Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 35
haust@haustrestaurant.is | borðapantanir í síma 531 9020 | haustrestaurant.is
Haust Restaurant er staðsett á Fosshotel Reykjavík, Þórunnartúni 1
Gæðastund með vinum og fjölskyldu
Brunch allar helgar verð 3.950 kr. á mann
Alltaf
frítt fyrir
5 ára og
yngri
Hálft ve
rð
fyrir 6-1
2 ára
Alla daga frá 18-21
á Haust Restaurant
Kvöldverðarhlaðborð
Verð 6.990 kr. á mann
Friðgeir Helgason stóð fyrir „pop-up“ veitingastað á Coocoo’s Nest í gær og heldur
áfram í dag þar sem hann mun
bjóða upp á ekta New Orleans
„soul food“. Hér gefur hann upp-
skrift að fiski-taco.
500 g svartar baunir
1 laukur smátt saxaður
6 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 lárviðarlauf
1 matskeið cumin
1 teskeið chilipipar
¼ teskeið cayennepipar
Salt og pipar
Hrásalat:
½ haus hvítkál
¼ haus rauðkál
2 rauðar paprikur
1 blaðlaukur
1 búnt kóríander
Safi úr 1 sítrónu
1 matskeið gróft sinnep
1 matskeið majónes
Salt og pipar
2 lárperur
Sósa:
2 dl sýrður rjómi
1 dl hreint skyr
1 teskeið cumin
½ teskeið chilipipar
Safi úr 1 sítrónu
Salt og pipar
300 g þorskur, sporðstykki
Taco-blanda, fæst í flestum versl-
unum
Salt og pipar
Brauðmylsna, helst Panko
8 tortillakökur (korn tortilla)
Setjið baunir í bleyti yfir nótt
og sigtið fyrir notkun. Hitið olíu
í potti og snöggsteikið lauk og
hvítlauk. Setjið næst allt krydd
og lárviðarlauf í pottinn. Hrærið
saman og setjið baunirnar út í og
nóg vatn. Lækkið hitann þegar
suðan kemur upp og hrærið í á 10
mín. fresti. Bætið vatni við ef það
gufar upp. Þetta tekur um 1,5 klst.
eða þar til baunirnar eru mjúkar.
Smakkið og aðlagið með salti og
pipar.
Skerið allt grænmetið í mjög
þunna strimla. Saxið blaðlauk og
kóríander. Setjið í skál og blandið
sinnepi, majónesi og kreistið safa
úr sítrónu út í. Blandið saman og
smakkið til með salti og pipar.
Setjið allt hráefni fyrir sósu í skál
og hrærið vel.
Nuddið kryddblöndunni vel á
fiskinn og veltið honum upp úr
brauðmylsnunni. Hitið olíu á
pönnu og steikið þorskinn í um
3 mín. á hvorri hlið en passið að
brauðmylsnan brenni ekki.
Hitið pönnu vel með smá olíu og
steikið tortillurnar í um 2 mín.
Snúið á 30 sek. fresti. Setjið tor-
tillurnar á disk, næst baunirnar
og svo þorskinn. Skerið lárperur
í litlar sneiðar og setjið ofan á
þorskinn. Næst er það sósan og að
lokum hrásalatið.
Fínt að bera fram með soðnum
hrísgrjónum.
Fiski-taco
Jana María
verður með
útgáfutónleika
í Tjarnarbíói í
kvöld.
Leik- og söngkonan Jana blæs til útgáfutónleika í Tjarnar-bíói í kvöld til að fagna fyrstu
breiðskífu sinni, Flora, sem er
innblásin af samskiptum fólks við
náttúruna og hvernig skapgerð
mannsins og persónuleiki rímar
við litbrigði veðurs og landslags.
Tónlistin er popptónlist í
grunninn en er undir áhrifum frá
tripphoppi, djassi og kvikmynda-
tónlist. Platan er afrakstur þriggja
ára vinnu með lagasmíðar og texta
Jönu sem lauk með tónleikum í
Iðnó á Airwaves-tónlistarhátíðinni
í nóvember. Hljómsveitina skipa
Magnús Jóhann Ragnarsson á
hljómborð og syntha, Bergur Einar
á trommur og slagverk og Valdi-
mar Olgeirsson á bassa og syntha.
Auk þeirra syngja Ingibjörg Fríða
og Gyða Margrét bakraddir. Í til-
efni af útgáfutónleikunum verður
fáanleg vínylplata með handskrif-
uðum lagatextum í takmörkuðu
upplagi.
Útgáfutónleikarnir hefjast kl. 21 og
er miðasala á tix.is.
Fólk, veður og landslag
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . m a í 2 0 1 8
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-3
1
C
8
1
F
D
A
-3
0
8
C
1
F
D
A
-2
F
5
0
1
F
D
A
-2
E
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K