Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.2005, Blaðsíða 16

Freyr - 01.08.2005, Blaðsíða 16
NAUTGRIPIR Nautgripasæðingar 2004 Á árinu 2004 voru sæddar 23.195 kýr 1. sæðingu eða rétt um 75% af heildarfjölda kúa og kvígna samkvæmt talningu haustið 2003. Er þetta mun hærra hlutfall en á árinu 2003 og munar nærri 5%. Óllkt því sem gerst hefur undanfarin ár þá fækkaði fyrstu sæðingum ekki I samræmi við fækkun kúa sem hefur verið nokkur. Þessa breytingu má að hluta skýra með meiri sæðingum á kvígum en þegar jafn mikill munur kemur fram og nú gerist hlýtur að verða að taka vara við að uhnið hafi verið með réttar töl- ur I fyrri samnburðum. Ef hins vegar rétt reynist að þátttaka í sæðingum hafi vaxið eins og þessar tölur bera með sér er það mjög ánægjulegur vitnis- burður um sæðingastarfsemina almennt Mynd 1 sýnir árangur sæð- inga frá 1994 til 2004. Árang- urinn er nokkuð stöðugur þetta tímabil og sveiflan rétt við 3%. Auðvitað er hver hundraðshluti ákaflega mikilvægur I rekstri hvers bús og því er það mark- mið okkar að vera yfir 70% sem tókst á síðasta ári. Saman- burður milli ára er ávallt erfiður því að einstök naut geta haft mikil áhrif. Þrátt fyrir að tvö ungnaut hafi gefið afleitan ár- angur á slðasta ári þá er þetta aðeins upp á við. Eins og sést í töflu 1 er árangur milli svæða ákaflega misjafn og einnig inn- an svæða milli mánaða. Niður- staða slðasta árs er 70,6% og er því rúmum einum hundraðs- hluta hærri en árið 2003. Tafla 1. Samanburður sæðinga milli áranna 2003 og 2004 I Eftir Sveinbjörn Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóra Nautastöðvar Bændasamtaka íslands, Hvanneyri. 2003 2004 Búnaðarsamband l.sæðing Tvísæð. Árangur l.sæðing Tvísæð. Árangur Kjalnesinga 189 24 80,0% 204 10 79,4% Borgarfjarðar 1.942 234 68,9% 1.980 239 68,9% Snæfellinga 675 168 71,6% 670 177 72,8% Dalamanna 347 126 73,8% 386 111 71,6% Vestfjarða 407 74 74,8% 459 52 70,8% Strandamanna 47 3 68,2% 51 13 76,3% V-Hún. 502 33 69,5% 511 30 70,9% A-Hún. 813 75 74,7% 773 61 76,3% Skagafjarðar 1.915 167 72,9% 1.912 146 77,3% Eyjafjarðar 4.036 358 73,5% 4.002 358 73,5% S-Þing. 1.549 139 68,6% 1.521 114 66,2% Austurlands 796 70 69,8% 873 74 69,2% A-Skaft. 285 33 67,1% 338 72 65,4% Suðurlands 9.823 1.490 66,0% 9.515 1.257 68,4% Landið 23.326 2.994 69,4% 23.195 2.714 70,6% 16 FREYR 08 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.