Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Qupperneq 4
Helgarblað 9.–12. desember 20164 Fréttir
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir
Kjararáðsfólk fær 75% hærri
desemberuppbót en almúginn
n Hækkað um 33 þúsund milli ára n Hækkun til launafólks nemur 4.000 krónum
K
jörnir fulltrúar og aðr-
ir þeir sem heyra und-
ir úrskurðarvald kjararáðs
fá ríflega 75 prósentum
hærri desember uppbót en
launafólk á hinum almenna vinnu-
markaði. Á meðan launafólk al-
mennt fékk um 5 prósentum hærri
desember uppbót í ár en í fyrra sam-
kvæmt kjarasamningum þá hækk-
aði uppbótin til þeirra sem undir
kjararáð heyra um 22 prósent milli
ára. Ráðamenn fá því sem fyrr um-
talsvert ríkulegri jólabónus en al-
múginn. Nýlegar launahækkan-
ir kjararáðs til handa þjóðkjörnum
fulltrúum hafa sætt harðri gagnrýni.
Langt umfram launafólk
Algeng upphæð desemberuppbót-
ar samkvæmt kjarasamningi hjá
starfsmönnum á hinum almenna
vinnumarkaði, ríkisstarfsmönnum
og fleirum er 82 þúsund krónur, en
var 78 þúsund krónur í fyrra. Það
gerir aðeins um fjögur
þúsund króna hækkun
eða sem nemur 5
prósentum.
Allir þeir sem
heyra undir
kjararáð fengu
hins vegar
181.868 krónur í
desemberuppbót
nú um mánaða-
mótin. Það er 22 pró-
sentum hærri upphæð
en í fyrra þegar hún var 148.542, eða
sem nemur ríflega 33 þúsund krón-
um. Samkvæmt reglum kjararáðs
um starfskjör fá þeir sem taka laun
samkvæmt úrskurði þess greiddar
19 einingar í desemberuppbót sam-
kvæmt launaflokki 136 í launatöflu
kjararáðs nr. 502 sem gerir nú 9.572
krónur, alls 181.868 krónur.
Í fyrra fjallaði DV um að kjara-
ráðsfólk fengi 62 prósentum hærri
desemberuppbót en hinn dæmi-
gerði launamaður en eins og sjá
má þá hefur orðið veruleg hækk-
un þarna á. Ástæða hækkunarinn-
ar er að frá 1. desember færðist við-
miðunareiningin úr launaflokki 132
upp í launaflokk 136. Þar sem des-
emberuppbótin miðast við tiltek-
inn launaflokk í töflu kjararáðs þá
hækkar hún samhliða ákvörðunum
kjararáðs um hækkanir.
Reiðialda vegna mikilla hækkana
Mikil reiði greip um sig fyrir
nokkrum vikum þegar greint var
frá nýjustu ákvörðun kjararáðs
um að hækka laun þjóðkjör-
inna fulltrúa, þ.e. þingmanna, ráð-
herra og forseta Íslands. Þá hækk-
uðu laun þeirra um hundruð
þúsunda á mánuði, langt umfram
almenna launaþróun. Ákvörðun
kjararáðs, andartökum eftir kosn-
ingar, vakti hörð viðbrögð og var
harðlega gagnrýnd af almenningi,
forsvarsmönnum verkalýðsfélaga
og jafnvel ráðamönnunum sjálfum.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, lýsti því meðal annars yfir að
hann myndi láta hækkunina renna
til góðs málefnis á meðan ákveðnir
þingmenn hafa velt því fyrir sér að
beita sér gegn ákvörðuninni. Ljóst
er að hærri desemberuppbót lagðist
því ofan á mun hærri laun hjá kjörn-
um fulltrúum nú um mánaðamótin.
Rétt er að benda á að desember-
uppbótin er greidd þeim sem er í
100 prósent starfi á almanaksárinu
til 31. október. Hafi viðkomandi
gegnt hlutastarfi eða unnið hluta
úr ári skal honum greitt hlutfalls-
lega samkvæmt reglum kjararáðs.
Af því leiðir að nýkjörnir þingmenn
fá væntanlega ekki fulla desember-
uppbót, en þeir sem áður sátu fengu
uppbótina að fullu greidda. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is Svona hækkuðu laun kjörinna fulltrúa
Við nýjustu ákvörðun kjararáðs
Þingmenn: 766.500 kr. á mánuði í 1.101.194 kr.
Ráðherrar: 1.347.456 kr. á mánuði í 1.826.273 kr.
Forsætisráðherra: 1.490.952 kr. á mánuði í 2.021.825 kr.
Forseti Íslands: 2.480.340 kr. á mánuði í 2.985.000 kr.
F
ulltrúum flokkanna fimm, sem
fundað hafa um hugsanlegt
ríkis stjórnarsamstarf síðast-
liðna viku, mun hafa brugð-
ið talsvert við framlagningu fjárlaga-
frumvarps síðastliðinn miðvikudag.
Fulltrúar flokkanna munu, eftir að
frumvarpið var lagt fram, hafa gert
sér grein fyrir að þörf væri á veru-
lega aukinni tekjuöflun ríkisins. Síst á
þetta að sögn við um fulltrúa Vinstri
grænna sem bent höfðu á þá stöðu
áður, í fyrri viðræðum flokkanna.
Upp úr þeim viðræðum slitnaði með-
al annars vegna þess að Vinstri græn
héldu fast við tillögur sínar í skatta-
málum og tekjuöflun. Samkvæmt
heimildum DV er talið að staða rík-
isfjármála, eins og hún birtist í fjár-
lagafrumvarpinu, auki heldur líkurn-
ar á að flokkarnir geti náð saman. Það
mun þó mikið bera í milli ennþá.
Birgitta Jónsdóttir, Pírati, segir að
hún eigi ekki von á öðru en að við-
ræðum verði framhaldið í dag og
áfram. Það kæmi henni „verulega á
óvart“ ef upp úr þeim myndi slitna.
„Það eru allir í þessu af heilum hug
og á meðan svo er vinnum við þetta
bara eins og okkur þykir best,“ segir
Birgitta og bætir við að hún líti ekki
svo á að nein eðlisbreyting muni
verða á viðræðunum, verði þær
formlegar. „Við erum að róa að því
öllum árum að koma saman ríkis-
stjórn. Við þurfum bara að sjá hvort
við komumst yfir ákveðna sársauka-
þröskulda, hvort við getum náð
lendingu í þessum erfiðu málum,
áður en við hefjum formlegar við-
ræður.“ n
freyr@dv.is
Brugðið vegna
fjárlagafrumvarps
Fimm flokka viðræðum framhaldið