Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Síða 2
Helgarblað 9.–12. desember 20162 Fréttir
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
G
ufunes verður ventill fyrir
ungt fólk sem kýs grósku
og borgarbrag í stað út
hverfa og þar verður blönduð
byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnu
rekstur, skapandi iðnað, menn
ingu, menntun, sýningar og atburði.
Þá verða ferjusamgöngur á milli
Gufuness og miðborgarinnar þar
sem meðal annars er gert ráð fyrir
að fólk geti tekið með sér reiðhjól.
Þetta er samkvæmt vinnings
tillögu í hugmyndasamkeppni
Reykjavíkurborgar um Gufunes
svæðið, en verðlaunin voru afhent
í Spönginni í Grafarvogi á fimmtu
dag. Sex tillögur bárust og bar arki
tektastofan jvantspijker + Felixx
sigur úr býtum. „Vinningstillagan
sýnir einstaklega vandaða vinnu og
tekst það vandasama verk að vera
frumleg á sama tíma og hún fer vel
með anda staðar. Þetta er sannfær
andi og raunhæf tillaga með skýra
heildarhugmynd,“ segir í umsögn
dómnefndar um vinningstillöguna.
Það var í mars 2013 sem borgar
stjóri skipaði hóp til að fjalla um
tækifærin í Gufunesi. Í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg segir að áfram
haldandi skipulagsvinna á svæðinu
sé ekki bundin við þátttakendur né
verðlaunahafa eingöngu. Talsverðar
breytingar á starfsemi í Gufunesi
hafa þegar verið ákveðnar. Reykjavík
Studios hefur keypt gömlu Áburðar
verksmiðjuna og hyggst reka þar
kvikmyndaver. Þá hefur verið samið
við Íslensku gámaþjónustuna um að
flytja starfsemi sína úr Gufunesi upp
á Esjumela. n
ritstjorn@dv.is
Ferjusamgöngur
frá Gufunesi
Hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið
Uppgjör Finnboga:
„Það sem ég gerði
var óafsakanlegt“
n Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir ógnandi
tilburði n Ræðir þunglyndið, ADHD og prófið sem
bendir til þess að hann sé á einhverfurófi
Þ
etta er ansi hörð lexía. Það
sem ég gerði var óafsakan
legt og ég sé rosalega eftir
þessu. Hegðun mín var gjör
samlega út úr korti,“ segir
útgerðarmaðurinn Finnbogi Vikar,
sem í vikunni sem leið var dæmdur
í þrjátíu daga skilorðsbundið fang
elsi fyrir að hóta hafnarverði líf
láti og ýta við honum með ógnandi
hætti. Þá verður brátt tekið fyrir
mál gegn Finnboga í Héraðsdómi
Norðurlands eystra þar sem hann
er sakaður um að hafa hótað starfs
manni Kviku banka. „Ég harma þess
ar uppákomur mjög og hef verið að
taka á mínum málum. Ég hef glímt
við þunglyndi undanfarin ár og ný
lega var ég greindur með ADHD,
sem gæti hafa ýtt undir þessa hegð
un mína,“ segir Finnbogi Vikar. Þá
upplýsir hann blaðamann um að
hafa tekið próf sem bendir til þess
að hann sé á einhverfu rófi sem geti
skýrt ýmsa árekstra í samskiptum við
annað fólk í gegnum árin.
Bumban fyrirferðarmikil í
dómsal
Atvikið í tengslum við hafnarvörðinn
átti sér stað í maí á síðasta ári. Í
dómi Héraðsdóms kemur fram
að Finnbogi hafi látið ljót orð falla
þegar hann kom að landi eftir túr en
þá biðu starfsmenn Fiskistofu eftir
honum og óskuðu eftir afladagbók.
Hafnarvörðurinn var skammt frá og
sakaði Finnbogi hann um að hafa
verið að hlera samskiptin. „Það má
segja að þetta hafi verið lokapunkt
urinn á langri sögu erfiðra sam
skipta. Ég var þreyttur og pirraður
eftir erfiðan túr og var mjög langt
niðri andlega á þessum tíma,“ segir
Finnbogi. Að hans sögn missti hann
gjörsamlega stjórn á sér og endaði
með því að ausa svívirðingum yfir
hafnarvörðinn og reka magann í
manninn.
„Ég viðurkenndi að hafa rekið
bumbuna í hann og ég sá mjög
eftir að hafa gert það enda bumban
orðinn allsvakalega stór, kannski var
ég heppinn að verða ekki kærður fyr
ir morðtilraun líka út af bumbunni,“
segir Finnbogi og kveðst þakklátur
dómaranum fyrir að hafa metið það
til refsilækkunar að hann hafi iðrast
og beðist strax afsökunar. „Ég mat
það mikils við brotaþola og vitni að
það var tekið fram í réttarhöldun
um.“
Finnbogi bætir við að dágóður
tími hafi farið í að ræða bumbuna í
réttarsalnum og eftir því sem á þau
leið varð Finnboga starsýnt á mag
ann á sér.
„Bumban er orðin ansi stór og ég
er búinn að setja mér það markmið
að minnka hana verulega. Ég otaði
henni að hafnarverðinum og myndi
telja það talsvert minna ógnandi en
að ýta brjóstkassanum í einhvern,“
segir Finnbogi. Hann vísar því á bug
að hafnarvörðurinn hafi raun
verulega óttast um líf sitt eins
og hann hélt fram fyrir dómi.
„Hann kom í nokkur skipti upp
í fiskvinnslu til mín eftir þetta og
stundum vorum við þar einir,“
segir Finnbogi. Honum hafi
þótt vænt um að vitnin hafi fyrir
dómi sérstaklega minnst á það
að hann hafi beðist afsökunar á
orðum sínum.
Brjálaður út af bónusum
„Ég gerði það sama þegar ég
missi mig gagnvart starfsmanni
Kviku banka,“ segir Finnbogi.
Það atvikaðist þannig að hann
hafði lesið frétt um himinháa
bónusa ALMC og orðið reiður
mjög. „Það fauk verulega í mig út
af þessu óréttlæti og ég fann því
símann hjá ALMC og hringdi. Ég
hafði ekki hugmynd um að þetta
væri númerið hjá Kviku banka og
ég jós skömmum yfir stúlkuna í
símanum,“ segir Finnbogi. Þegar hon
um rann reiðin hafi hann síðan haft
aftur samband og beðist afsökunar
á hegðun sinni. Sú afsökunarbeiðni
dugði ekki til og fljótlega verður mál
ið tekið fyrir dóm. „Það er óheyrilega
sárt að hafa misst sig í nokkrar mín
útur og það hafi endað með þessum
hætti,“ segir Finnbogi.
„Ég hef verið að vinna mikið í
sjálfum mér undanfarið og ætla
að ná heilsu aftur. ADHDgrein
ingin var talsverður léttir því hún út
skýrði ýmislegt í fari mínu sem ég
hef lent í vandræðum með og þarf
að bæta. Þá er það sérstaklega hvat
vísin, núna myndi ég telja upp á 10,
jafnvel hundrað í sambæri legum
aðstæðum. Ég er að læra að lifa með
þessu,“ segir Finnbogi. Hann er ný
komin af heilsuhæli og hyggur á
aðra innlögn fljótlega.
Þetta var ekki eina greiningin
sem Finnbogi fékk því að hans sögn
bendir margt til þess að hann sé
á einhverfurófi. „Ég tók próf sem
bendir til þess. Ég hef síðan ver
ið að kynna mér ýmislegt um ein
hverfu og fara yfir samskipti mín við
annað fólk. Þau hafa yfirleitt reynst
mér erfið og þegar ég horfi til baka
þá sé ég ákveðið munstur í þessum
samskiptum. Ég vildi óska þess að
ég hefði vitað af þessum takmörk
unum mínum fyrr,“ segir Finnbogi
einlægur. n
Finnbogi Vikar Var nýlega dæmdur í 30
daga fangelsi fyrir að ógna hafnarverði auk
þess sem annað dómsmál gegn honum er
yfirvofandi. Hann leggur spilin á borðið í
samtali við DV.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is