Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Blaðsíða 7

Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Blaðsíða 7
SVIPMYNDIR ÚR STARFI KVENNALISTANS Á afmæli Kvennalistans 13. mars s.l. var boðið uppá dýrindis afmælistertu frá Guðna bakara í anddyri KÁ á Selfossi. Kosningastýrumar Alda og Ema fengu nóg að gera og kakan rann ljúflega niður. 19. júní 1919 fengu íslenskar konur kosninga- rétt. Kvennalistinn heldur þennan dag auðvitað hátíðlegan. Tvö s.l. sumur höfum við haldið kaffisamsæti og boðið til okkar miklum heiðurs- konum. 1989 vom það Stefanía Gissurardóttir og Guðrún Eiríksdóttir, sem heiðmðu okkur með nærvem sinni. 1990 komu til okkar Ingi- björg Pálsdóttir, Klara Karlsdóttir og Oddý Krist- jánsdóttir. STÓRKOSTLEGT VERÐ Á ÖLLUM VÖRUM Storris-eldhúskappar Metravara frá kr 190,- Regngallaefni kr. 350,- Sængurverasett kr. 1.260,- Sængur kr. 2.280,- Straufríir dúkar frá kr. 1.230,- Vinnuskyrtur kr. 500,- Ungbarnajogginggallar kr. 700,- Jogginggallar fullorðinna kr. 2.800,- Herrabuxur kr. 1.600,- Sundbolir kr. 900,- Háskólabolir kr. 1.200,- Stígvél kr. 1.500,- Hljómplötur - Geisladiskar - Kassettur ÁLNAVÖRUBÚÐIN Breiðumörk 2, Hveragerði, sími 34517. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10-18. Vorhret PÁLÍNA SNORRADÓTTIR að sá rétt í gula kolla krókusanna minna, þegar ég kom út í morgun. í gær hafa þeir örugglega kvefast, þvi að frostið fór niður í tíu stig. Þeir kiktu svo fagnandi upp úr mold- inni í byijun mars. Auðvitað hafa skollið á þá nokkur hret, en ég hef áhyggjur af þessu síðasta. Ætli það dragi ekki úr öllum þroska - allri lífsgleði? En það em fleiri sem lenda í vorhretinu á lífsleið- inni. Mér dettur í hug: Hvað á að gera við litla angann, þegar mamma fer út að vinna að loknu fæðingaror- lofinu? Hvað um nemendur okk- ar sem borða engan morg- unmat, koma nestislausir í skólann, en eiga samt að vinna þar 5-6 klst daglega. Hvað um unglingana okk- ar, sem lenda í hreint ótrú- legum hremmingum; flosna upp úr skóla, lenda í ofbeld- isverkum bæði sem gerend- ur og þolendur - og leit þeirra að hjálpandi hönd ber engan árangur? Hvað um vin okkar á hjólastólnum, sem kemst hvorki lönd né strönd vegna allra þröskuldanna í þjóð- félaginu? Hvað um fötluð böm sem fæðast úti á landi. Fá þau kennslu og þjálfun í sínum heimaskóla - eða verða þau að flytja með pabba og mömmu til Reykjavíkur? Veistu hvaða úrkosti geð- veikir eiga í okkar þjóð- félagi? Við sjáum hveija ríkis- stjómina af annarri hverfa inn í eilífðína. Menn sem í upphafi gáfu svo fögur fýrir- heit - vildu vel - en árang- urinn hefur orðið svo grát- lega lítill. Hvað gerðist? Getur verið að hægri höndin viti ekki alltaf hvað sú vinstri gjörir? Getur verið að það gleym- ist stundum við setningu góðra laga, að það þurfi peninga til að koma þeim í framkvæmd? Getur verið að forgangs- röðin við ráðstöfun ríkisfjár- munanna sé eitthvað dular- full? Ekki nógu „mann- eskjuvæn“? Ætli forgangsröðin yrði önnur ef „fjármálaráðherrar" heimilanna - húsmæðumar - fengju að spreyta sig? Við skulum vanda val okk- ar í kosningunum 20. apríl næstkomandi. Höfundur skipar 6. sæti Kvennalistans á Suðurlandi. Guðmunda Þóra Stefánsdóttir húsfreyja í Geirakoti í Flóa sést hér á tali við ungviði á bæjarhlaðinu. Guðmunda og maður hennar Kristján Sveinsson bjuggu í Geirakoti í Flóa í sex áratugi. Þau eignuðust sex böm og segir Guðmunda það hafa verið mesta lán sitt í lífinu að þau hafi öll fæðst heilbrigð og aldrei neitt alvarlegt annað að þeim í uppvextinum. Guðmunda varð níræð á nýársdag, hún ber aldurinn vel; „hún er sú eina sem les gler- augnalaust á heimilinu", segir tengdasonur hennar á Selfossi þar sem hún dvelur nú. Guðmunda hefur haft ærinn starfa um dagana og þó hún standi ekki lengur fyrir stóm heimili fellur henni aldrei verk úr hendi, hún pijónar, saumar út og málar auk þess sem hún hefur yndi af lestri góðra bóka. ■ NU ER DOMUFRI ■■ ÞITT ER AÐ VELJA wM Kvennalistinn vill þjóðarsátt um stórbætt kjör kvenna og annarra láglaunahópa, styttingu vinnuvikunnar og sveigjanlegan vinnutíma. Þetta höfum við boðið gömlu ílokkunum upp á tvisvar - en þeir höfnuðu! Þeir voru ekki tilbúnir fyrir dömufri 1987 og 1988. Þeir vildu ekki dansa í takt við okkur! íslendingar em ein af ríkustu þjóðum heims. Við eigum gjöfular auðlindir í sjó og á landi og fólkið okkar hefur skapað lífskjör sambærileg þeim bestu sem þekkjast í heiminum. Þau hafa orðið til vegna mikillar vinnu, ekki síst sívaxandi vinnu kvenna utan heimilis. Við öflum mikilla tekna og getum skapað fyrirmyndarþjóðfélag á íslandi ef jöfnuður, réttlæti og virðing við mannlíflð og náttúmna situr í fyrirrúmi. STÍGUM DANSINN SAMAN, SKÖPUM RÉTTLÁTARA ÞJÓÐFÉLAG. DRÍFÐU ÞIG ÚT Á GÓLFIÐ! 7

x

Pilsaþytur á Suðurlandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur á Suðurlandi
https://timarit.is/publication/1247

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.