Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 5

Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 5
10. Stjórnunar- og þjónustudeild: 400 m2 11. Vinnuherbergi fyrir starfsmenn útlánsdeilda: 100 m2 12. Kaffistofa og önnur aðstaða fyrir starfsmenn t.d. fata- hengi, munaskápar, sturta: 100 m2 13. Fundaherbergifyrir starfsmenn og almenning t.d.fyrir námskeið, safnkynningar og sögustundir: 70 m2 14. Sérútlánadeild (skipasöfn, bókin heim): 130 m2 15. Bófeageymslur: 400 m2 Rýmisþörf samtals: 3000 m2 nettó Til að standa sem best að undirbúningi var farið yfir staðla varðandi bókasafnshúsnæði og -búnað og leitað í smiðjur innlendra og er- lendra aðila sem höfðu stað- ið í sömu spomm. Núverandi borgarbókavörður, Anna Torfadóttir, sótti ráðstefnur erlendis þar sem fjallað var um bókasafnabyggingar og - búnað, m.a. í Hollandi þar sem Bretinn Harry Faulkner- Brown hélt erindi og kynnti hugmyndir sínar að skipu- lagningu bókasafna en hann leggur mikla áherslu á sam- vinnu bókavarða og arkitekta við hönnun og skipulagningu bókasafna. Myndaðir vom vinnuhópar starfsmanna sem skiptu með sér verkum við að skipuleggja hverja deild nýja safnsins fyrir sig. Það þurfti að ákveða hvernig búnað þurfti, hvernig hillur og hversu margar, hvernig tölvur og hversu margar, hvernig húsgögn o.fl. o.fl. Innkaupastofnun Reykjavíkur sá um útboð á bún- aði samkvæmt reglum borgarinnar. Ofnasmiðjan, GKS og Nýherji áttu lægstu tilboð í bókasafns- búnað, húsgögn og tölvubúnað. Undirbúningur að sjálfum flutningunum hófst haustið 1999 þegar ákveðið var að lestararsalur aðal- safns yrði ekki opnað- ur aftur að loknu sum- arfríi. Ákveðið var að nota húsnæði hans sem miðstöð flutning- anna. Þar var m.a. gengið frá nýjum bók- um sem fóm beint ofan í kassa, sett var þjófavörn í gamlar bækur því gert var ráð fyrir þjófavarnarhliði í nýja safninu o.s.frv. Sálfræðingur var fenginn til að halda fyrirlestur til að efla liðsandann fýrir flutningana. Ekki var einungis verið að flytja eitt safn í nýtt húsnæði heldur sameina útlánsdeild aðalsafns og skrifstofu. Áhersla var lögð á að þessi sameining gengi sem best og menn legðu jákvæðir af stað. Mikið var lagt upp úr að starfsmenn væm ánægðir þrátt fýrir hið aukna álag er fýlgir flutningum. Einnig var þeim fyrirfram gert ljóst að þetta yrði mikil vinna og fýr- irskipanir gætu orðið mjög misvísandi. Það reyndist rétt því á ýmsu gekk þegar byrjað var að pakka. Menn héldu þó ró sinni og hliðmðu jafnframt til með sumarfrí. Flutningar Að ýmsu er að hyggja þegar svo stórt bókasafn er flutt, safn sem telur um 160.000 eintök. Eignatalning var gerð og safnkosturinn þjófa- varinn um leið og honum var pakkað niður í kassa. Mikið magn af safnefni var afskrifað vegna þess að það var úrelt eða illa farið. Allt árið á undan hafði markvisst verið farið yfir bókakostinn og lélegar bækur afskrif- aðar og nýjar keyptar. Bæk- ur höfðu einnig verið pantaðar og keyptar erlendis frá í nokkra mánuði og var viss fjárhæð ætluð til þessara kaupa. Nýjungar í starfsemi kalla á nýjungar í safnefni og það hafði verið ákveðið að auka við bókakostinn á ýmsum sviðum, s.s. á sviði tónlistar, kvikmynda og myndlistar. Einnig var það metnaðar- mál starfsmanna að bækur væru nýjar og hreinar á nýjum stað. Lengi vel var von- ast til að hægt yrði að fá geymslur í kjallara lestrarsalar að Þing- holtsstræti 27 leigðar áfram en það tókst ekki. Því þurfti að hafa hraðar hendur að tæma þær. Handa- gangur var í öskjunni þegar teknar vom ákvarðanir um líf eða dauða bókar. Á alveg ótrúlega smttum tíma var geymslan tæmd en í henni höfðu verið um 26.000 eintök. Svo þurfti að kaupa kassa og kaupa fleiri kassa og enn Afgreiðslan í aðalsafni 16. ágúst, tveimur dögumfyrir opnun. Forstöðumenn safnanna í Grófarhúsi uið opnunina 18. ágúst BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.