Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2017, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 02.02.2017, Qupperneq 50
Dans- og söngva-myndin La La Land h e f u r ve r i ð a ð sópa að sér verð-launum og fékk fjórtán tilnefningar til Óskarsverðlauna. Myndin segir frá „strögglandi“ djasspíanista sem er með stóra drauma. Hann er ástfanginn af leikkonu en elt- ingaleikur þeirra við drauma sína kemur upp á milli þeirra. Myndin hlaut tilnefningar til Óskarsins fyrir bestu mynd, besta leik í aðal- hlutverki – bæði Ryan Gosling og Emma Stone hlutu þá tilnefningu, bestu leikstjórn, besta handrit, kvikmyndatakan, klipping, bún- ingar og þar fram eftir götunum. Myndin hefur sem sé hlotið til- nefningar fyrir nánast allt sem er hægt að fá tilnefningu fyrir. Ef úr verður að La La Land fari heim með verðlaun sem besta myndin er það nú samt sem áður alls ekki í fyrsta sinn sem dans- og söngvamynd hlýtur þá eftirsóttu viðurkenningu. Síðast var það söngleikurinn Chicago sem hirti styttuna og var það árið 2002. Rob Marshall leikstýrði þessari endur- gerð af Broadway-söngleik en hann tekur þarna á spillingu í rétt- arkerfinu með söng og gleði – sem er að minnsta kosti líflegasta leiðin til að takast á við slík vandamál. Á undan Chicago var það hins vegar Oliver!, söngleikjaútgáfa af Oliver Twist, sem tröllreið kvikmynda- húsum árið 1968. Hérna væri hægt að draga þær ályktanir að annað- hvort séu söngleikir gamaldags og eigi ekkert erindi við áhorfendur lengur eða þá að söngleikir séu að koma með „kombakk“ og nú sé að fara í hönd gullöld söngva og dansa á hvíta tjaldinu. Hvort sem það er – þá er augljóst að áhorfendur í dag taka söngleikj- um á allt annan hátt en þeir gerðu á gullöld þeirra. Þróun í kvikmynda- gerð, sérstaklega í Hollywood, hefur verið í átt til meiri realisma en þá þekktist. Kvikmyndin er ekki jafn mikið sjónarspil, eða að minnsta kosti sjónarspil á annan hátt en tíðkaðist í Hollywood fortíðarinnar – en þá líktist kvik- myndin leikhúsinu töluvert meira og krafan um raunveruleika ekki jafn sterk eða hreinlega ekki fyrir hendi. Leikarar fóru með línurnar með „transatlantic“ hreim til höfða til áhorfenda beggja vegna Atlants- hafsins og urðu að kunna að dansa og syngja. Í dag heyrir maður gagnrýn- endur söngleikja agnúast út í hversu fáránlegt uppbrot það sé að skyndilega bresti fólk í söng og dans í miðjum samtölum og er það bersýnilega vegna þeirra áhrifa sem uppeldi við realískan heim hins nýja Hollywood hefur haft. Hinir eru á hinn bóginn oftast heillaðir af ævintýralegu sjónarspili og þeirri fjölbreyttu upplifun sem dans- og söngvamyndum fylgir – oft nost- algíukennd margfasa upplifun þar sem tónlistin spilar nánast jafn stóra rullu og sjálfur söguþráður myndarinnar. Kannski verður La La Land einmitt völd að nýrri gull- öld söngleikja í Hollywood, það verður spennandi að sjá. Jafnvel munu áhrifin breiða úr sér í heim- inum utan kvikmyndahússins og fólk fer að bresta í söng og dans á kaffihúsum heimsins. stefanthor@frettabladid.is Enginn dansar og syngur í alvörunni La La Land fer um þessar mundir sigurför um heiminn og kemur ansi sterk til leiks sem stóri sigurveg- arinn á Óskarsverðlaunahátíðinni en hún hlaut fjórtán tilnefningar þar á meðal fyrir bestu myndina og besta leikinn. Það eru þó ekki allir á einu máli um gæði myndarinnar og söngleikja almennt. Rita Hayworth og Fred Astaire voru tvo stærstu nöfn gulltímabils dans- og söngva- mynda Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTY Ryan Gosling og Emma Stone syngja og dansa eins og englar í La La Land og halda gagnrýnendur vart vatni yfir frammistöðunni. NORDICPHOTOS/GETTY HLUSTENDA VERÐLAUNIN 2017 #hlust17 LÉTTÖL HÁSKÓLABÍÓ 3. FEBRÚAR Í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Í i i ts i i i a skrá á 2 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r42 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð bíó 0 2 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 5 -4 E A 8 1 C 2 5 -4 D 6 C 1 C 2 5 -4 C 3 0 1 C 2 5 -4 A F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.