Fréttablaðið - 01.05.2019, Page 47

Fréttablaðið - 01.05.2019, Page 47
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 1. MAÍ 2019 Hvað? Karlakór Reykjavíkur – Vor- tónleikar Hvenær? 17.00 Hvar? Háteigskirkja í Reykjavík Karlakór Reykjavíkur, eldri félag­ ar, verður með tónleika, ásamt aðalkór Karlakórs Reykjavíkur, sem er gestakór að þessu sinni. Stjórnandi Friðrik S. Kristinsson, píanóleikari Peter Máté. Hvað? Útgáfuhóf Marteins Sindra Hvenær? 15.00 Hvar? Ásmundarsalur, Freyjugötu 41 Atlas nefnist fyrsta breiðskífa tón­ listarmannsins Marteins Sindra, hún verður leikin og forsala verður á vínyl. Hvað? Ganga FÍ. umhverfis Elliða- vatn Hvenær? 11-13 Hvar? Frá Elliðavatnsbænum Tryggvi Felixson leiðir gönguna og honum til fulltingis verður Halldór Þorgeirsson. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Fólk hvatt til að sameinast í bíla. Karlakór Reykjavíkur, eldri deild, syngur í Háteigskirkju í dag kl. 17.00. 1. maí D a g s k r á 1 . m a í Safnast verður saman á Hlemmi kl . 13:00 og hefst gangan hálft íma s íðar. Kl . 14:10 hefst út i fundur á Ingólfstorgi . Boðið verður upp á kaff i að út i fundi loknum í Gul lhömrum Grafarholt i , frá k l . 15:00 - 17:00. V M e r l a n d s f é l a g í v é l - o g m á l m t æ k n i 2 0 1 9 Capernaum (eng sub) ...................... 17:30 Yuli-Carlos Acosta Story (ice sub) . 17:45 Að sjá hið ósýnilega (icelandic) .. 18:00 Miszmasz czyli Kogel Mogel 3 (eng sub) 20:00 The Wild Pear Tree (ice sub) .... 20:00 Yuli-Carlos Acosta Story (eng sub) 20:00 Everybody Knows (ice sub) ........ 22:00 Girl (ice sub) .............................................22:15 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS Við munum syngja sígildar karlakórsperlur,“ segir Hall­dóra Ósk Helgadóttir, for­ maður Dömukórsins Graduale Nobili, um tónleika kórsins í Lang­ holtskirkju í dag klukkan 17.  Þeir bera yfirskriftina Þú komst í hlaðið. „Við héldum svipaða tónleika árið 2014 í tilefni af mottumars það árið. Það voru allir svo hrifnir að við ákváðum að endurtaka leikinn.“ Að sjálfsögðu munu  dömurnar, 24 talsins, skarta viðeigandi fatn­ aði. „Ég ætla að vera í íslenska karlaþjóðbúningnum, til dæmis,“ segir Halldóra Ósk. Beðin að nefna einhver þeirra laga  sem  þær  ætla að taka bendir hún á titillag tón­ leikanna. „Svo syngjum við líka Hamraborgina og Hrausta menn og mörg önnur.“ Þó svo kvenraddir liggi öðruvísi en karla segir Hall­ dóra Ósk dömurnar ekki breyta karlakórsútsetningum laganna. „Þetta er krefjandi flutningur fyrir okkur, mjög djúpt fyrir dýpstu rödd­ ina og mjög hátt fyrir efstu röddina,“ viðurkennir hún. Þorvaldur Örn Davíðsson hefur leitt kórinn síðasta eina og hálfa árið, Halldóra Ósk segir það ganga eins og í sögu. „Upp kom sú hugmynd á æfingunni í gær hvort hann ætti að skella sér í upphlut á tónleikunum, spennandi að vita hvort sú hug­ mynd verður að veruleika!“ Sigurður Helgi Oddsson leikur með á píanó í  helmingi prógrammsins, annað er sungið undirleikslaust. Halldóra Ósk efast um að  nógu síður upp­ hlutur finnist á hann. Halldóra hefur sungið með Grad­ uale Nobili óslitið síðustu fimm ár. Segir nokkur  smá verkefni á döf­ inni í sumar en í haust ætli kórinn að syngja Níundu sinfóníu Beet­ hovens með Sinfóníuhljómsveit­ inni. „Nýlega var kórinn í hljóð­ og myndbandsupptökum á Hjalteyri, meðal annars í síldarverksmiðj­ unni og gömlum lýsistanki. „Það var frekar agaleg lykt þar en hljómurinn var f lottur, magnaðist upp í rým­ inu,“ segir Halldóra Ósk og upplýsir að upptökurnar verði settar á netið. gun@frettabladid.is Dömukór með karlakórstónleika í Langholtskirkju Álfheiður E. Sigurðardóttir, Edda Kristjánsdóttir, Salný V. Óskarsdóttir, Þórhildur S. Kristinsdóttir, Sandra L. Þorsteinsdóttir og Harpa Ó. Björnsdóttir. Halldóra Ósk er formaður kórsins. Þú komst í hlaðið nefnast tónleikar Dömukórsins Graduale Nobili í Langholtskirkju í dag. Þar verða flutt karlakórslög á borð við Hrausta menn og Hamra- borgina undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25M I Ð V I K U D A G U R 1 . M A Í 2 0 1 9 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 7 -9 6 6 C 2 2 E 7 -9 5 3 0 2 2 E 7 -9 3 F 4 2 2 E 7 -9 2 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.