Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 54

Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 54
www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 POWERSTATE™ mótor. REDLINK PLUS™ yrálagsvörn REDLITHIUM-ION™ rafhlaða Sveigjanlegt rafhlöðu ker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. M18 FCS66 Alvöru hjólsög frá Milwaukee vfs.is Ferill Penny Marshall í heimi kvikmyndanna var langur, fjölbreyttur og farsæll en sjálfsagt munu tvær frábærar kvikmyndir hennar, Big og A League of Their Own, fyrst og fremst halda minningu hennar á lofti um ókomna tíð. Big, sem Marshall gerði 1988, varð fyrsta kvikmyndin sem kona leik- stýrir til þess að selja bíómiða fyrir meira en 100 milljónir dollara. Þetta þóttu heilmikil tíðindi í Hollywood fyrir 30 árum og kom karlaveldinu á þeim bænum í opna skjöldu. Myndin var löðrandi í æsku- fjöri og gríni og þeirri hlýju sem þykir einkenna allt höfundarverk Pennyar. Í Big lék Tom Hanks tólf ára strák sem varð fullorðinn á augabragði með tilheyrandi rugli og ótímabærum viðfangsefnum. Þótt Hanks hafi þarna átt að baki gaman- myndirnar Splash!, Bachelor Party, The Man with One Red Shoe og The Money Pit var fátt sem benti til þess að hann yrði sú stórstjarna sem hann er í dag og Marshall er ekki síst eignaður heiðurinn af því háflugi sem ferill hans tók í kjölfarið. Sjálfur hefur Hanks aldrei farið leynt með að hann á Marshall margt að þakka og hún tefldi honum aftur fram skömmu síðar í A League of Their Own 1992. Sú mikla kvenna- mynd er söguleg fyrir margra hluta sakir en Hanks sýndi þar góð tilþrif í aukahlutverki. Konur í sérflokki A League of Their Own er önnur mynd Marshall sem rauf 100 millj- óna múrinn þvert á væntingar og telst til gullmola í bandarískri kvik- myndasögu en hún skartaði einvala liði leikkvenna með Geena Davis og Lori Petty í broddi fylkingar með Rosie O'Donnell og sjálfa Mad- onnu að baki sér, svo einhverjar séu nefndar. Myndin byggir á sannri sögu frá fimmta áratugnum og fjallar um fyrsta atvinnulið kvenna í hafnar- bolta. Tom Hanks leikur þjálfara liðsins, útbrunna hafnarbolta- kempu og fyllibyttu sem hefur enga trú á stelpunum og er heilt yfir ekk- ert sérstaklega góður gæi. Hann er þó ekki skúrkurinn í myndinni þar sem helstu hindranir kvennanna eru karlremba og stríðsógnin. Penny Marshall hafði alla tíð brennandi áhuga á íþróttum og myndin þykir með þeim betri íþróttamyndum sem gerðar hafa verið enda hefur hún allt til að bera; spennandi og flottar senur af vellinum, tilfinningaflækjur og kjarninn er eins og vera ber, sigur lítilmagnans á ofurefli. Og skilaboð Marshall í undirtextanum eru skýr: Konur geta allt sem karlar geta og oftast betur. Velgengni myndarinnar og hagn- aðurinn dugðu þó ekki til að hún yrði metin að verðleikum á sínum tíma. Óskarsverðlaunaakademían leit alveg fram hjá henni og Golden Globe-tilnefningarnar voru aðeins tvær. Geena Davis var tilnefnd sem besta leikkonan í gamanmynd og Madonna fékk tilnefningu og hirti hnöttinn fyrir lagið This Used to Be My Playground. Þegar bestu myndir Penny Mar- shall eru til umræðu má vitaskuld ekki gleyma þeirri undurfögru og mannlegu Awakenings þar sem Marshall hafði taumhald á tveimur Hollywood-risum, Robin Willi- ams og Robert DeNiro, og töfraði fram óvenju látlausan stórleik hjá báðum. Úr sjónvarpi í bíó Penny Marshall fæddist í New York 1943 og hóf feril sinn í skemmtana- bransanum undir lok sjöunda ára- tugarins þegar hún flutti til eldri bróður síns, handritshöfundarins og leikstjórans Gary Marshall, í Los Angeles. Hún byrjaði í gamanþátt- um í sjónvarpi og lék meðal annars annað titilhlutverkanna í Laverne & Shirley. Þættirnir gengu frá 1976 til 1983 og nutu gríðarlegra vinsælda. Hún var gift leikstjóranum Rob Reiner í tíu ár frá 1971 til 1981 og þau hjónin voru í raun stórveldi í Hollywood. Marshall og Reiner voru vinir alla tíð og þegar hann minntist hennar á mánudaginn sagði hann meðal annars að hún hefði fæðst með góðan húmor og kunnað að nota hann af eðlisávísun. Hann hefði verið heppinn að hafa búið með henni og skopskyni henn- ar. thorarinn@frettabladid.is Marshall var kona í sérflokki Hollywood-múrbrjóturinn, hin dáða Penny Marshall, lést í Los Angeles í byrjun vikunnar. FréttAbLAðið/Getty Vinirnir og samstarfs- fólkið Penny Marshall og tom Hanks á góðri stundu í gamla daga. NordicPHotos/ Getty Geena davis í þeirri frábæru íþróttamynd A League of their own sem var önnur mynd Marshall sem rauf 100 milljón dollara múrinn. Penny Marshall er látin 75 ára að aldri. Hún var fyrsta konan til að rjúfa 100 milljón dollara múrinn og þekktir karlar í Hollywood eiga henni margt að þakka. 2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r42 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð Bíó 2 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 D E -1 2 5 4 2 1 D E -1 1 1 8 2 1 D E -0 F D C 2 1 D E -0 E A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.