Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 14.–17. október 201612 Fréttir Ó hætt er að segja að mál hins fimm ára gamla Eyjólfs Kristins Elvusonar hafi vak­ ið mikla athygli. Í byrjun mánaðarins kvað Héraðs­ dómur Reykjavíkur upp þann dóm að drengurinn skyldi afhentur norsk­ um barnaverndaryfirvöldum. Ráð­ gert er að honum verði komið í fóstur til 18 ára aldurs hjá norskri fjöl­ skyldu. Móðir drengsins og móður­ amma hafa verið í forsvari í fjölmiðl­ um vegna málsins. Lítið hefur hins vegar farið fyrir hlut föðurins, Sigur­ jóns Elíasar Atlasonar, og gefið hefur verið í skyn að hann hafi ekki afskipti af barninu. Ekkert gæti verið fjarri sannleikanum. Sigurjón Elías er bú­ settur í Danmörku en blaðamaður DV settist niður með móður hans, Guðnýju Helgu Þórhallsdóttur, og fór yfir þeirra hlið. Mæðginin undirbúa forræðismál gegn norskum yfirvöld­ um ef Eyjólfur verður sendur í fóstur ytra. Baráttunni um framtíð drengs­ ins er hvergi nærri lokið. Afskiptaleysið á Alþingi „Eyjólfur á föður og föðurfjölskyldu sem elskar hann og þráir að fá hann til sín. Það hefur verið ótrúlegt sárt að fylgjast með umfjölluninni um meint afskiptaleysi og steininn tók úr þegar því var haldið fram í ræðu­ stól Alþingis,“ segir Guðný Helga Þórhallsdóttir, föðuramma Eyjólfs. Hún vísar til ræðu Ragnheiðar Rík­ harðsdóttur sem vakti athygli á mál­ inu í þinginu en fullyrti að faðirinn byggi í Danmörku og hefði engin af­ skipti af drengnum. Sigurjón Elías og barnsmóðir hans voru barnung þegar sonur þeirra, Eyjólfur, kom í heiminn – hann átján ára og hún sextán ára. Samband þeirra var skammvinnt og móðir Eyjólfs fékk forræðið yfir drengnum. „Sigurjón hefur alltaf reynt að hitta Eyjólf eins oft og mögulegt hefur verið. Þau bjuggu bæði hérlendis þar til Eyjólfur var tveggja ára gamall,“ segir Guðný Helga. Sambandið varð minna eftir að drengurinn flutti út til Noregs ásamt móður sinni og fjöl­ skyldu hennar. „Þeir hafa aðallega verið í sambandi í gegnum síma og Facetime. Hins vegar fór Sigur­ jón til Noregs um jólin 2014 að hitta Eyjólf og síðan aftur um sumarið 2015. Þá dvaldist hann þar í heilan mánuð og naut gæðastunda með syni sínum. Það er kært milli þeirra feðga.“ Guðný Helga dregur upp símann sinn og sýnir blaðamanni hjartnæmt myndskeið af því þegar Sigur jón og Eyjólfur hittast í Noregi. Þar hleypur drengurinn í faðm föður síns og gleði hans er nánast áþreifanleg. Vildi vera nær syni sínum Undanfarin þrjú ár hefur Eyjólfur verið að mestu í umsjón móð­ urömmu sinnar, Helenu Brynj­ ólfsdóttur. Móðir hans leiddist út í óreglu í Noregi og fljótlega fór norska barnaverndin að hafa af­ skipti af henni. „Það hefur alltaf reglulega komið til tals undanfarin ár að Sigurjón fengi sameiginlegt forræði yfir Eyjólfi. Það gekk svo langt að síðustu jól var sent bréf til Noregs með undirskrift Sigurjóns og stimpli sýslumanns um sam­ eiginlegt forræði. Móðirin átti bara eftir að skrifa undir en því miður gekk það aldrei í gegn.“ Guðný Helga harmar það mjög því sam­ eiginlegt forræði foreldranna hefði þýtt að Sigurjón Elías hefði fengið forræði yfir syni sínum þegar móðir drengsins var svipt því. Sigurjón Elías kynntist íslenskri stúlku fyrir rúmi ári. Sú hafði alist upp í Danmörku og átti þar fjöl­ skyldu. Unga parið ákvað að flytja út til Danmerkur, nánar tiltekið Fjóns. Þar stundar Sigurjón Elías nám af kappi og hefur komið sér vel fyrir. „Að vera nær syni sínum í Noregi lék stórt hlutverk í þeirri ákvörðun. Kærasta hans styður hann fullkom­ lega í því,“ segir Guðný Helga. Kald­ hæðni örlaganna olli því að Sigur­ jón Elías var varla búinn að koma sér fyrir í Danmörku þegar að móð­ uramma Eyjólfs flúði með drenginn til Íslands undan norsku barna­ verndinni. „Við fórum öll saman til Noregs í maí og dvöldumst þar í vikutíma. Við fengum að hitta n Faðir Eyjólfs undirbýr forræðismál gegn norsku barnaverndinni n Amman sár út í alþingismenn Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Hann ljómaði allur þegar hann fékk að sjá bróður sinn í fyrsta skipti „EyjÓlFur á Föður sEm ElskAr HAnn“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.