Helgarpósturinn - 10.12.1987, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 10.12.1987, Blaðsíða 15
allt önnur ELLA Elín Þórarinsdóttir, barnabarn séra Árna Þórarinssonar, pró- íasts á Stórahrauni, var saklaus sveitastúlka þegar hún kom til höfuðstaðarins nokkrum árum eftir stríð. Þá kynntist hún Gunnari Salómonssyni, öðru nafni Úrsusi, annáluðum krafta- jötni og alþjóðlegum aflraunamanni. Þrátt fyrir 25 ára aldurs- mun felldu þau hugi saman og giftust. Leið Ellu lá nú út í heim þar sem hún gerðist fegurðardrottning og slagarasöngkona og fylgdi Úrsusi sínum gegnum súrt og sœtt; í kastljósum fjölleika- húsa og utan þeirra. ALLT ÖNNUR ELLA er þroskasaga konu sem eftir þrjú hjóna- bönd og ótrúlegt lífsvolk verður allt önnur Ella. ALLT ÖNNUR ELLA bregöur upp svo mörgum fjörlegum myndum sorgar og gleði, eymdar og allsnœgta, brennandi ástar og svartasta hat- urs, aö lesandinn hlýtur að undrast, hve blandaðir ávextir einn- ar œvi geta orðið. Ingólfur Margeirsson ritstjóri sló rækilega í gegn með bók sinni um Guðmundu Elíasdóttur, LÍFS- JÁTNINGU, sem var umsvifa- laust prentuð í þremur stærðar upplögum og tilnefnd fyrst slíkra bóka til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ingólfur á svo auðvelt að nálgast viðmælendur sína og segja sögu þeirra í áreynslulausri frásögn, að naum- ast verður betur gert. NUTIMAFOLK Bókin um einstaklinginn í einkalífi og starfi. Gagnleg bók handa fólki á öllum aldri í Nútímafólki er m.a. leitast viö aö svara þessum spurningum: • Hvaö mótar einstaklinginn? • Hvernig pössum viö saman? • Hvers vegna ganga sum sambönd en önnur ekki? • Hvers vegna rífumst viö? • Hvernig hjálpum viö börnum best í skilnaöi? • Hvernig vegnar þér í starfi? • Hvernig eru samskiptin á vinnustaö? • Andlegt heilbrigöi — hvaö er aö vera „normal"? Islensk bók sem á erindi viö alla og þig líka Höfundar Nútímafólks eru hinir kunnu sálfræðingar Álf- heiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Þær reka í sameiningu sjálfstætt fyrirtæki á sínu sviði, Sálfræðistöðina, þar sem þær bjóða m.a. upp á einkaviðtöl og starfsráðgjöf. Álfheiður og Guöfinna hafa á undanförnum árum efnt til námskeiða um land allt og hafa þúsundir manha sótt þessi námskeið, sem hegði hafa verið sniðin að þörfuffl almennings, sérhæfðra stcjrf&hópa og at- vinnufyrirtækje Þá hafa þær ritað fjölda g: ina í blöð og tímarit. HELGARPÓSTURINN B-15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.