Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 46
Greta segir að það leynist mörg tækifæri í Eurovision-keppninni og sjálfsagt sé að nýta þau. Keppnin hafi gefið henni kost á að ferðast og halda tónleika víða. Þar fyrir utan hafi hún kynnst mörgu góðu fólki. „Ef maður grípur tækifærið eru allir vegir færir,“ segir hún. Það hafa verið annasamir dagar og vikur hjá Gretu undan- farið en hún er ákveðin í að reyna eftir fremsta megni að fylgjast með öllum þremur Eurovision-kvöld- unum í næstu viku. „Ég er að spila úti um allar triss- ur,“ segir Greta þegar við slógum á þráðinn til hennar. „Það er svo ótrú- lega margt búið að gerast. Ég verð með „show“ í Eldborg í Hörpu eftir viku. Það er fyrir skipafélagið Cele brity Cruise Line sem býður upp á þessa sýningu fyrir sérstaka VIP-gesti á þeirra vegum. Síðan verð ég með tvenna tónleika í Salnum í Kópavogi fyrir Oddfellow. Auk þess spila ég mikið við alls kyns fagnaði, afmæli, brúðkaup eða jarðarfarir. Það er alltaf eitthvað að gerast,“ segir Greta og bætir við að fljótlega liggi leiðin til New York þar sem hún mun syngja á tísku- sýningu sem haldin er fyrir baráttu- samtök gegn einelti sem nefnast Unicef against bullying. Á ferð og flugi „Eftir New York-ferðina verð ég í Danmörku áður en ég fer aftur um borð í Disney-skemmtiferðaskip. Ég býst við að fljúga fram og til baka að mestu leyti þetta sumarið í stað þess að vera alltaf um borð í skipinu,“ segir hún. „Næstu mán- uðir eru því þéttskipaðir hjá mér. Ég verð með annan fótinn heima og hinn í útlöndum. Þetta er æðislega gaman og það eru algjör forréttindi að fá að gera það sem manni finnst skemmtilegast.“ Greta tók þátt í Eurovision- keppninni í fyrra skiptið í Bakú árið 2012 og síðan aftur árið 2016. Hún segir að strax eftir fyrri keppnina hafi hún fundið fyrir auknum verk- efnum. Disney-skipafélagið hafði samband og bauð henni að vera með sýningu um borð í skemmti- ferðaskipinu Disney Magic en hún sigldi með skipinu í meira en eitt ár og síðan aftur með hléum. Það gaf henni kost á ferðalögum um heiminn á fljótandi fimm stjörnu hóteli. „Ég ætla ekki að vera hjá Disney af sama kraftinum og áður enda svo margt annað að gerast hjá mér. Til dæmis verð ég með tónleika í Líbanon í sumar,“ segir þessi kraftmikla söngkona og fiðlu- leikari. „Ég er einhvern veginn úti um allt.“ Svala toppar þetta Greta segist hugsa mikið til Svölu Björgvins þessa dagana. Hún veit hvernig dagar hennar eru í Kænugarði. „Við erum góðar vinkonur og erum í miklu sambandi. Við hittumst áður en hún fór út og spjölluðum um keppnina. Ég sagði henni frá minni reynslu og hvernig ég hefði upplifað keppnina. Svo gaf ég henni auðvitað eins góð ráð og ég gat. Það er gott að miðla af reynslu sinni en jafnframt benti ég á að þessi keppni er óútreiknanleg. Í raun getur maður ekkert gert annað en að gera sitt besta á sviðinu. Niðurstaðan í keppninni er í annarra höndum,“ segir Greta sem viðurkennir að það hafi verið sárt að komast ekki í aðalkeppnina. „Sérstaklega af því að við fengum frábær viðbrögð á staðnum og mikinn stuðning. Ég fann það líka eftir úrslitin að mörgum fannst þau ósanngjörn. Við fengum síðan ótrú- lega mikla fjölmiðlaathygli vegna þess að við komumst ekki áfram. Ég náði að nýta mér þá athygli á réttan hátt og hef fengið mörg tækifæri út á það.“ Þegar Greta er spurð hvort hún telji að Svala komist upp úr undan- keppninni, segist hún ekki þora að spá um það. „Það er algjörlega ómögulegt að svara því. En það er ekki nokkur vafi í mínum huga að hún á eftir að skila sínu upp í topp. Við þurfum að standa með henni sama hver úrslitin verða. Ég hlakka til að fylgjast með Svölu á þriðju- daginn,“ segir Greta og bætir við að hún gæti alveg hugsa sér að taka aftur þátt í keppninni á réttum for- sendum. „Ef rétta lagið kæmi upp í hendurnar á mér.“ Nýtt lag á leiðinni Greta ætlar ekki að vera með Euro- vision-partí komandi laugardag. Ástæðan er sú að hún verður með Disney-tónleikana í Hörpu daginn eftir. „Ég verð á stífum æfingum á laugardeginum auk annarra verk- efna. Hins vegar er búið að bjóða mér í nokkur partí og aldrei að vita nema ég reki nefið inn einhvers staðar. En það verður líklega ekki kósíkvöld hjá mér.“ Um þessa helgi ætlar Greta að reyna að taka smá kósíkvöld með fjölskyldunni í sumarbústað við Laugarvatn. „Ég verð með tvenna tón- leika í Salnum í dag fyrir Oddfellow. Á eftir bruna ég svo í bústaðinn. Ég reikna með að hlaupa smá í sveitinni og byggja mig upp. Síðan grillum við eitthvað gott,“ segir Greta en kærastinn, Elvar Karlsson, fær þá aðeins að sjá hana. „Hann er sjálfur mjög upp- tekinn alla daga í námi og starfi. Hann er að klára viðskiptafræði og verðbréfamiðlun og rekur að auki fyrirtæki.“ Greta er fyrir utan allt annað að semja lög á fullu. Hún ætlar að senda frá sér nýtt lag í sumar, fjörugt lag sem hún vonast til að verði sumarsmellur. Fyrir stuttu lék hún með Eurovision-stjörnunni Alexander Rybak í Eldborgarsal Hörpu. „Það var æðislegt. Við fengum frábær viðbrögð frá áhorfendum. Alexander er mjög hrifinn af Íslandi og honum fannst tónlistarviðbrögðin hér æðisleg. Hann hefur hug á að koma aftur. Við erum í góðu sambandi og ég á von á að við vinnum meira saman,“ segir Greta sem hlakkar mikið til næstu viku. Eurovision hefur veitt Gretu Salóme fjölmörg tækifæri sem hún hefði ekki annars fengið. MYND/GVA Greta Salóme með glæsilegt „show“ um borð í Disney-skemmtiferðaskipi. Elín Albertsdóttir elin@365.is Framhald af forsíðu ➛ NETVERSLUN HEILSUHUSID.IS Hollt og gott! 27.apríl – 8. maíFRÁBÆR TILBOÐ Sólgæti – ávallt gott verð og nú enn betra! Verð áður: 449 kr. Verð nú: 337 kr. Verð áður: 500 gr 250 gr 125 gr 125 gr 100 gr 250 gr 500 gr 250 gr 250 gr 489 kr. Verð nú: 367 kr. Verð áður: 869 kr. Verð nú: 652 kr. Verð áður: 598 kr. Verð nú: 449 kr. Verð áður: 559 kr. Verð nú: 419 kr. Verð áður: 509 kr. Verð nú: 382 kr. Verð áður: 509 kr. Verð nú: 382 kr. Verð áður: 629 kr. Verð nú: 472 kr. Verð áður: 699 kr. Verð nú: 525 kr. Verð áður: 569 kr. Verð nú: 427 kr. Verð áður: 469 kr. Verð nú: 352 kr. Verð áður: 409 kr. Verð nú: 307 kr. Verð áður: 379 kr. Verð nú: 284 kr. 25% 500 gr 500 gr Verð áður: 589 kr. Verð nú: 442 kr. 500 gr 500 gr 200 ml AFSLÁTTUR AF ÖLLU SÓLGÆTI 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C F -D A 8 0 1 C C F -D 9 4 4 1 C C F -D 8 0 8 1 C C F -D 6 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.