Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Blaðsíða 87
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÖLASTIFTIS
91
hennar á sl. 100 árum. Svo sem Jóns S. Pálmasonar, er var
kirkjuhaldari og annaðist kirkjuna um 60 ára skeið og dvaldi
jafnlengi á Þingeyrum. Hann lést árið 1976.
Bændaöldungurinn Sigurður Erlendsson á Stóru-Giljá, var
meðhjálpari kirkjunnar í 53 ár og nær jafnlengi í sóknarnefnd,
en hann er nú á 93. aldursári og var þrátt fyrir háan aldur
viðstaddur afmælishátíðina.
Sr. Þorsteinn B. Gíslason, fyrrv. prófastur í Steinnesi, vígð-
ist ungur til Þingeyraklaustursprestakalls og þjónaði kirkj-
unni lengur en nokkur annar prestur eða í 45 ár. Kona hans
frú Ólína Benediktsdóttir gegndi organistastörfum við kirkj-
una um nokkurt skeið.
Frú Hulda Á. Stefánsdóttir, fyrrv. skólastýra Kvennaskól-
ans á Blönduósi, bjó ásamt manni sínum Jóni S. Pálmasyni á
Þingeyrum um árabil. Var hún organisti kirkjunnar um langt
skeið, auk þess sem hún hefir lagt kirkjunni lið á ýmsan hátt á
liðnum áratugum. Voru henni ásamt framangreindum
þökkuð ágæt störf í þágu kirkjunnar.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson frá Steinnesi, sóknarprestur í
Árbæjarprestakalli í Reykjavík, flutti erindi um kirkju og
klaustur á Þingeyrum, en Jón biskup Ögmundsson á Hólum
stofnaði þar fyrsta íslenska klaustrið, er stóð frá árinu 1133 til
1551. Var það af reglu Benedikts frá Nursia. Stóð bókleg iðja
þar lengi með miklum blóma. Varð þar til sá arfur íslenskrar
menningar, sagnritunar, sem um aldir hefir varpað skærust-
um ljóma yfir land og þjóð.
Að lokum voru fluttar kveðjur og árnaðaróskir frá velunn-
urum kirkjunnar og gjöfum lýst.