Breiðfirðingur - 01.04.1991, Blaðsíða 10
8
BREIÐFIRÐINGUR
minn.“ (Biblía 1981). Eða með eldra tungutaki: „En er Gyð-
ingar grýttu Stephan þá kallaði hann ok mælti: Drottinn
Jesú, taktu anda minn“.'
Stefánskirkjur voru nokkrar hér á landi auk Snóksdals-
kirkju og má nefna kirkju í Heydölum fyrir austan og kirkju
á Mel í Miðfirði. Helgisögn tengd kirkjunni á Mel er í þætti
af Hemingi Áslákssyni, gömlu riti íslensku. Segir frá því í
þættinum að Hemingur var á valdi Haralds konungs Sigurð-
arsonar. Skyldi hann vinna það til lífs, sem lítil lífsvon var,
að renna sér á skíðum niður bratta fjallshlíð, og var svellótt
og hart í fjallinu. Skyldi Hemingur stöðvast á framanverðum
björgunum, en flughamrar voru fyrir neðan. Þarna var
Oddur Ófeigsson frá Mel í Miðfirði. Segir þá svo að Oddur
léði Hemingi dúk sem heilagur Stefán skyldi hafa haft fyrir
augum sér þá er hann var grýttur. Dúknum er lýst svo að
honum fylgdi lækningamáttur. Hemingur rann fram á bjarg-
brúnina og vildi þrífa í skikkju konungs, en konungur
steypti henni af sér, og hraut Hemingur niður fyrir, bjargaði
honum þá klæði heilags Stefáns með fulltingi Ólafs konungs
helga. Lét Oddur í haf og kom skipi sínu í Miðfjörð. Fór
hann heim á Mel og lét reisa þar kirkju sem var vígð heil-
ögum Stefáni, og er sá dúkur þar enn í dag er Hemingur
hafði um sig, segir í þættinum.2 Slíkra helgisagna er að
vænta í kaþólskum sið, en hitt er óvæntara að Arngrímur
Jónsson lærði, lúterskur maðurinn á siðaskiptatímum, getur
um klæði í kirkjunni á Mel, gætilega að vísu. Af slíku klæði
var ennþá til lófastór pjatla 1712 að sagt er og var mönnum
leitað lækninga með því að svíða tætlur utan úr henni.3
Ekki er mér kunnugt um að viðlíka helgigripur hafi verið
hér í kirkjunni í Snóksdal, tengdur nafni heilags Stefáns.
Mætti helst geta um Stefánsskríni málað, sem talið er með
gripum kirkjunnar á 17. öld og enn er til á 18. öld, þá sagt
lítilfjörlegt, en með öllu er óvíst um uppruna þess og
hlutverk. Má vera það sé „skrín með tré“, sem nefnt er í
máldaga kirkjunnar frá 16. öld. Þar er einnig getið um Step-
hanuslíkneski, tvö Maríulíkneski og Þorlákslíkneski í kirkj-