FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 14

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 14
starfsframa, launakjör og umbun í starfi - sem þrátt fyrir allt eru aðrir karlmenn? Ég þykist ekki vita svarið við þessum spurningum, en velti þeim upp hér af því ég tel þær vera gildar og tel að endurskoðendur af báðum kynjum, ættu að leita svars við þeim hjá sjálfum sér. Ef við vitum hvar lamirnar geta brotnað er líklegra að við göngum um af varúð og komum í veg fyrir óréttlæti. I raun og veru er ekki svo flókið að komast að því hvort tækifæri karla og kvenna séu jöfn í raun. Það eina sem þarf að gera er að bera saman starfsframa þess fólks sem komið hefur inn á vinnumarkaðinn síðustu tuttugu ár eða svo. Með réttu ættu karlar og konur af þeirri kynslóð að hafa náð sambærilegum árangri í starfi. Ef slíkur samanburður leiðir í Ijós að svo sé ekki er þörf á endurmati. Framtíð kvenna í endurskoðun Félag kvenna í endurskoðun er nauðsynlegur félagsskapur til að styrkja áhrif kvenna í endurskoðun. Þegar upp er staðið skiptir kyn endurskoðandans þó vitaskuld engu máli um hæfni hans eða getu. Þvf standa engin rök til annars en að stelpur og strákar sem vilja gera endurskoðun að ævistarfi sínu eigi nákvæmlega sömu möguleika á að gera þann draum að veruleika og ná langt á eigin verðleikum. Það er hlutverk okkar allra að tryggja að það sjálfsagða réttlæti sé sá raunveruleiki sem við búum við. Ingunn H. Hauksdóttir Annað starfsumhverfi Guðmundur Páll Atlason, er löggiltur endurskoðandi í Bandaríkjunum og starfar hjá PricewaterhouseCoopers hf. á íslandi Kynningamefnd FLE hafði samband við Guðmund Pál Atlason í þeim tilgangi að forvitnast um muninn á starfsumhverfi endurskoðenda á íslandi og í Bandaríkjunum. Guðmundur er fæddur hér á íslandi og flutti níu ára gamall til Albany í New York fylki. Flann kom reglulega heim á sumrin og dvaldi hjá fjölskyldu sinni hér á landi og gat þannig haldið við bæði tengslum og tungumáli. Flann útskrifaðist úr State University of NY með BS gráðu í endurskoðun. Námið var erfitt og hann orðinn þreyttur á staglinu og réði sig því í óskyld verkefni hjá General Electric Company (GE). Þar vann hann margvísleg verkefni og fékk góða tilfinningu fyrir rekstri fyrirtækja og þeirri kostnaðarhugsun sem býr að baki góðum rekstri. Hann vann líka töluvert með endurskoðendum fyrirtækisins á þessum tíma og þetta varð til þess að áhugi hans á faginu vaknaði að nýju. Þegar hann fékk svo tækifæri til að vinna við endurskoðun hjá PricewaterhouseCoopers í Boston greip hann það, en valdi svo að Ijúka löggildingarprófinu í NY fylki til þess að geta áritað þar. Hann fékk síðan tækifæri til að koma hingað og vinna hjá PwC á íslandi og kynnast hvernig endurskoðun er háttað hér á landi. Það eru því hæg heimatökin hjá Guðmundi Páli að gera samanburð í þessa átt. Löggilding endurskoðenda í Bandaríkjunum Menn fara oftast þessa hefðbundnu leið að taka BS próf í fjármálum eða meistaragráðu, fara svo í starfsnám hjá fyrirtækjum og að lokum í löggildingarprófið. Menn þurfa svo að vinna í 2 ár áður en þeir fá að fara í prófið, en það er þó svolítið mismunandi eftirfylkjum. AICPA (American Institute of Certified Public Accountants) sér um að búa til spurningar fyrir prófið og samræma milli fylkja, en umsjónarmaður prófsins er NASBA (National Association of State Board of Accountancy). Það finnast allar upplýsingar um prófið og mismunandi reglur fylkja á www.nasba.org. Prófið er í 4 hlutum: endurskoðun, viðskiptum, fjármálum og regluverki. Inn í þetta fléttast svo skattamál og fleira sem að faginu snýr. Smám saman er verið að ýta löggildingunni meira inn í IFRS staðlana. Löggildingin gildir formlega í því fylki sem prófið fer fram en gildir í raun alls staðar í Bandaríkjunum en sækja þarf um sérstakt leyfi til að fá að árita í öðrum fylkjum og greiða eitthvað fyrir það. Starfsumhverfi endurskoðenda Að mörgu leyti má segja að Evrópa sé komin framar í staðlamálum og innleiðingu þeirra en Bandaríkin. Endurskoðendur sem hafa þekkingu á IFRS hafa öðlast reynslu í að túlka undirliggjandi hugtök að baki staðlana og efla heildarmyndina sem á að koma fram í þeirra vinnu. í Bandaríkjunum eru staðlar meira notaðir sem umgjörð eða rammi um starfið. Annar munur sem hægt er að finna í Bandaríkjunum er áritað í nafni endurskoðunarfyrirtækis en ekki einstaklings, en hér á landi sést að ábyrgðin er fyrst hjá endurskoðandanum sjálfum sem einstaklingi og síðan hjá endurskoðunarfyrirtækinu. Endurskoðendur á íslandi bera því 14 • FLE blaðiðjanúar2010

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.