Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 25

Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 25
/sJý "D&gun- sé talið og er þá heimilt að kryfja líkið, enda hafi hinn látni eða nánasti vandamaður, sbr. 3. mgr. 2. gr.(Með nánasta vandamanni er átt við maka (sambýlismann eða sam- býliskonu), börn, ef hinn látni átti ekki maka, foreldra, ef hinn látni var barnlaus, eða systkini ef foreldrar hins látna eru einnig látnir), samþykkt krufninguna. Þurfi að afla samþykkis nánasta vandamanns fyrir krufningu skal læknir veita upplýsingar um tilgang og markmið krufningarinnar. Vandamönnum er heimilt að krefjast krufningar ef í ljós kemur að ekki er af hálfu læknis hins látna fyrirhugað að óska eftir krufningu. Réttarkrufning er undan- þegin lögumþessum". 6. gr."Krufningu skv. 5. gr. má ekki framkvæma ef læknir hins látna hefur ástæðu til að ætla að réttar- krufningar verði krafist". Þegar réttarkrufning fer fram, þá þarf ekki að fá samþykki vandamanna. Vegna sjúkrahússrannsókna er leitað eftir samþykki vandamanna, en þar er um að ræða dauðsfall á sjúkrastofnun og lækni þykir ástæða til að vita nánar um aðdrag- anda að dauðsfallinu. Vandamenn hafa fulla heimild til að neita krufningu við slíkar aðstæður. Hugsunin um krufningar tengist nokkuð oft erfiðum tilfinningum hjá syrgjendum. Sumum finnst nóg komið, að vera búnir að missa ástvini, að ekki bætist krufning við. Hins vegar má ljóst vera, að séu ástæður fyrir dauðsfalli ekki ljósar, þá sé það afar mikilvægt að fá þau svör, sem krufning getur veitt, sérstaklega upp á seinni tíma. J_okao»*ð Það, hvernig við syrgjum, er persónu- bundið. Við vitum ekki fyrirfram hvernig við munum bregðast við, þegar við stöndum í þeim sporum að missa ástvini. Það kemur líka óþægilega á óvart hversu margir af þeim, sem við teljum til náinna vina, reynast feimnir við að veita stuðning í sorg. Það kemur líka á óvart hversu mjög lífið breytist við það að við förum um land sorgarinnar. Og það gerist nokkrum sinnum á lífsleiðinni. Stjórn og varastjórn Nýrrar Dögunar Sigurður Jóhannsson, formaður Bragi Skúlason, varaformaður Elísabet Ingvarsdóttir, gjaldkeri Rósa Jónsdóttir, ritari Elínborg Jónsdóttir, meðstjórnandi Ingibjörg Jóhannsdóttir, meðstjórnandi Erla Hafliðadóttir, meðstjórnandi Varastjórn Guðlaug Gunnarsdóttir Jóna Dóra Karlsdóttir Kristín Aðalsteinsdóttir Stefanía Þorgrímsdóttir Þóra Björg Þórhallsdóttir 25

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.