Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Blaðsíða 2

Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Blaðsíða 2
ið var að stjórnarkosningu og fund- arstjóri óskaði eftir uppástungu um formann, var stungið upp á undir- rituðum, en vegna óska hans um að uppástunga um sig yrði tekin til baka vegna ýmissa anna, og býst ég við, að orð fundarstjóra, er hann lét falla við það tækifæri hafi haft þau áhrif, að uppástungan var tekin til baka. Þá var stungið upp á Guðmundi Jónas- syni, sem einnig óskaði að vera laus við að vera í kjöri. Fundarstjóri mælti á móti því, að uppástungan um Guðmund yrði tekin til baka. En Guðmundur sótti mál sitt fast og dró þá uppástungumaður uppástungu sína til baka. Þá var stungið upp á Erlendi Guðmundssyni og Eggert Þorsteinssyni, einnig var stungið upp á Daníel G. Einarssyni en -fundar- stjóri neitaði að taka uppástunguna um Daníel til greina, þar sem hann, eins og hann sagðí, að nóg væri að kjósa um þá Erlend og Eggert. Ég býst við, að flestum mun þykja það nokkuð einkennileg fundarstjórn, sem að framan er lýst, en þetta sýnir aðeins lítinn hluta af þeirri miður góðu fundarstjórn, sem einkénndi þennan aðalfund félagsins. Stjórnar- kosningin fór þannig eins og flestum er kunnugt, að formaður var kjörinn Eggert Þorsteinsson 3. bekk A, varafor- maður Árni Þór Víkingur 3. bekk E, ritari, Rakel Sæmundsdóttir 3. bekk G, gjaldkeri Halldór Helgason J. bekk og meðstjórnandi Sigt'íður Odd- geirsdóttir 2. bekk. Þannig var kosið í stjórrí Skólafélagsins, að í henni áttu sæti þrír 3ju bekkingár, einn 2. bekk- ingur og einn 1. bekkingur. Er kom- ið var að kosningu ritara, lýsti fund- arstjóri því yfir úr sæti sínu, að 3. bekkur C jafngildi 4. bekk. F.g sá mér ekki fært að mótmæla yfirlýsingu fundarstjóra þá á fundinum, en ákvað að athuga fyrir næsta fund, hvort þetta gæti verið rétt, og ég fór að grenslast eftir þessu á ýmsan liátt meðal annars með því að fá lög féfagsins, sem ég og lékk eftir tals- vert Jjjark við hina nýju stjórn. En í 5. gr. laga félagsins segir svo: „Stjórn félagsins skipa fimm rnenn, einn úr hverjum bekk skólans, og formaður, sent kosin skal sameigin- lega á aðalfundi félagsins. Skal liann kosin fyrst. Kosning skal fara fram í október ár hvert“. Þau rök, er fund- arstjóri bar fram, er farið var að ræða hana á seinni fundinum var, að nem- endur C deildar 3. bekkjar taki allir burtfarapróf við skéjlann úr 3. bekk. Jú, mikið rétt, allir þeir nemendur, sem nú stunda nám í C deild 3. bekkj- ar taka burtfararpróf frá skólanum úr þeim bekk, en það, sem veldur Jjessu er aðeins það, að þessir nem- endur allir eða að minnsta kosti flest- ir, stunda nám í þeim iðngreinum, sem námstíminn er aðeins þrjú ár. Þessir nemendur stunda aðeins Jjriggja vetra nám við skólann, þeir komast því aldrei í 4. bekk og eiga þangað aldrei að koma. Að <jllu þessu athuguðu gat ég ekki komizt á aðra skoðun í Jjesu máli enn þá, að fund- arstjóri hefði farið með rangt mál, er hann lýsti því yfir, að 3. bekkur C jafngildi 4 bekk, þar sem slík ákvæði er hvergi að finna í lögum félagsins og allt annað mælir á móti því, að slíkt sé hægt. Ég gat því, og get ekki enn, fallið frá þeirri skoðun minni, að stjórn sú, sem kosin var á aðalfundi félagsins þann 24. október s. I. var ólöglega kosin. Eins og ykkur flestum er kunnugt var eins og áður er getið boðað til aukaaðalfundar í félaginu í nóvember s. 1. að tilhlutan skólastjóra. Á þeint fundi las skóla- stjóri upp bréf, er honum hafði bor- lizt frá þeint nemendum, er kosnir höfðu verið í stjórn félagsins. í bréfi þessu óskar stjórnin að verða leyst frá störfun ýmissa ástæðna vegna og m. a. þeirra, að hafinn sé meðal nem- enda skólans áróður gegn stjórninni og að jafnvel séu bornar brigður á, að stjórnin sé löglega kosin, og vegna alls þessa óskar stjórnin að verða leyst frá störfum og óskar einnig eftir því, að skólastjóri kalli saman aukaaðal- fund til að kjósa nýja stjórn og ræða málið betur. Þá óskar stjórnin einnig eftir Jjví, að fyrrverandi formaður félagsins, Óskar Hallgrímsson, sem jafnframt var fundarstjóri á aðal- fundi verði sérstaklega boðaður á fundinn. Eftir að skólastjóri hafði lesið 'bréf- ið hófust umræður um mál þetta, sem að mestu snérust um, livort rétt teld- ist að telja C deild 3. bekkjar til 4. bekkjar eða ekki. Menn voru ekki á eitt sáttir um mál þetta, nokkrir fundarmanna tóku til móls og urðu umræður á tímabili all snarpar og voru menn, eins og áður segir ekki ;í eitt sáttir. Áður en umræðum lauk tók skólastjóri til máls og ræddi mál- ið all ýtarlega. Hann kvaðst vilja taka það fram, að fundarmenn mættu ekki taka álit sitt í þessu máli sem dóm í því, heldur væri það aðeins sitt persónulega álit, að það væri ekki hægt að telja 3. bekk C til 4. bekkjar, Jjar sem 3. bekkur hlyti alltaf að vera 3. bekkur en ekki 4. bekkur. Er hér var komið bar Óskar Hallgrímsson fram þá spurningu, hvort skólastjóri gæti skýrt það, að aldrei hafi verið kosin í stjórn félagsins nemendi úr C deild 3. bekkjar. Skólastjóri kvaðst telja það hreinustu tilviljun, að ekki skyldi fyrr vera kosin í stjórn félags- ins nemandi úr 3. bekk C og kvaðst liann búast við, að slíkt væri hægt að segja um aðra bekki skólans. Máli þessu lyktaði á þann veg, að sam- kvæmt ósk eins af fundarmönnum var leitað álits fundarmanna um hvort telja skyldi 3. bekk C til jafns við 4. bekk livað snerti Skólafélagið. Var þetta síðan borið undir atkvæði og var mikill meirihluti fundarmanna mótfallin því að telja C deild 3. bekkjar til 4. bekkjar. Ég ætla mér ekki að ræða hér öll þau atriði, sem deilt var um, þar að ég tel, að slíkt mundi aðeins vekja leiðindi hjá öll- um, er lilut eiga að máli. Ég vona, að ég hafi hér gefið ykkur nokkuð yfir- lit yfir Jjað, sem mestur styrinn stóð um. Ég ntun því ekki jrita öllu meira um þetta mál, en mun nti snt'ia mér að hinu raunverulega starfi. * * * Það hljóta allir að geta skilið, að á því hljóta að vera all miklir örðu- leikar að halda uppi verulega góðu félagslífi í skóla sem Iðnskólanum í Reykjavík. Megin ástæðan fyrir þess- um örðuleikum er vitanlega kvöld- BLAÐ SKÓLAFÉLAGS IÐNSKÓLANS

x

Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1856

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.