Breiðfirðingur - 01.04.1986, Blaðsíða 50
48
BREIÐFIRÐINGUR
mennasambandi Dalamanna. Sveinn Guðmundsson frá
H.S.H. hlaut 9 vinninga og að launum silfurbikar, sem Sig-
urður Agústsson alþingismaður hafði gefið, og nú var keppt
um í fyrsta skipti. Glímumót Vestfirðingafjórðungs var
haldið öðru sinni í Stykkishólmi 8. apríl 1967. Sveinn Guð-
mundsson hlaut þá bikarinn í annað skiptið. Allir voru glímu-
mennirnir úr H.S.H. Sveinn Guðmundsson og Árni P.
Jóhannsson tóku þetta ár þátt í landsflokkaglímu. Sveinn
keppti í 1. flokki og varð annar, og Árni, sem keppti í drengja-
flokki, hlaut einnig annað sætið. Sveinn var einnig þátttak-
andi í Islandsglímu þessu sinni og varð þar í öðru sæti.
Glímumót Vestfirðingafjórðungs var haldið í þriðja skiptið í
Stykkishólmi 11. maí 1968. Sveinn Guðmundsson felldi alla
og hafði þar með unnið Vestfirðingaglímuna frá upphafi og
því hlotið bikarinn til eignar.
Héraðsmót H.S.H. í glímu var haldið við Breiðablik 29.
júní 1968 og varð Sigurþór Hjörleifsson hlutskarpastur.
Sveinn Guðmundsson var meðal keppenda í landsflokka-
glímu, og Íslandsglímu og hreppti annað sætið í þeim
báðum. Þessir fimm menn úr H.S.H. tóku þátt í glímu-
keppni í sjónvarpssal 1968: Gunnar Jónsson, Gunnar
Kristjánsson, Sigurþór Hjörleifsson, Sveinn Guðmundsson,
Vilberg Guðjónsson. Fyrst keppti þetta liö við Austfirðinga
og sigraði þá, en tapaði fyrir Sunnlendingum.
Lokaorð
Þegar íhuguð er þátttaka héraðsbúa í sýsluglímunni, kemur
í ljós, að einhvern þátt í henni hafa átt menn úr öllum
hreppum Snæfells- og Hnappadalssýslu nema úr Neshreppi
utan Ennis. Eins og áður er getið víkur Eggert Ólafsson að
glímuiðkunum Snæfellinga. En þar voru verstöðvar margar
og fjölmennar, t.d. við Hellna, í Dritvík og á Hjallasandi.
Kunn eru sérstök svæði í þessum verstöðvum, þar sem glíma
fór fram, og heiti þessara svæða. Ekkert örnefni ber þó vitni
um glímuiðkun nema Glímustofa í Dritvík. Hún er enn á
sínum stað og með sömu ummerkjum og fyrr.