Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 9

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 9
25 pening; því að vonarpeningur eru þær, þeasar trúfræðislegu setningar, sem troðið er inn í börnin að eins í þeirri von, að þær síðar muni bera ávexti hjá þeim og fyrir þau. Þannig er þá kristindómsfræðslan upp til sveita víðast hvar, þar sem heimilin nærfelt eingöngu annast um hana. Ég hefi orðið nokkuð fjölorður um þetta atriði, því að mér finst það þess vert, að hugsað sé um það og rætt úm það. Ég hefi, þótt ótrúlegt megi virðast, hingað til eigi orðið var við mikla óánægju yfir þessu ástandi meðal hinna eldri. Gæti hugsast, að það væri af þeirri ástæðu, að svona hefir það nú alt af verið, menn hafa alist upp við það þannig og hafa ekki af öðru að segja. En óánægja og leiði barnanna sjálfra ætti að vísa oss veginn. Nokkru betra er ástandið, þar sem barnaskólar eru. Éar er vanalega ekki byrjað með kverkenslunni, heldur eru fyrst kendar biblíusögur. Éetta er strax spor í áttina, þó að allvíða muni mikið bresta á, að þetta nám fari fram eins og æskilegt væri. Éegar börnin koma í skólann, 7—8 ára gömul, eru þau vanalega látin byrja á fyrstu sögunni í biblíusögunum, læra hana orðrétt utanbókar, og halda þannig áfram með hverja söguna eftir aðra, þangað til bókin er búin. Ég geri nú að vísu ráð fyrir, að samhliða þessum utanbókarlærdómi muni að minsta kosti í flestum skólum gerð tiiraun til að útskýra fyrir börnunum það, sem menn komast að, að þau ekki skilja. En mjög er hætt við, að þessar útskýringar séu alloft helzt til fáar og ef til vill helzt til ónákvæmar; getur verið full ástæða til þess, því að ekki er æfinlega auðvelt að komast eftir, hvað börn skilja og hvað þau ekki skilja. Það er oft næsta erfitt fyrir fullorðna að setja sig í spor 7—8 ára gamals barns, ekki sízt, ef að viðkomandi barn er ' að náttúrufari skilningslítið. Þó að börn geti svarað vel út úr lexíunni sinni, er oft lítið að byggja á því, ef að þau hafa lært hana orðrétt utanbókar áður; þau venjast fljótt á að svara með orðum bókarinnar, og það láta margir sér vel lynda, án þess að grafast frekara eftir, hvort þau í raun og veru skilja meiningu þeirra orða, sem þau fara með. Éetta er atriði, sem sérstaklega íslenzkir

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.