Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 9

Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 9
9 öðrum hagskýrslum. Það vill A. K. ekki heyra, ekk- ert annað en að eg hafi rangfært þær. Hann verð- ur að ráða sinni meiningu um það, og lesendurnir sinni; þeir verða að dæma um hvatir okkar eftir Iík- um, því að um tölurnar ætla eg ekki að þræta við A. K., það gæti leitt til þess, að þrætan yrði persónu- lega nærgöngulli en hún hefir verið frá minni hálfu; eg hefi sneitt hjá því svo sem varð, og að eins rætt það, sem opinbert var, og almenning varðar, og eg læt ekki A. K. að svo stöddu leiða mig lengra, þótt svo geti farið, og efni hafi eg allgóð í höndum. Verzlunarskýrslurnar frá 1905 eru fyrir löngu komnar út í stjórnartíðindunum, og þótt þær séu þar ekki eins sundur liðaðar og hjá mér, þá geta þó lesend- urnir borið saman ýmsar tölur í Ófeigi og lands- hagsskýrslunum, er snerta verzlunina hér í Pingey- arsýslu. Hitt er ekkert undarlegt, þótt okkur A. K. greini á um hverjar ályktanir og áætlanir dregnar verði af verzlunarskýrslunum. Eg lít á þær frá almennu sjón- armiði, skoða þær sem hagskýrslur, er alla varði, og dreg af þeim almennar ályktanir frá sjónarmiði bænda og annara framleiðenda, án nokkurs tillits til ein- staklinga eða þeirra hagsmuna. Til þessa hefi eg fullan rétt, hvað sem »atvinnu» kaupmanna líður, og hversu mikið sem þeir reiðast mér. Pað sýnir bezt hvers eðlis »atvinna» þeirra er, ef hún, frá kaup- manna eigin sjónarmiði, ekki þolir hagfræðislega ran- sókn. Um fullkomna nákvæmni ályktana minna og áætlana má auðvitað deila endalaust, enað þær sýni

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.