FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 33

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 33
Ef uppi eru aðstæður sem ógna fylgni við grundvallarreglurnar skal endurskoðandi bregðast við með viðeigandi hætti. Úrlausnaraðferðir í starfsumhverfi endurskoðenda geta skapast aðstæður sem ógna fylgni við grundvallarreglurnar. Ógerlegt er að skilgreina sérhverjar þær aðstæður sem skapa slíkar ógnanir og tilgreina viðeigandi varúðarráðstafanir. Þar að auki getur eðli verkefna verið mismunandi og fyrir vikið geta ógnanir verið margvíslegar og krafist ólíkra varúðarráðstafana. Siðareglurnar skapa ramma sem hjálpar endurskoðanda að bera kennsl á, meta og bregðast við ef fylgni við grundvallarreglurnar er ógnað. Endurskoðanda er skylt að meta allar ógnanir með hliðsjón af grundvallarreglunum þegar hann veit eða ætti með réttu að vita um aðstæður eða sambönd sem geta spillt fylgni við grundvallarreglurnar. Endurskoðandi skal hafa í huga eðli og umfang einstakra þátta við mat á vægi ógnunar. Ef endurskoðandi getur ekki beitt viðeigandi varúðarráðstöfunum skal hann hafna eða hætta viðkomandi þjónustu, eða beri nauðsyn til, slíta sambandi við viðskiptavin. í B og C hluta siðareglnanna eru dæmi sem eiga að sýna hvernig á að beita úrlausnaraðferðunum. Dæmin eru ekki tæmandi listi yfir allar þær aðstæður sem endurskoðandi getur lent í og gætu ógnað fylgni hans við grundvallarreglurnar og skal ekki túlka þau þannig. Þar af leiðir að endurskoðanda nægir ekki að fara eingöngu eftir þessum dæmum, heldur skal beita úrlausnaraðferðunum við hverjar þær aðstæður sem endurskoðandi lendir í. Ógnanir og varúðarráðstafanir Margbreytilegar aðstæður geta ógnað fylgni við grunvallarreglurnar. Flokka má helstu ógnanir á eftirfarandi hátt: ■ Eigin hagsmunir vegna fjárhagslegra eða annarra hagsmuna endurskoðanda eða einstaklinga í nánustu fjölskyldu hans eða nánustu skyldmenna. ■ Sjálfsmatsógnun sem getur skapast þegar endurskoðandi þarf að leggja sjálfstætt mat á eigin niðurstöður. ■ Málsvarnarógnanir sem geta skapast þegar endurskoðandi heldur fram afstöðu eða skoðun að því marki að ógnað gæti hlutlægni hans síðar. ■ Vinfengisógnanir sem geta orðið þegar endurskoðandi hefur of mikla samúð með hagsmunum annarra vegna náinna tengsla. ■ Þvingunarógnanir sem geta orðið þegar endurskoðandi er hindraður í að starfa af hlutlægni vegna hótana, raunverulegra eða ætlaðra. I B og C hluta reglnanna eru tiltekin dæmi um aðstæður sem geta skapað slíkar ógnanir fyrir endurskoðendur hvort sem þeir starfa við fagið eða ekki. Endurskoðendur sem starfa við endurskoðun geta einnig við tilteknar aðstæður nýtt sér leiðbeiningar í C-hlutanum. Varúðarráðstafanir sem geta eytt eða dregið úr slíkum ógnunum þannig að þær verði ásættanlegar, skiptast í tvo meginflokka: * Varúðarráðshafnir sem starfsstéttin sjálf setur sér, eða lög og reglur ná til, svo sem kröfur um menntun, þjálfun, reynslu, notkun faglegra staðla, faglegt eða opinbert eftirlit og agareglur. ■ Varúðarráðstafanir í starfsumhverfinu, hvort sem endurskoðendur starfa við fagið eða ekki. Fjallað er um slíkar varúðarráðstafanir í B- og C- hluta reglnanna. Við úrlausn siðferðilegra álitamála skal endurskoðandi hafa ( huga viðeigandi staðreyndir og þær grundvallarreglur sem tengjast viðkomandi álitaefni. Ef ekki hefur verið leyst úr siðferðilegu álitamáli þrátt fyrir að leitað hafi verið allra leiða til úrlausnar, skal endurskoðandi neita að tengjast viðkomandi máli sé þess nokkur kostur. Endurskoðandi kann að ákveða að við slíkar aðstæður sé rétt að draga sig út úr verkefnateymi eða tilteknu verkefni eða að hætta að vinna fyrir viðskiptavin, endurskoðunarfyrirtækið eða vinnuveitandann. B hluti - Endurskoðendur sem starfa við endurskoðun í þessum kafla siðareglnanna er útskýrt hvernig starfandi endurskoðendur eiga að nota úrlausnaraðferðir í A-hlutanum. Dæmunum sem sett eru þar fram er ekki ætlað að vera tæmandi listi yfir allar þær aðstæður sem endurskoðandi kann að lenda í og geta ógnað fylgni hans við grundvallarreglurnar. Það er því ekki nægilegt fyrir starfandi endurskoðanda að styðjast eingöngu við dæmin heldur skal úrlausnaraðferðunum beitt við þær tilteknu aðstæður sem upp koma. Endurskoðandi skal ekki taka þátt í neinum viðskiptum, starfsemi eða atferli sem rýrir eða gæti kastað rýrð á heilindi, hlutlægni eða orðspor starfsgreinarinnar og væri því ósamrýmanlegt veitingu faglegrar þjónustu. B- hluti reglnanna skiptist í nokkra kafla (kaflar 210 - 280) sem fjalla um tilteknar aðstæður sem geta skapað ógnanir við grundvallarreglurnar og hvernig endurskoðandi getur brugðist við, svo sem: Samþykki viðskiptavinar-Afla upplýsinga um viðskiptavininn og kanna orðspor hans Samþykki verkefnis - Meta hvort fullnægjandi þekking er fyrir hendi og nægilegur fjöldi starfsmanna Skipt um endurskoðanda - Kanna ástæður hjá fyrri endurskoðanda áður en nýtt viðskiptasamband er samþykkt. FLE blaðið janúar 2010 *33

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.