáfu myndarinnar má nálgast í efnisveitum Vodafone og Símans og eflaust víðar. Aðal- persónur myndarinnar eru tvær, löggukanínan Judy og svali rebb- inn Nick sem fer ekki alltaf eftir lögunum og er nokkuð hrekkj- óttur í þokkabót. Þegar Nick er ranglega sakaður um alvarlegt afbrot kemur það í hlut Judyar að hafa hendur í skotti hans. Það reynist ekki auðvelt enda er Nick háll sem áll og á auðvelt með að láta sig hverfa. Málin taka hins vegar nýja stefnu þegar Nick og Judy flækjast bæði inn í sama samsærið og neyðast til að snúa bökum saman til að endurheimta heiður sinn og orðspor. Gott grín Nikólína mannfræðinemi er hrifin af grínþáttum í sjónvarpi. Mynd | Hari Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji... www.versdagsins.is Hellishólar Má bjóða þér að halda árshátíð - afmæli - fundarboð eða einhvern fögnuð? Fáðu tilboð hjá okkur í síma 487 8360 eða sendu okkur línu og við svörum innan 24 tíma hellisholar@hellisholar.is Við bjóðum upp á frábæra gistingu á Hellishólum. Hótel Eyjafjallajökull 18 herbergi Hellishóla gistiheimili 15 herbergi 2 veitingasalir með skjávarpa og hljóðkerfi 24 sumarhús Tilvalið til fundarhalda eða annara samkvæma. …sjónvarp13 | amk… FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.