Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 13
Þ að kom upp neyðarleg staða á Alþingi fyrr í vikunni, þegar boð- aðir varamenn í þingflokki Sjálf- stæðisflokksins mættu til þings í fjarveru Birgis ísleifs Gunnars- sonar og Ragnhildar Heigadótt- ur. Geir Haarde er erlendis og var því röðin komin að Jóni Magnús- syni og Bessí Jóhannsdóttur, þar sem Guðmundur H. Garðarsson er þegar „inni“ sem varamaður. Svo vildi hins vegar til, að ekki náðist í Geir Hallgrímsson, Seðlabanka- stjóra, sem aldrei hefur fengist til þess að afsala sér varaþingmanns- sæti sínu í eitt skipti fyrir öll. Þar af leiðandi verður alltaf að liggja fyrir bréfleg tilkynning frá bankastjóran- um, áður en varaþingmaður aftar af listanum er vígður inn í hin helgu vé. Segja menn það grunsamlegt hve auðvelt er að ná í Geir, þegar Guðmundur H. er næstur í röðinni, þar sem hann virðist láta hjá líða að svara skilaboðum frá Alþingi, þegar kalla á Jón Magnússon inn á þing. Geir hefur þetta hins vegar allt í hendi sinni og urðu Jón og Bessí því frá að hverfa síðastliðinn mánudag og snúa sér aftur að þeim verkefn- um, sem þau höfðu verið að sinna áður en kallið kom... li stendur að leggja Kvenna- framboðið formlega niður í náinni framtíð, enda engin starfsemi eftir í nafni þess félagsskapar. Helmings eignaraðild Kvennaframboðsins í Veru er það eina sem stendur í vegi fyrir formlegum endalokum sam- takanna í augnablikinu, en þær kon- ur sem áður störfuðu undir merkj- um þeirra beita nú flestar kröftum sínum á vettvangi svo sem Kvenna- lista, Hlaðvarpanum, Kvennaat- hvarfinu og Samtðkum kvenna á vinnumarkaði. Kvennaframboðið sjálft mun hins vegar brátt heyra sögunni til. . . Eins og kunnugt er, hefur Þroskahjálp krafist rannsóknar á fjármálum Sólheima í Grimsnesi vegna gruns um að þar sé ekki allt sem skyldi. Einhver skrifaði af þessu tilefni lesendabréf til Velvak- anda Moggans og spurðist fyrir um það hverjir væru þarna í stjórn, en svarið kom í sama dálki um síðustu helgi. Þar mátti lesa að Pétur Sveinbjarnarson, sem nýverið sigldi fyrirtæki sínu, Veitinga- manninum, í gjaldþrot, er formað- ur stjórnar Sólheima. Þar eru einnig í stjórn þeir Sigurjón Hreiðars- son, skrifstofustjóri Hjálparstofn- unar kirkjunnar, og Gylfi Jóns- son, fyrrverandi rektor Skálholts- skóla, sem báðir hafa hlotið nokkra fjölmiðlaumfjöllun í tengslum við fjármál... Þ að gekk mikið á hjá Bylgj- unni við Snorrabraut um síðustu helgi, a.m.k. hjá nokkrum dagskrár- gerðarmönnum stöðvarinnar. Klæddust þeir glæsilegum tísku- fatnaði, hárgreiðslu- og förðunar- meistarar tóku þá í yfirhalningu, og að endingu litu viðkomandi út eins og brúður í verslunarglugga. Á því stigi mættu ljósmyndarar til leiks og mynduðu liðið í sínu náttúrulega umhverfi í hljóðverinu. Árangurinn mun gefa að líta fyrir jól í einu tíma- ritanna á markaðnum. Allt gott og blessað, en mikið óskaplega voru þeir félagarnir, Hallgrímur Thor- steinsson og Hermann Gunnars- son, undarlegir ásýndum með þykkan andlitsfarða, kinnalit og blá- an maskara.. . HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.