Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 9

Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 9
Ævintýralegur kosningaleiðangur Fyrir nokkrum árum síðan var Norðurslóð send neðanskráð frá- sögn af eftirminnilegum kosn- ingaleiðangri Dalvíkinga árið 1903. Sendandinn var Sigurjón Sigtryggsson á Siglufirði Svarf- dælingur að ætt og kunnur fræðavinur. Siguijón bauð blaðinu greinina til birtingar og fylgdu henni svo felld fororð: Grein þessi birtist o.s. frv. Grein þessi birtist í blaðinu „Einherji“ Siglufirði 21. júní 1946 og er eftir Friðleif Jóhanns- son frá Háagerði á Ufsaströnd nú til heimilis á Siglufírði. Tilgangurinn með grein þessari, er að forða frá glötun nokkrum fróðleik um seinustu opinberu Alþingiskosningar, sem fram fóru hér á landi þegar nafn hvers kjósenda var kallað upp og hann svaraði i heyrenda hljóði hverjum frambjóðenda hann greiddi atkvæði.“ Norðurslóð þakkar Sigurjóni sendinguna og góðan hug til blaðsins og birtir frásögn Friðleifs með ánægju. Breytt viðhorf Árið 1903 var síðasta árið, sem kosningar til Alþingis fóru fram opinberlega (kosið upphátt). Þá höfðu aðeins karlmenn 25 ára og eldri kosningarétt. Kosningin fór fram á öllu landinu, dagana frá 2. -6. júní. Þá voru í framboði í Eyja- íjarðarsýslu Klemenz Jónsson sýslumaður og bæjarfógeti á Ákureyri, Hannes Hafstein sýslumaður og bæjarfógeti á ísafirði og Stefán Stefánsson bóndi í Fagraskógi. Allir þessir frambjóðendur voru fylgjandi heimastjórnarstefnunni. J.V. Havsteen kaupm. á Akureyri var frændi Hannesar Hafsteins, og vildi af öllum mætti styðja frænda sinn til þess að ná kosningu í Eyjafjarðarsýslu. - Sendi hann því trúnaðarmenn út um sveitir til þess að mæla með H. Hafstein, sem þá var talinn mesta höfðingjaefni á þeim tímum. Hjá J.V.H. var þá verzlunar- maður Hannes Jónasson (nú bóksali á Siglufirði), ungur og ötull maður, sendur út um sveitir vestan Eyjafjarðar. Varð Hannesi allmikið ágengt, þó við ramman reip væri að draga. Því margir bændur voru tregir til að hverfa frá Stefáni bónda. - En hér voru sjáanlegir miklir yfirburðir hjá H. Hafstein, fram yfir hinn, eins og líka kom á daginn. I Eyjafjarðarsýslu átti að kjósa laugardaginn 6. júní á Akureyri, þangað varð því hver og einn kjósandi að sækja kjörfund. All flestir bændur út með firðinum fóru á kjörstað á hestum, en þeir, sem við sjóinn bjuggu, höfðu engin hross, og urðu þessvegna að fara á árabátum, því að þá voru hvorki vélbátar eða flugvélar eins og nú eru til ferðalaga. Eftir hádegi föstudaginn þann 5. júní 1903 lögðu 2 ára- bátar frá Dalvík, áleiðis til Akureyrar, á þeim voru 17 menn, allt kjósendur, til þess að mæta á kjörstað daginn eftir. Á þeim bátnum, sem fyrr lagði á stað voru 8 menn, og fór hann 2 stundum fyrr en sá síðari, sem á voru 9 menn. Þegar lagt var á stað frá Dalvík var logn og blíðuveður þar til komið var austur hjá Birnunesnöfum, en þá var komið ofsaveður af suðri, sem var beint á móti, út Eyjafjörðinn, og því engin tök til þess að halda ferðinni áfram. Var þessvegna það ráð tekið að setja bátinn á land á Litla- árskógssandi og bíða þar, ef ske kynni, að veðrinu slotaði. En fyrri báturinn náði til Hjalteyrar, og settist þar að. Nú víkur sögunni til þeirra, sem á síðari bátnum voru. Þeir bíða þar til seint um kvöldið, en ekki lægir veðrið og eru sumir mjög hugsandi yfir þessu Friðleifur Jóhannsson. ástandi, og vita, að hinir Svarf- dælir eru komnir til Akureyrar og ná í kosningu, sem byrja átti kl. 10 morguninn eftir. En nú sjá menn, að stórt gufuskip kemur utan fjörðinn, vestan við Hrísey.- Nú eru 2 menn fengnir þar á staðnum til þess að fara með bátinn í land, ef bátsmenn fengju far til Akureyrar með’skipinu. Þá er róið í veg fyrir skipið, sem hægir ferðina, svo nú er lagt að hlið þess og beðið um far fyrir 9 menn til Akureyrar. Svarið var stutt: „Velkomið. Verið fljótir um borð.“ „Látið bátinn fara í land.“ Öllu þessu var hlýtt. Allt gekk sem í sögu, 9 menn upp á þilfar, en 2 með bátinn í land. Nú brunaði skipið inn fjörðinn og inn fyrir Hjalteyri, en þá kom fram bátur sá, sem fyrr lagði á stað frá Dalvík ognáði Hjalteyri í hvassviðrinu, nú hægir skipið á sér, og mönnunum skipað að vera fljótir að hlaupa upp stigann, en vegna ofviðrisins, skipaði skipstjóri að sleppa bátnum, og voru þá 2 menn eftir í bátnum, og eitthvað af dóti þeirra. Þessir 2 menn sneru bátnum til lands og lentu á Hjalteyri og fengu hjálp til þess að setja bátinn upp en fóru svo gangandi til Akureyrar næsta morgun, og þótti þeim sín ferð all ill. Nú er til þess að taka að skip brunar inn Eyjafjörðinn bjarta vornóttina, á móti ofsaveðri af suðri, og leggst fyrir ankeri innarlega á Akureyrarhöfn, því þá var engin hafskipabryggja komin þar. Komu þá ferjumenn fram að skipinu og fluttu liðið í land, sem voru siglfirzkir borgarar, en skipið var „Minerva" hvalflutningaskip frá Önundarfirði, sem var um þetta leyti að sækja hvali til Siglufjarðar er skotbátarnir höfðu lagt þar til geymslu á firðinum. Höfðu Siglufjarðarkjósendur fengið skipið til þess að flytja þá á kjörstað, og fyrir góðvilja þeirra fengu bátshafnir þær, sem fyrr eru nefndar, far með skipinu í ofveðrinu til Akureyrar, án þess þó að spyrja eftir því, hvern mann við ætluðum að kjósa, (eins og stundum hefur komið fyrir). En í þetta sinn vorum við Dalvík- ingar á báðum bátunum, 17 menn, og Siglfirðingar samtaka með að kjósa Hannes Hafstein. Strax þegar á land var komið á Akureyri, dreifðust þá menn um bæinn, en þetta var um kl. 3 um nóttina, 6 menn af öðrum bátnum fóru á Hótel Akureyri, sem þá hafði verið opnað fyrir nokkrum Siglfirðingum, sem með s.s. „Minerva“ komu þá um nóttina. Þar voru þeir mestir gleðimenn séra Bjarni Þorsteins- son, Helgi Guðmundsson læknir og verzlunarstjóri Carl Júl. Grönvold, og ýmsir fleiri. Siglfirðingarnir höfðu fengið stofu sér á hótelinu, til þess að fá sér hressingu eftirsjóferðina, en þeir Dalvíkingar, sem á hótelinu voru, gátu ekkert rúm fengið, til þess að leggja sig fyrir í þennan næturpart, en gátu aðeins fengið að sitja inn í drykkjustofu hótelsins. Þegar Dalvíkingarnir höfðu setið litla stund í stofunni kemur Helgi Guðmundsson læknir til þeirra, og spyr þá hvort þeir vilji heldur „bjór eða brennivín". 5 af þessum kjósendum vildu heldur brennivín, því þeim var fremur hrollkalt (og voru það þá engir vínmenn), en einn þeirra hafði oft smakkað brennivín, en aldrei bjór, segir: „Eg skal þiggja einn bjór.“ Þá segir Helgi læknir: „Þetta er allt í lagi eins og þið viljið“, og fer en eftir litla stund kemur þjónn hótelsins með 5 staup af brennivíni og 1 flösku af bjór, sem tekið var við með þökkum. En þegar sá, sem bjórinn fékk í sinn hlut, fór að smakka, þá þótti honum lítið til hans koma, og vill helzt ekki drekka svona drykk, og grettir sig allan. En eftir all langan tíma er hann þó búinn að yfirvinna bjórinn og sagði, að sér hefði þótt hann vondur.- En rétt í þessu kemur Helgi læknir fram í stofuna aftur, og þakka þá allir fyrir veittan greiða,- En þá segir sá, sem bjórinn hlaut í sinn hlut: „Máske ég þiggi eitt staup.“ Þá hló Helgi læknir, og hinir líka, og samstundis var manninum veitt eitt staup af brennivini.- Þegar fram á laugardagsmorg- uninn kom og fólk komið á fætur í bænum, fengu ýmsir sér hressingu, en þá þurfti að gæta sín, og sinna manna vel, því þá var reynt að tala um fyrir mönnum á allan hátt,afbáðum flokkunum, ef ekki gat dugað með orðum, þá með veitingum, svo mótstöðumaðurinn féll í valinn og tekinn úr umferð. Á laugardagsmorgun kl. 10 byrjaði kosningin úti í stórum garði sunnan við verzlunarhús Guðm. Efterfölger á Akureyri. Þar var pallur reistur upp fyrir frambjóðendur og skrifara. Þá var byrjað á Öngulstaðahreppi, og svo fram Eyjafjörðinn, þá Saurbæjarhreppur, Hrafnagils- hreppur, svo Ákureyri, því þá var hún með sýslunni, þá Glæsi- bæjarhreppur, Ólafsfjarðar- hreppur og síðast Hvanneyrar- hreppur. Sýslum. Klemens Jónsson stóð á pallinum og las kjörskrá hvers hrepps eftir stafrófsröð, þannig að sýslu- maður kallaði upp nafn hvers kjósenda: „Hvern kjósið þér?“ Ef einhver kjósandi var ekki viðstaddur, þegar nafn hans var kallað upp, þá gat hann ekki kosið, fyrr en síðast, þegar sú kjörskrá var á enda, sem hann stóð á.- Allt gekk nú sæmilega þó voru stöku karlar teknir af lögreglunni úr umferð, og geymdir þar til allra síðast um kvöldið. En allmikill spenn- ingur var í mörgum, meðan á atkvæðagreiðslu stóð, og var þá hægðarleikur að fara mjögnærri um hver sigur bæri að kvöldi. Þegar fór að líða á daginn og komið var í úthreppana, þá var farið að halla á Hannes Hafstein, því allir kjósendur Svarfaðardalshrepps, sem var lang atkvæðamesti hreppurinn,- kusu allir Stefán Stefánsson, nema Dalvíkurmenn, sem stóðu allir saman 17 að tölu, um Hannes Hafstein, Ólafsfirðing- ar fylgdu Stefáni, en þaðan voru fá atkvæði.- En allir Siglfirð- ingar, sem á kjörstað komu þennan dag, fylgdu Hannesi Hafstein, sem mun hafa verið innan við 20 atkvæði,- Þegar allri atkvæðagreiðslu var lokið, þá lýsti Kl. Jónsson sýslumaður yfir því, að eftir hálftíma skyldi han tilkynna úrslitin. Þann tíma biðu bargir með óþreyju eftir fullnaðarúrslitum,- Þá voru margir farnir að verða allmikið ölvaðir, og allvíða hávaðasamt. En eftir hinn tiltekna tíma, kom Kl. Jónsson sýslumaður út á pallinn, og sagði, að nú væri endanlega búið að ganga frá kosningunni, og las því næst upp talningu, sem hér fer á eftir: Klemenz Jónsson, sýslu- maður og bæjarfógeti, 363 atkv. Hannes Hafstein, sýslumaður og bæjarfógeti 213 atkv. Stefán Stefánsson, bóndi 190 atkv. Voru því greidd alls 766 atkv. í allri Eyjafjarðarsýslu, Akureyri og Siglufirði. Þannig bar Hannes Hafstein sigur af hólmi (með 23 atkv. mun) þann 6. júní 1903, og varð fyrsti íslenzki ráðherra Islands, og barðist fyrir því að Island kæmist , í símasamband við önnur lönd, sem og líka varð. Þegar Klemenz Jónsson sýslumaður var búinn að lesa upp atkvæðatölurnar var hrópað margfalt húrra af H. Hafsteins-mönnum, en illur kurr og gremja var í liði Stefáns, en hann þurfti ekki lengi að bíða eftir þingsetu, því Kl. Jónsson varð landritari, þegar Hannes Hafstein varð ráðherra og sagði af sér þingmennsku, þá kom Stefán bóndi í staðinn.- Eftir að úrslitin voru tilkynnt, var farið að búa sig til heim- ferðar, þá strax um kvöldið, en það gekk fremur seint að tína menn saman, þá, sem með skipinu áttu að fara, því að marga þurfti að kveðja, og mjög svifasamt, því margir voru þá góðglaðir, og vildu helzt vera lengur,- Þó fór svo, að skipið fór kl. 2 á sunnudagsnóttina, og allir Siglfirðingar og Dalvík- ingar, sem með því komu. Var þá orðið hægviðri og fagurt að sigla út Eyjafjörð á móti vorsólinni, sem þá var að hefja sig úr hafi. Þegar skipið kom út að Litla-Árskógssandi, settu þeir út skipsbátinn, og fluttu Dalvíkingana í land, og Siglfirð- ingar og skipsmenn sem vakandi voru, kvaddir með þökk fyrir ferðina, og lagt af stað til Dalvíkur, en „Minerva“ setti á fulla ferð vestur á Siglufjörð. Fr. Jóh. Kveðja til Guðmanns Þann 27. nov. 1984, andaðist í Reykjavík Guðmann Þorgríms- son ávallt kendur við Tungufell í Svarfaðardal. Guðmann var ofurhugi, kunni vart að hræðast og talinn með harðduglegustu mönnum, sinnar samtíðar. Hann var fjallgöngumaður mikill og hefði efalaust náð langt í þeirri list, hefði hann haft yfír þeirri tækni að ráða, sem nú býðst á þvi sviði. Fjallaslóðir feta vann frœkinn mjög var talinn. Elliðanum eftir rann, eins og grundum smalinn. Kom hann sér til vina vel víðs á fyrri dögum. Býr nú hlýtt við hugarþel með hreystibrag órögum. Þegar vor um breiða byggð og blómskrúð fegurst skarta. Atthaganna taumlaus tryggð töfrar mannsins hjarta. Æskubyggð og óðal hans alltaf laðar drenginn. Kjarkurinn þess mæla manns þó, mjög til þurðar genginn. Sem farfuglinn hann síðar sest I Svarfdælskt tún, að vori þar unir hann sér aUrabest með ásl í hverju spori. Þegar heimi fór hann frá og fengust línur skírðar. Leyfðu honum Drottinn landið sjá, í Ijósi sumardýrðar. Ég votta börnum hans og fjöl- skyldum þeirra einlæga samúð. Guð blessi minningu hans. Bóndinn í Birkimel. NORÐURSLÓÐ - 9

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.