Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Page 17
Vikublað 20.–21. desember 2016 Fréttir 17
Í
langan tíma hefur mig langað
að stíga fram og upplýsa um
deilurnar á milli mín og Hilmars
Leifssonar. Þær snúast ekki ein-
göngu um mig og hann, heldur
margt annað fólk. Ýmsar getgátur
hafa verið á lofti en slúður gagnast
engum. Ég hafði lagt fram kærur og
ég valdi að tjá mig ekki til að skemma
ekki mín mál eða annarra. Ég hef því
haft vit á því að þegja, þótt erfitt hafi
verið að lesa lygar sem Hilmar hef-
ur haft uppi um mig opinberlega. Ég
kærði Hilmar og Óskar Barkarson og
tvo Pólverja fyrir árás á mig fyrir utan
Laugar. Nú er komið í ljós að lög-
reglan henti kærunni í ruslið.“
Þetta segir Gilbert Grétar
Sigurðs son í samtali við DV. Gilbert
og Hilmar hafa á síðustu árum stað-
ið í harðvítugum deilum sem ítrekað
hafa ratað í fjölmiðla og hafa ásakan-
ir gengið á víxl. DV greindi frá átök-
um fyrir utan World Class í Laugum
í ágúst 2014. Myndband náðist af
átökunum. Dv.is birtir í dag annað
myndband sem hefur aldrei komið
fyrir almenningssjónir og fer nánar í
saumana á sögu Gilberts og Hilmars.
Nú er komið í ljós að Laugamálið fór
ekki fyrir dóm og vill Gilbert stíga
fram og segja alla söguna frá sínu
sjónarhorni.
„Ég hafði ráðfært mig við fjölda
lögmanna og lögreglan sagði sjálf
að þetta væri borðleggjandi fangelsi.
Þeir voru fjórir, ég einn. Nú þegar
búið er að henda málinu í ruslið
spyr ég, má þá ráðast fjórir á einn
með stórhættulegri straumbyssu og
höggum? Svo virðist vera.“
Hilmar Leifsson vildi lítið láta
hafa eftir sér um ásakanir Gilberts
þegar eftir því var leitað.
Æska Gilberts
Gilbert er fæddur í apríl, 1981
í Reykjavík. Fimm árum síð-
ar flutti hann ásamt móður
sinni, eldri systur og yngri
bróður til Grundarfjarðar.
„Mamma vann í sjopp-
unni og var líka fiskvinnsl-
unni. Hún tók að sér alla
vinnu sem bauðst til að
halda okkur krökkun-
um uppi. Fyrst í
stað áttum við
lítið sem ekk-
ert en það
var alltaf
matur á
borð-
um. Ári
síðar
kynntist hún fósturpabba mínum.“
Lífið varð bærilegra þegar tvö sáu
um að sjá fjölskyldunni farborða.
Fósturfaðir Gilberts var skrifstofu-
stjóri í hraðfrystihúsinu og tók Gil-
bert að sér eins og hann væri hans
eigin sonur. Gilbert var að eigin sögn
uppátækjasamt barn og stundaði
íþróttir af kappi. Hann eignaðist lít-
inn gúmmíbát sem hann safnaði
fyrir með því að tína dósir. Á þessum
gúmmíbát réri hann svo um allan
Grundarfjörð.
„Ég réri marga kílómetra á þess-
um bát, pínulítill polli. Ég styrkti
botninn með því að líma slöngubæt-
ur undir hann eins og eru á vinnu-
vélum þannig að ég gæti róið á bátn-
um upp í allar fjörur án þess að hann
myndi springa.“
Úti í firðinum stendur sker upp úr
sjónum á fjöru. Þangað kveðst Gil-
bert hafa róið alla daga er sjór var
sléttur.
„Ég átti mjög
góðar stundir úti
á þessu skeri. Oft-
ast sat ég þarna
einn. Það var lítil
fjara í skerinu og
þar hlóð ég vörðu.
Á háflóði flæddi
alltaf yfir skerið en
þá stóð varðan mín
alltaf upp úr sjón-
um. Ég hélt þessari
vörðu við og fannst
ég eiga þetta sker
og þetta var mitt
athvarf. Þarna sat ég
með fuglunum og
kyrrðinni.“
Lagði krakka í einelti
Gilbert kveðst hafa átt einn
góðan og traustan vin á
æskuárunum.
„Ég átti ekki samleið
með jafnöldrum mín-
um og átti ekki auðvelt
með að vera innan um
fólk. Ég var hálflokað-
ur sem gerði að verkum
að ég byrjaði að drekka
áfengi snemma.
Hafðirðu orð á þér
að vera villingur?
„Bæði og.
Ég viður-
kenni
að ég
lagði
krakka í einelti sem barn. Ég
vissi ekki af hverju ég gerði
það og ég gerði mér ekki
grein fyrir hvað ég væri að
gera. Þegar ég varð eldri og
þroskaðri áttaði ég mig á
sársaukanum sem ég hafði
valdið.“
Það sat í Gilbert. Hann langaði
oft að safna kjarki og biðja krakkana
afsökunar á hegðun sinni.
„Þegar ég tók sporin í AA fór ég
alveg þangað niður og heimsótti
alla,“ segir Gilbert og bætir við að
honum hafi verið vel tekið. „Það
voru margir hissa á að ég hefði
unnið í sjálfum mér niður í æsku,
sumir mundu ekki eftir þessu. Aðr-
ir sögðu að þetta hefði ekki verið
svona alvarlegt. Það var ein stelpa
sem var gríðarlega þakklát. Það létti
af henni mikilli byrði að ég játaði
mínar misgjörðir og við féllumst í
faðma.“
Gilbert kveðst oft hafa viljað
skrifa grein um einelti út frá sjón-
arhóli geranda. Það sé sjaldgæft að
sjá þá sem hafi beitt einelti opna sig.
Var erfitt að biðjast afsökunar?
„Þetta var rosalegur léttir. Mig
var búið að langa svo lengi að koma
þessu frá mér. Þegar ég kynntist AA
sporunum var þetta eitt af verkefn-
unum, að játa misgjörðir sínar. Þá
fór ég yfir líf mitt í leiðsögn með
sponsor og punktaði hjá mér hverja
ég hafði skaðað og gerði hreint fyr-
ir mínum dyrum. Útborgunin sem
ég fékk andlega var ótrúleg. Það
breytti lífi mínu og von-
andi varð líf þeirra sem
ég hafði sært bærilegra
líka.“
Flytur til Reykjavíkur
Eftir að grunn-
skólagöngu Gilberts lauk
flutti hann til föður síns
í Reykjavík. Hann hóf
nám í grunndeild málm-
iðnaðar í Iðnskólanum.
Stefnan var að fara síðar
í vélskólann og verða vél-
stjóri eða flugvirki. Sam-
hliða námi og yfir sum-
artímann vann Gilbert í
byggingarvinnu og hafði
góðar tekjur ásamt því að
taka einn og einn túr á sjó
þar til hann fékk fast pláss
og starfaði sem sjómaður
næstu tvö árin.
„Ég keypti mína fyrstu
íbúð 18 ára. Draumurinn var að
komast sem fyrst úr foreldrahúsum.
Ég flutti inn með barnsmóður minni
en við eigum í dag strák sem er að
verða 15 ára,“ segir Gilbert og bætir
við að hann hafi átt erfitt með að ná
tökum á áfengisneyslu sinni.
Hversu gamall varstu þegar þú
byrjaðir að drekka áfengi?
„Ég byrjaði að drekka 11 ára. Ég
átti erfitt með að tjá mig og fann fyrir
djúpri ró þegar ég drakk. Þrettán ára
byrjaði ég að safna bjór sem ég tók
frá mömmu og pabba. Oft drakk ég
einn bjór fyrir svefninn. Þau fóru í
bæjarferðir og keyptu þá marga
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Slagsmál við World Class Lögregla
var kölluð til vegna slagsmála fyrir utan
World Class í Laugum í ágúst 2014, Gilbert
kærði málið en því hefur nú verið vísað frá.
Söfnuðust saman fyrir utan hjá Hilmari
Hilmar sakaði hópinn um að hóta börnum sínum.
Gilbert þvertekur fyrir það og segir að hann hafi
talað við Hilmar á því eina máli sem hann skilur.
Hilmar Hilmar og Gilbert
hafa deilt árum saman.