Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 30
Helgarblað 9.–12. desember 201626 Skrýtið
E
itt dularfyllsta mál banda-
rískrar flugsögu er atvik
sem varð um borð í flug-
vél Northwest Orient-flugfé-
lagsins þann 24. nóvember
árið 1971. Þann dag rændi maður,
sem er enn ófundinn 45 árum síðar,
flugvél flugfélagsins og tókst á ótrú-
legan hátt að komast undan með
200 þúsund Bandaríkjadali með því
að stökkva út úr flugvélinni. DV rifjar
hér upp þessa mögnuðu sögu og
nýlega opinberun sem gæti varpað
ljósi á málið.
„Fröken, þú ættir að
líta á miðann“
Þessi dagur byrjaði eins
og allir aðrir dagar. Far-
þegar sem voru á leið í
hefðbundið 30 mínútna
áætlunarflug milli borg-
anna Portland og Seattle
innrituðu sig og var einn
þeirra maður að nafni
Dan Cooper.
Cooper þessi, sem var
með svarta skjalatösku
meðferðis, hafði keypt
sér miða aðra leiðina frá
Portland til Seattle. Að
svo búnu gekk hann um
borð og settist í sæti 18C
þar sem hann kveikti í
síga rettu, pantaði sér Bourbon-viskí
og sódavatn. Þegar allir voru bún-
ir að fá sér sæti gerðu flugstjórarn-
ir sig reiðubúna til flugtaks. Um það
leyti sem vélin var að hefja sig til
flugs rétti Cooper flugfreyju, sem sat
rétt hjá, miða. Flugfreyjan, Florence
Schaffner, taldi að á miðanum væri
einfaldlega að finna símanúmer ein-
mana manns og stakk hún miðan-
um, ólesnum, ofan í tösku. „Fröken,
þú ættir að líta á miðann. Ég er með
sprengju,“ sagði dularfulli maður-
inn, Dan Cooper, við flugfreyjuna.
Hún dró miðann upp, renndi yfir
hann og sá að maðurinn var ekki að
grínast. Í kjölfarið hófst atburðarás
sem er lyginni líkust.
Hvað nákvæmlega stóð á mið-
anum er ekki enn vitað með fullu
þar sem Dan tók miðann til baka.
Schaffner sagði þó síðar að á hon-
um hefðu komið fram upplýsingar
um að sprengju væri að finna í
skjalatöskunni. Schaffner settist hjá
Cooper og spurði hvort hún mætti
líta ofan í töskuna. Cooper varð við
beiðninni og opnaði hana nægjan-
lega mikið til að Schaffner sæi víra
og annað tilheyrandi. Í kjölfarið út-
listaði Cooper hverjar kröfur hans
væru: Hann vildi fá 200 þúsund
Bandaríkjadali í peningum (rúm-
lega eina milljón dala, ríflega 100
milljónir króna á núverandi gengi),
tvær fallhlífar og að eldsneytis-
bíll yrði staðsettur á flugbrautinni í
Seattle þegar vélin myndi lenda. Þar
vildi hann fá peningana og fallhlíf-
arnar áður en vélin myndi hefja sig
aftur til flugs.
Ýmsar kröfur
Schaffner fór með þessi skilaboð til
flugstjóra vélarinnar, William Scott,
sem hafði umsvifalaust samband
við flugturninn í Seattle. Öðrum 36
farþegum sem um borð voru var til-
kynnt að komunni til Seattle yrði
seinkað vegna smávægilegra tækni-
vandamála. Forstjóri Northwest-
flugfélagsins var settur í málið og
hann heimilaði að orðið yrði við
kröfum Coopers. Hvatti hann um
leið starfsmenn flugfélagsins til að
vinna með Cooper og verða við öll-
um hans óskum. Vélin hringsólaði
yfir Seattle næstu tvo tímana á með-
an bandaríska alríkislögreglan, FBI,
skoðaði málið og á meðan unnið var
að því að útvega peningana og fall-
hlífarnar sem Cooper vildi.
Þegar allt var klappað og klárt var
Cooper tilkynnt að nú væri allt klárt
fyrir lendinguna í Seattle. Klukkan
17.39 að staðartíma var vélinni lent
í Seattle. Að svo búnu sagði Cooper
flugstjóranum að aka vélinni
á afskekktan stað á flugvell-
inum og slökkva ljósin í flug-
stjórnarklefanum svo leyni-
skyttur lögreglu sæju ekki inn
í klefann. Tina Mucklow, önn-
ur flugfreyja í áhöfn vélar-
innar, tók við peningunum
og fallhlífunum og í kjölfar-
ið fengu allir farþegar að fara
frá borði. Þar með er ekki öll
sagan sögð því Cooper, sem
virtist hafa skipulagt ránið í
þaula, sagði flugstjóranum
hver næstu skref yrðu þegar
búið var að fylla vélina af
eldsneyti. Scott átti að fljúga
vélinni í suðaustur áleiðis að
Mexíkóborg á eins litlum hraða og
hann kæmist upp með. Hann mátti
ekki fara hærra en í 10 þúsund feta
hæð og krafðist þess þar að auki að
hjólin yrðu niðri alla leiðina. Scott
tjáði Cooper að vélin væri þannig
úr garði gerð að hún kæmist ekki
lengra en þúsund mílur, 1.600 kíló-
metra, án þess að þurfa að lenda
og taka eldsneyti. Þeir skeggræddu
þetta í dágóða stund og komust að
þeirri niðurstöðu að farsælast væri
að lenda vélinni í Reno í Nevada.
Á bak og burt
Vélin hélt af stað klukkan 19.40 að
staðartíma og var búin að vera í loft-
inu í rúmar 20 mínútur þegar við-
vörunarljós kviknuðu í flugstjórnar-
klefanum. Ljósið gaf til kynna að dyr,
aftarlega í vélinni, hefðu opnast og
skyndilega féll þrýstingurinn. Scott
hélt ferð sinni áfram og um klukk-
an 22 lenti vélin í Nevada. Vopnað-
ir lögreglumenn frá FBI sátu um vél-
ina og leit leiddi í ljós að Cooper var
á bak og burt. Í vélinni fundust tvær
fallhlífar af fjórum og því er ljóst að
Cooper stökk frá borði með pening-
ana meðferðis. Þó að liðin séu 45 ár
frá atvikinu hefur Cooper, eða mað-
urinn sem sagðist heita Dan Cooper,
ekki fundist. FBI rannsakaði málið
í þaula; fjöldi fólks var yfirheyrður
en allt kom fyrir ekki. Lögreglu tókst
ekki að hafa upp á manninum dular-
fulla sem virtist vita sitthvað um
flug, flugrán og samskipti við lög-
reglu. FBI gekk meira að segja svo
langt að endurskapa atburðarásina
í þeirri von að það gæti varpað ljósi
á hvenær Cooper stökk út og hvar
hann lenti á jörðu niðri. Samkvæmt
þeim skoðunum stökk Cooper frá
borði klukkan 20.13 og lenti á jörðu
niðri í grennd við St. Helens-fjall.
Umfangsmikil leit á svæðinu, bæði
á landi og úr lofti, leiddi hins vegar
ekkert í ljós. Þetta var svo endurtekið
þegar fór að vora árið 1972 en, eins
og áður, fannst ekkert.
Leitin sett í nýtt samhengi
Þetta leiddi til þess að FBI fór að
endurskoða þær reikningsaðferðir
sem notaðar voru til að áætla lík-
legan lendingarstað flugræningjans.
Flugstjórinn, Scott, sagði síðar að
hann hafi flogið vélinni austar en
menn upphaflega héldu sem setti
leitina í annað samhengi. Flugsér-
fræðingar reiknuðu líka út að sterk-
ir vindar umrætt kvöld hefðu verið
misreiknaðir. Tekið var tillit til nær
allra mögulegra og ómögulegra þátta
en allt kom fyrir ekki.
FBI brá á það ráð, áður en Cooper
fékk peningana afhenta, að skrá
niður númerin á seðlunum sem
hann fékk auk þess að mynda þá. Árið
1972 fundust nokkrir þessara seðla
en átta ár liðu þar til fleiri litu dags-
ins ljós. Það gerðist í febrúar 1980
þegar átta ára piltur, Brian Ingram
að nafni, var á ferðalagi með fjöl-
skyldu sinni skammt frá Van couver
í Kanada, rétt norðan við fylkis mörk
Washington-ríkis. Þar fann hann
við árbakka einn þrjár töskur af illa
förnum peningaseðlum. Rannsókn
FBI leiddi í ljós að þarna var kom-
inn fram hluti ránsfengsins, nokkur
þúsund Bandaríkjadalir. Þetta setti
rannsókn málsins í uppnám og bjó
í raun til fleiri spurningar en það
svaraði. Missti Cooper peningana
þegar hann stökk úr vélinni? Ákvað
hann að grafa hluta ránsfengsins?
Hvers vegna fundust bara þess-
ar þrjár töskur? Rannsókn málsins
hélt áfram næstu árin en án þess að
einhverjar haldbærar upplýsingar
kæmu fram. Enn þann dag í dag eru
samtals 9.710 peningaseðlar enn
ófundnir.
Það var svo nú í sumar að FBI til-
kynnti að stofnunin myndi hætta
rannsókn á málinu á þeim forsend-
um að tíma starfsmanna væri betur
varið í aðkallandi verkefni dagsins í
dag. Lögregla mun þó áfram taka við
upplýsingum um málið, ef einhverj-
ar berast, þá sérstaklega hvað varðar
þá peningaseðla sem enn er saknað.
En þó að rannsókn FBI sé formlega
lokið eru enn til ævintýramenn sem
vilja leysa málið í eitt skipti fyrir öll.
Á dögunum birti vefsíða, True Ink,
öll skjöl málsins í þeirri von að ein-
hver þarna úti helli sér í málið og
kafi ofan í það. „Við birtum öll skjöl-
in og viljum fá hjálp frá almenn-
ingi,“ segir Goeffrey Gray, stofnandi
veftímaritsins. Það er því aldrei að
vita nema gátan leysist þó líkurnar
séu ekki ýkja miklar. n
Flugræninginn og
dularFulla FallhlíFin
Hver var Dan Cooper?
Mikið hefur verið skrifað og skrafað um flugræningjann
dularfulla og sérfræðingar FBI í atferlisfræði teiknuðu
upp það sem þeir töldu vera líklega mynd af manninum.
Samkvæmt þeim kenningum þekkti Cooper vel til
á Seattle-svæðinu eins og glögglega kom fram í sam-
tölum hans við flugstjóra vélarinnar. Í þeim kom einnig
fram að hann þekkti borgina Tacoma úr lofti og vissi
að McChord-flugherstöðin var í 20 mínútna aksturs-
fjarlægð frá Seattle-Tacoma flugvellinum. Taldi FBI að
Cooper hefði mögulega verið í bandaríska flughernum.
FBI taldi að fjárhagsstaða Coopers hefði verið bágborin
sem varð til þess að hann var tilbúinn að ganga jafn
langt og raun ber vitni. FBI komst einnig að því að
nafnið Dan Cooper kom úr belgískri teiknimyndasögu
sem fjallar einmitt um kanadískan flughermann, Dan Cooper að nafni, sem lenti í alls
konar ævintýrum þar sem fallhlífar komu við sögu.
Umrædd saga var aldrei gefin út á ensku og af því leiðir að Cooper hafði að líkindum
einhver tengsl við Evrópu eða Kanada þar sem hægt var að nálgast myndasöguna. Og
þar sem Cooper tók skýrt fram að hann vildi bandaríska seðla drógu menn þá ályktun
að mögulega væri hann erlendur ríkisborgari, líklega frá Kanada – að öðrum kosti
hefði hann ekki tekið þetta fram. Þá drógu menn þá ályktun að Cooper væri mjög
skipulagður að eðlisfari og með þekkingu á flugvélum og flugáætlunum. FBI taldi hins
vegar að Cooper væri reynslulítill fallhlífarstökkvari þar sem varafallhlífin sem hann
tók með sér var kirfilega lokuð og saumuð saman. Reyndir fallhlífarstökkvarar hefðu
ekki stokkið án þess að tryggja að allt væri í lagi. Þá taldi FBI ólíklegt að Cooper hefði
lifað stökkið af. Hann hafi ekki verið með hjálm eða höfuðhlífar og kuldinn, mínus 57
gráður á Celsíus í loftinu, hafi líklega verið óbærilegur.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
n dan Cooper rændi flugvél árið 1971 og stökk út með 200 þúsund Bandaríkjadali
Ræninginn
Þessi mynd
var teiknuð á
sínum tíma.
Myndin byggir
á vitnisburði
áhafnar flug-
vélarinnar.
Peningarnir Hér er sýnishorn af peningunum s
em Brian
Ingram fann árið 1980.
Flugvélin Um var að
ræða Boeing 727-flug-
vél Northwest-flugfé-
lagsins og sést hún á
meðfylgjandi mynd.