Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 41

Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 41
ur að bókfræðilegum gagnasöfnum á rafrænu formi, en það hefur bókasöfnum landsins reynst erfitt. Meginástæða þess er sú að þau fræðasvið sem stund- uð eru í landinu eru fjölbreytt og er því þörf á fjöl- breyttu úrvali gagnasafna sem hvert um sig er aðeins notað af fáum aðilum samanborið við það sem gerist meðal fjölmennari þjóða. Aðgangur að gagnasöfnum hefur einnig reynst bókasöfnunum svo dýr að segja má að hann sé þeim flestum ef ekki öllum um megn. Bókaverðir sem hafa um nokkurt skeið fylgst með þróun þessara mála óttast að samkeppnisstöðu þjóð- arinnar sé ógnað og að framþróun í vísindum og tækni verði ekki sem skyldi ef íslenskir vísinda- og fræðimenn, svo og nemendur og kennarar í skólum landsins, hafa ekki sama aðgang að upplýsingalind- um samtímans og starfsbræður þeirra meðal annarra þjóða. Með öðrum orðum gæti, ef svo fer fram sem horfír, íslendingum verið skipað í sess með vanþró- uðum þjóðum heims sem ekki hafa bolmagn til að njóta þess sem upplýsingasamfélagið hefur að bjóða, þó ekki sakir fátæktar heldur vegna smæðar þjóðar- innar. Málþingið Upplýsingar á Interneti Haustið 1997 var haldið málþing undir yfirskriftinni Upplýsingar á Interneti - málþing um aðgang atvinnulífs og vísindasamfélags að upplýsingum. Að málþinginu stóðu Félag bókavarða í rannsóknabókasöfnum og Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn. Málþingið var vel sótt og til þess voru boðaðir sérstaklega aðilar úr stjórnkerfinu, menntakerfinu, atvinnulífinu og rannsókna- og vísindasamfélaginu í landinu. Tilgang- urinn með því að efna til umræðu um þessi mál var að fá fram hver þörf íslensks samfélags væri fyrir að- gang að upplýsingum úr gagnasöfnum. Til að kynna hvað gert hefur verið erlendis á þessu sviði var dr. Leslie Campbell Rampey frá Georgíuríki í Bandaríkj- unum boðið að kynna GALILEO (http://galileo. gsu.edu/Homepage.cgi) sem er skammstöfun á Geor- gia Library Learning Online. GALILEO er samstarfs- verkefni bókasafna í Georgíuríki um aðgang allra íbúa fylkisins að gagnasöfnum. Frumkvæðið kom frá nefnd um upplýsingamál í háskólasamfélagi Geor- gíuríkis, sem fékk árið 1995 styrk til að vinna að verk- efni sem kallað var A Vision for One Statewide Library. Markmið verkefnisins var að leggja áherslu á að nota upplýsingatækni á sem hagkvæmastan hátt til að tengja bókasöfn og stofnanir þannig að sameiginlega mætti nýta gagnasöfn til að efla menntun, vísindi og rannsóknir í ríkinu. Leiðir að þessu markmiði voru m.a. þær að koma á samstarfi og samráði í samning- um við framleiðendur, útgefendur og seljendur gagna- safna og upplýsingabanka svo að ná mætti hag- kvæmari áskriftaskilmálum en orðið hefði ef hvert og eitt bókasafn hefði samið fyrir sig. Til undirbúnings málþinginu var að frumkvæði nokkurra bókavarða ákveðið að gera könnun á því hvaða tilvísanarit og gagnasöfn íslensk bókasöfn keyptu og í hvaða formi þau væru, þ.e. prentuðu eða rafrænu. Einnig var kannað hvort áhugi væri fyrir því að vera með í sameiginlegum kaupum á áskriftum að gagnasöfnum í rafrænu formi þar sem ljóst þótti að það gæti verið hagkvæmt fýrir bókasöfn til tryggja þannig aðgang að fjölbreyttum gagnasöfnum. Spurn- ingablöð voru send til allra stærstu rannsókna- og sérfræðibókasafnanna, en einnig til stærstu almenn- ings- og framhaldsskólasafnanna, auk nokkurra val- inna fýrirtækja og stofnana, þó að ekki væru starf- andi þar bókasafnsfræðingar eða þar rekin sérstök bókasöfn. Að tilskildum tíma liðnum var hringt í þá sem ekki höfðu skilað í fyrstu umferð og fengust þannig upplýsingar frá 50 bókasöfnum, þ.e. 7 há- skólabókasöfnum, 32 sérfræðibókasöfnum, 7 almenn- ingsbókasöfnum og 4 framhaldsskólasöfnum. Meðal þess sem könnunin leiddi í ljós var að 17 bókasöfn höfðu aðgang að gagnasöfnum á geisladisk- um, þ.e. 5 háskólabókasöfn, 11 sérfræðibókasöfn og 1 framhaldsskólasafn, en ekkert þeirra hafði aðgang- inn beint af Internetinu eða innanhússnetþjóni sem náði til allra starfsmanna eða viðskiptavina safn- anna. Læknisfræðisafn Landspítalans svaraði ekki könnuninni en þar hafa gagnasöfn frá Ovid, m.a. Medline, verið aðgengileg á staðarneti bæði fyrir starfsmenn Landspítalans og annarra stærstu sjúkra- húsa landsins. Greinilegt var á niðurstöðum könnun- arinnar að mikill áhugi er fyrir sameiginlegum kaup- um á aðgangi að gagnasöfnum því 41 bókasafn lýsti yfir áhuga á því, eöa 7 háskólabókasöfn, 24 sérfræði- bókasöfn, 7 almenningsbókasöfn og 3 bókasöfn fram- haldsskóla. Gagnasöfn sem áhugi var fýrir voru 46 talsins og eru, eins og gera má ráð fyrir, fjölbreytt að viðfangs- efni þar sem bókasöfnin sem tóku þátt í könnuninni starfa á mismunandi fræðasviðum. Eftirtalin gagna- söfn voru oftast nefnd: Nafn gagnasafns Hve oft nefnt CAB (Colorado Alliance in Bioengineering) 9 ABI/inform 6 ERIC (Educational Resources Information Center) 6 Current Contents 5 Medline 5 CINAHL (Cumulative Index to Nursing 4 and Allied Health) PsychlNFO 3 Biosis 3 BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.