Fréttablaðið - 02.02.2017, Page 48

Fréttablaðið - 02.02.2017, Page 48
Verk Steingríms eru frá síðustu 25 árum og skiptast í sjö seríur. Hver um sig hefur eigin titil og inniheldur mismargar myndir, mál- verk, textaverk og ljósmyndir. Einni seríunni fylgir myndband, annarri munir og öðrum skúlptúrar. Inn- takið er af ólíkum toga. Kvenhetjan er nýjasta serían – Steingrímur fékk Lindu Björgu Árnadóttur hönnuð til að safna úrklippum af kven- hetjum og bætti sjálfur við tilvitn- unum í heimspekinga og fræði- menn. Þar er spurt spurninga um mörkin milli eigin persónuleika og gervis sem krafist er í umhverfinu. Steingrími verður að ósk sinni um umræðu því innihald sýningar hans verður rætt á sérstöku mál- þingi í Hafnarborg laugardaginn 25. febrúar. Auk hans sjálfs verða frummælendur þar þær Birta Guð- jónsdóttir sýningarstjóri, Kristín Ómarsdóttir rithöfundur og Marta Sigríður Pétursdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir, menningar- og kynjafræðingar. Rósa byrjaði sem frakki Í Sverrissal, á jarðhæð Hafnarborgar, er Sigga Björg Sigurðardóttir með innsetningu á veggjum og gólfi. Hún fjallar um persónuna Rósu, upp- runa hennar og sögu. Rósa er þar sýnileg sjálf sem skúlptúr á gólfinu, haldandi á hörpu – byrjaði reyndar sem frakki sem Sigga Björg fann og mótaði Rósu inn í, að eigin sögn. Svo urðu til margir fleiri skúlptúrar sem koma við sögu í tíu mínútna vídeóverki þar sem fylgst er með Rósu gegnum lífið, allt frá getnaði. Veggirnir tákna hver sína árstíð í verki Siggu Bjargar. Stórar myndir styðja við ævintýrið um Rósu, sumar eru málaðar á staðnum, beint á vegg- inn, en nokkrar eru nýkomnar af sýningu í Teikningasafninu í Laholm í Svíþjóð þar sem Sigga Björg sýndi í haust. Þær falla vel að efninu. „Fólk sem gengur hér um á að geta fengið tilfinningu fyrir aðalpersónunni,“ segir Sigga Björg. „Ég er að segja sögu en þó ekki alla söguna.“ Ég vil að þessi sýning skapi umræður því í henni eru mörg álitamál tekin fyrir. Sum listaverk eru bara litir og form og þá verður umræðan bara um hvort verkið sé fallegt eða ljótt – snýst um smekk og nær ekkert lengra. Það er ekki í boði hjá mér. Ég vil að fólk tali saman fyrir framan verkin og hafi skoðanir á innihaldi þeirra.“ Þetta segir Steingrímur Eyfjörð mynd- listarmaður um sýninguna Kven- hetjur sem hann er með í aðalsal Hafnarborgar í Hafnarfirði. Vil að fólk tali saman framan við verkin Listafólkið Steingrímur Eyfjörð og Sigga Björg Sigurðardóttir eru með tilkomu- miklar sýningar í Hafnarborg í Hafnar- firði, hvort á sinni hæð. Konur koma sterkt við sögu sem viðfangsefni. Sigga Björg Sigurðardóttir fjallar um persónuna Rósu í verkum sínum í Sverrissal á jarðhæð Hafnarborgar. FRéttaBlaðið/SteFán Hluti verksins Grýla/Venus eftir Steingrím eyfjörð. Steingrímur við hluta verksins Vörpun 2001. á myndunum klæðist hann nærfötum sem fundust í gömlum skáp. FRéttaBlaðið/SteFán Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða? Iðnaðarmann Bílstjóra Bifvélavirkja Þjónustufólk Öryggisvörð Lagerstarfsmann Matreiðslumann 2 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð menning 0 2 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 5 -5 3 9 8 1 C 2 5 -5 2 5 C 1 C 2 5 -5 1 2 0 1 C 2 5 -4 F E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.