Breiðfirðingur - 01.04.1991, Blaðsíða 26
24
BREIÐFIRÐINGUR
Um morguninn heima í Snóksdal skrifaði Daði bréf, sem
er til í eftirriti, og er skoðun prófessors Árna Magnússonar
handritasafnara og annarra síðan, að bréfið hafi verið ætlað
Borgfirðingum til lestrar sem voru á Sauðafelli með Jóni
biskupi. Gerir Daði kunnugt í bréfinu að hann berjist fyrir
að ríða á eign sína Sauðafell þennan sama dag og þurfi eng-
inn að efast í því að hann leiti þangað húsa sinna og heimilis
með öllum þeim styrk og manndómi, sem skaparinn vilji sér
til veita.46 Ræður hann mönnum frá að vera í fylgi eða lið-
sinni með Jóni biskupi Arasyni. Varð enda lítið úr liðveislu
Borgfirðinga við biskup og segir Skagfirðingurinn Björn
Jónsson lögréttumaður í Skarðsárannál, að þeir hafi skotið á
ráðstefnu er til tíðinda dró á Sauðafelli, og riðið burt
þaðan.47
Á Sauðafelli lýsti Daði því yfir, eftir því sem hann segir í
framburði sínum að hann vildi fullkomlega hafa stað, hús og
heimili á Sauðafelli frjálslega fyrir sig og sitt fólk, hvað sem
það kosta vildi, áður en dagur væri úti. Segist hann hafa
boðið í þrjár reisur að málin væru Iögð til alþingis að sumri
komanda og færu þeir feðgar þá óhindraðir á brott með
menn sína. Heyrði hann hrakyrði séra Björns, sem hann til-
færir, en hvorki svar biskups né Ara.
Kom þá til átaka, og var ráðist til inngöngu í kirkju og þeir
feðgar teknir höndum. Hafði Daði þá í haldi hér í Snóksdal
þrjár vikur og tveimur dögum betur, að eigin sögn. Lætur
hann þess getið í framburði sínum um handtökuna 2. dag
októbermánaðar að hann hafi farið í öllu eftir bréfum þeim
sem konungur hafði inn sent í landið. Séra Sigurður á Grenj-
aðarstað, sonur Jóns biskups, var ekki í för með bræðrum
sínum og föður, en sagt er hann hafi riðið í Hrútafjörð og
sent þaðan tólf menn með friðarboðum inn í Dali að fá þá
feðga lausa. Þá fékkst það ekki, hvað sem í boðum var.48
Eftir handtöku þeirra feðga gerði Daði boð til Bessastaða
til Kristjáns skrifara, en hann brá við og kom vestur í Dali.
Nefndi Ormur Sturluson lögmaður tólf menn í dóm hér í
Snóksdal fimmtudaginn 23. okt. 1550, og dæmdu þeir Jón