Helgarpósturinn - 04.07.1985, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 04.07.1985, Blaðsíða 19
að er hart barist um fagrar konur á Islandi, og fegurðarsam- keppni sjaldan í jafn mikilli upp- sveiflu og nú. Katrín Pálsdóttir fréttamaður hefur umboð fyrir Ford-Models keppnina á Islandi, og úrslit hennar voru kunngerð fyrir nokkru. En ýmsir hafa rennt hýru auga til þessarar keppni, og gengið svo langt að reyna að sölsa undir sig rétt Katrínar. Þannig mun Magnús Hreggviðsson, stjórnandi Frjáls framtaks, engan veginn geta sætt sig við að sjá á eftir Katrínu úr rit- stjórastól Lífs, með umboðsréttinn undir höndum. Hann barði að dyr- um hjá Ford í New York, og reyndi að telja Eileen Ford og hennar fólk á að láta sig hafa réttinn. Magnús mun hafa gert tvær tilraunir, en var í báðum tilvikum vísað kurteislega frá. Þar með var ekki allt búið með heimsóknir frá mönnum uppi á ís- landi. Nokkru áður en fegurðar- keppnin var haldin í Broadway með Rod Stewart og öllum hinum eins og menn muna, hélt aðal forsprakki þeirrar keppni, Baldvin Jónsson, til New York, og barði á sömu dyr. Baldvin mun hafa verið með Morg- unblaðið undir hendinni, og kynnti sig sem fulltrúa þess. Erindið var það sama og Magnúsar; að falast eft- ir umboðsrétti Ford-keppninnar á ís- landi. Hann fékk sömu móttökur og fyrirrennari hans og var kurteislega bent á að á Islandi væri kona sem færi með þeirra mál, og ekki væri ráðgert að breyta þeirri tilhögun. Nú er spurningin hvort fleiri fara á stúfana. .. Þ ær eru margar svörtu skýrsl- urnar og dökk erindin, sem ganga á milli herbergja í stjórnarráðinu þessa dagana, eftir að hafa verið boðsend úr einhverjum bankanum. Þannig hafa forráðamenn fisk- vinnslufyrirtækja á Vestfjörðum skrifað Steingrími Hermanns- syni forsætisráðherra bréf, og raun- ar öllum þingmönnum kjördæmis- ins, þar sem því er lýst í smáatriðum hvernig fiskvinnslan fyrir vestan stöðvist fljótlega, ef ekki verði grip- ið til róttækra ráðstafana á næstu dögum... HÚSNÆÐIS REIKNINGUR REGLUBUNDINN SPARNAÐUR MEÐ SKATTAFRÁDRÆTTI HÁRRI ÁVÖXTUN OG LÁNTÖKURÉTTI Landsbankinn býður nú nýja sparireikninga fyrir verðandi húsráðendur. Lántökuréttur. Lántökuréttur í lok 3ja til 10 ára sparnaðartíma er tvöfaldur til fjórfaldur sparnaðurinn. Hámark 400 ji)úsund til ein milljón krónur. Úttekt. Hægt er að taka út af Húsnæðisreikningi eftir 3 til 10 ár. Upplýsingabæklingur. Kynnið ykkur frekar þennan nýja sparireikning Landsbankans í upplýsinga - bæklingi sem liggur frammi í afgreiðslum bankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir HÚSNÆÐIS REIKNINGUR Skattafrádráttur. Fjórðungur árlegs sparnaðar er frádráttarbær frá tekjuskatti. Reglubundinn sparnaður. Samið er um sparnaðarupphæð til eins árs í senn. Hún þarf að vera á bilinu 3 til 30 þúsund krónur ársfjórðungs- lega. Há ávöxtun. Ávallt er boðin besta ávöxtun sem Landsbankinn veitir á almennum innlánsformum. Innstæður eru verð- tryggðar og vextir þeir sömu og á 6 mánaða verðtryggð- um reikningum. Auk þess er reiknuð vaxtauppbót ef ávöxtun annarra almennra innlánsforma reynist betri.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.