Helgarpósturinn - 14.04.1988, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 14.04.1988, Blaðsíða 6
Horsham-skreidin ÁBYRGÐIN ER ENDANLEGA MÍN — segir Haraldur Sturlaugsson á Ahranesi Skreiðarskipið Horsham i Akureyrarhöfn í ágúst 1986. að hugsanlegar nairu-innstæður jafngildi um 304 milljónum króna. Líklegt tap er því um 180 milljónir króna. Skreiðardeild SÍS á langminnst útistandandi af þessum þremur skreiðarútfiytjendum, eða um 21,5 milijónir króna, og er fullyrt að greiðslur muni koma fyrir þær kröf- ur á yfirstandandi ári. Gangi það eft- ir að nairu-innstæður útflytjenda i Nígeriu skili sér, sem reyndar má setja spurningarmerki við, og að SIS og Sameinaðir framleiðendur fái þær upphæðir greiddar sem hér að ofan er talið hugsanlegt, nemur tap- ið á skreiðarviðskiptum við Nígeríu frá áramótum 1982/3 alls um 442 milljónum króna. f>að gæti þó aug- ljóslega orðið meira. ÚTISTANDANDI KRÖFUR SKREIÐAR- SAMLAGSINS Hér verða ekki tíunduð öll þau dæmi sem tilnefnd eru í skýrslunni en nokkur tekin út úr. Vegna fyrstu fjögurra sendinganna af skreið og hausum sem sendar voru til Nígeríu frá áramótum 1982/3 til 17. janúar 1984 eru útistandandi kröfur að upphæð um 156 milljónir króna. Sóttu útflytjendur með aðstoð við- skiptabanka og Seðlabanka um skuldbreytingu hjá Seðlabanka Nígeríu (CBN). Var þeirri beiðni hafnað og er það mat nefndarinnar að ástæða þess hafi fyrst og fremst verið að engin gjaldeyrisleyfi voru fyrir hendi þegar varan var flutt til Nígeríu. LANDSBANKINN SAMÞYKKIR MÚTUR Þegar þessi tilraun brást var leitað annarra leiða og er ekki að sjá ann- að samkvæmt skýrslunni en reynt hafi verið að beita mútum og jafnvel öðrum ólöglegum meðulum. Segir í skýrslunni að við tilraunir við að koma peningunum úr landi hafi þeir verið fluttir ,,á milli banka í Nígeríu og talið, að viðtökubankinn myndi geta yfirfært peningana, væntan- lega gegn þóknun, til einhvers. Til- raunin mistókst. Þá fékk enskur maður, John Knight, umboð med samþykki Landsbanka til að reyna að yfirfæra andvirði þessara krafna. Viðkomandi hafði unnið í CBN og var talinn hafa sambönd við valda- rnikla aðila í landinu. Þóknun áttiad greidast ef verkid tœkist. Sú von brást". Þá segir að nú vinni umboðs- aðili Skreiðarsamlagsins að því að fá þessa fjármuni yfirfærða, ,,eftir lög- legum leiðum", en ekki sé vitað hvernig til takist. Ekki verður betur séð samkvæmt ofansögðu en Landsbanki íslands hafi samþykkt og tekid þátt í mútugreiðslum til þess ad bjarga fjármurium og rried því firra sjálfan sig tapi. PAPPÍRSFYRIRTÆKI GUFA UPP Um 87 milljóna króna kröfu frá október 1983 segir, að hún hafi verið greidd með víxli. Víxillinn hafi hins vegar ekki verið greiddur og því sendur til lögfræðings í Hamborg til innheimtu. Innheimta hafi ekki bor- ið árangur og nú sé fullyrt að fyrir- tækið, Atlantex Industrial Handles corp., sé gjaldþrota. Endanlegur kaupandi í Nígeríu hafi verið Kalú N. Kalú í Aba, en engan árangur hafi borið að rukka hann. Svipaða sögu er að segja af öðrum kröfum — víxl- ar eru ekki greiddir, Samlagið nær ekki sambandi við skrifstofur kaup- anda í London þar sem þeim hefur verið lokað o.s.frv. ÞYKJAST GÓÐIR AÐ FÁ 10% Um mánaðamótin maí—júní 1986 voru svo send út fjögur skip, Elvira Oria, Eyrarfoss, Laxfoss og Álafoss, með hausa og skreið að upphæð samtals um 143 milljónir króna. Af því var verðmæti að upphæð 102 milljónir flutt út á vegum Skreiðar- samlagsins en afgangurinn á vegum Sameinaðra framleiðenda, og kaup- andi var fyrirtækið S.N. Impex Ltd. í London. Var varan greidd með víxlum sem allir gjaldféllu og er málið í höndum enskra lögfræðinga síðan í september 1986. Landsbanki Islands hafði hins vegar, áður en samningar voru gerðir, kannað kaupandann í gegnum Standard Charter Bank í London og fengið jákvæð ummæli hans! Sagan er hins vegar ekki öll sögð, því um miðjan febrúar í ár sendi framkvæmda- stjóri S.N.Impex telex-skeyti þar sem hann bauðst til að greiða rúmar 14 milljónir fyrir vörurnar, eða um 10% af upprunalegu söluvirði! Segir í skýrslunni að báðir útflytjendur muni vœntanlega samþykkja til- boðið og að samningar verði reynd- ir í þessa átt! ÚTISTANDANDI KRÖFUR SAMEINAÐRA SKREIÐARFRAM- LEIÐENDA Viðskipti Sameinaðra skreiðar- framleiðenda voru með svipuðu handbragði og kollega þeirra í Skreiðarsamlaginu. Þannig er t.d. fullyrt að þegar Zotas Foods Ltd. í Lagos hafi keypt 6.250 pakka af hausum að verðmæti um 9 milljónir króna fyrir sléttum tveimur árum hafi öll farmskjöl týnst og er níger- ísku póstþjónustunni kennt um. Þegar þau höfðu ekki komið fram þremur mánuðum eftir að þau voru send voru þau ógilt og ný skjöl útbú- in. Mánuði síðar náði kaupandi svo loks út sendingunni frá skipafélag- inu og var þá stór hluti hennar ónýt- ur og geymslukostnaður hafði hlað- ist upp. Hafa útflytjendur síðan gert ítrekaðar tilraunir til að fá kröfur sinar greiddar en án árangurs. Með skrautlegri málum í þessum viðskiptum eru þau sem spunnust í kjölfar sölu tæplega 50 þúsund pakka af hausum, sem sendir voru með skipinu Selmar Enterprise þann 29. júní 1986. Andvirði farms- ins var um 74 milljónir króna og upprunalegur kaupandi var fyrir- tækið Mercantile Commodities, skráð á eyjunni Mön. Þau viðskipti gengu þó úr skaftinu, enda fengust ekki ábyrgðir þeirra banka sem eftir var sóst. Var farmurinn loks seldur heiðurmanninum Chief Dan Chinwuko, en sá stóð ekki við samn- inga og leiddu lögregluaðgerðir og málaferli í kjölfarið. Hafa þær greiðslur sem inntar hafa verið af hendi verið frystar og tengist það deilumálum sem eru í gangi vegna skreiðarútflutnings Sameinaðra framleiðenda. Það tengist útflutn- ingi með norska leiguskipinu Horsham, en það er stærsta ein- staka málið í þessari vandræðasögu og verður rakið hér sérstaklega á öðrum stað í blaðinu. / ágústmánuði 1986 fór norska leiguskipið Horsham hringinn í kringum landið á vegum Islensku umboðssölunnar og lestaði skreið. Var skipaö um borð rúmlega 60 þúsund pökkum afskreiö og siglt til Nígeríu. í dag segja framleiðendur aö staðhœft hafi verið að tryggingar vœru fyrir greiðslum og aö þeim hafi verið lofað af Bjarna V. Magn- ússyni, framkvœmdastjóra Islensku umboðssölunar, u.þ.b. viku eftir að skipið kœmi til Nígertu. í skreiðar- skýrslunni segir að bankamenn hafi verið sammála um að engin greiðslutrygging hafi verið fyrir hendi, en viðvaranir voru ekki send- ar út fyrr en skipið var lagt af staö til Nígeríu. Viðskiptaráðuneytið treysti sér hins vegar ,,ekki til aö synja um útflutningsleyfi gegn vilja útflytjenda og framleiðanda". Enn hafa engar greiðslur borist fyrir farminn, sem var að verðmœti um 360 milljónir króna. Hver bar ábyrgð á að svona fór og hvernig á að skipta tapinu? I skreiðarskýrslunni kemur fram að kaupendur að skreiðinni í Hors- ham hafi verið tveir, Mercantile Commodities Ltd., skráð á eynni Mön, sem einnig var kaupandi að farmi hausaskipsins Selmar Enter- prise, sem vikið er að annars staðar í blaðinu, og svo West African Turn- key Project, Nigeria Ltd., skráð í Engiandi. FUNDUR í VIÐSKIPTA- RÁÐUNEYTI í skýrslunni er staðhæft að Bjarni V. Magnússon hafi á sameiginlegum fundi útflytjanda, Sameinaðra fram- leiðenda, Landsbanka, Utvegs- banka, Seðlabanka og viðskipta- ráðuneytis haldið því fram að skreiðin yrði greidd við afhendingu skjala í Nígeríu. Var þessi fundur haldinn í viðskiptaráðuneytinu þann 6. ágúst og var þá lestun Horsham komin vel á veg. í skýrsl- unni segir svo: „Síðar breyttist það og þá var talað um greiðslu 30 dög- um eftir afhendingu skjala.“ Ekki kemur fram hvenær fulltrúum banka og ráðuneytis varð ljóst að upprunaleg staðhæfing Bjarna um greiðslur stæðist ekki. Samkvæmt upplýsingum frá Vest- mannaeyjum lagði Horsham af stað til Nígeríu þann 13. ágúst 1986. Þegar HP leitaði upplýsinga í Lands- bankanum um hvenær þeir hefðu sent viðskiptavinum sínum skeyti þess efnis að fullnægjandi greiðslu- ábyrgðir væru ekki fyrir hendi fundust engin skjöl þess efnis. Hins vegar kemur fram í Morgunblaðinu þann 21. ágúst 1986 að bankastjóri bankans hafi daginn áður staðfest að skeyti hafi verið sent. Halldór Guðbjarnason, þáverandi banka- stjóri Útvegsbankans og einn höf- unda skreiðarskýrslunnar, segir hins vegar í sömu frétt, að Útvegs- banki Islands hafi engar tilkynning- ar sent viðskiptavinum sínum, en staðhæfir að öllum viðkomandi og þar með „flestum eða öllum eigend- um skreiðarinnar hafi verið Ijóst með hvaða hœtti skreiðin hafi verið flutt út". „ÁBYRGÐIN ENDAN- LEGA HJÁ MÉR" í viðtölum við nokkra skreiðar- framleiðendur sem áttu skreið í Horsham kemur fram að þeir stóðu í þeirri trú að nægar tryggingar væru fyrir hendi og að það hafi verið forsenda þess að þeir sendu skreiðina frá sér. Haraldur Stur- laugsson, framkvæmdastjóri Har- aldar Böðvarssonar <£ Co. á Akra- nesi, sagði í viðtali við HP að hann hefði verið fullvissaður um að full- nægjandi tryggingar væru fyrir greiðslum. ,,Mér höfðu áður borist tilboð í skreiðarbirgðir fyrirtækis- ins, en hafði alltaf neitað, þar sem ekki voru nægar tryggingar. Skreið- in hjá mér var í góðri geymslu og ekkert lá þess vegna á að senda hana af stað. Hins vegar má segja að mistökin hafi verið mín að senda skreiðina af stað, endanleg ábyrgð er hjá mér. En við sem aðrir fengum afurðalán út á þessa skreið, sem munu gjaldfalla, og ég er hræddur um að ýmsir séu ekki borgunar- menn fyrir þeim," sagði Haraldur. Björgvin Jónsson í Glettingi sagði að Bjarni V. Magnússon hefði lofað greiðslu átta dögum eftir að skreiðin bærist til Nígeríu. „Hins vegar barst skeyti Landsbankans ekki fyrr en 7—8 dögum eftir að skipið var lagt af stað til Nígeríu." Guömundur Karlsson, framkvæmdastjóri Fisk- iöjunnar hf. í Vestmannaeyjum, tók í sama streng, greiðslum hefði verið lofað hálfum mánuði eftir að skipið færi frá Vestmannaeyjum, en skila- boð Útvegsbankas um að útflutn- ingur væri alfarið á ábyrgð framleið- anda sjálfra hefði ekki borist fyrr en skipið var komið áleiðis til Nígeríu. Bjarni V. Magnússon er staddur erlendis, en sonur hans, Árni Bjarnason, sem starfar hjá íslensku umboðssölunni, sagði í viðtali við HP að ábyrgðir hefðu verið fyrir hendi þegar rætt var við framleiðendur. Þær hafi hins vegar reynst ónýtar þegar á reyndi. Jakob Sigurðsson, stjórnarformaður Sameinaðra framleiðenda, tók í sama streng. Báðir vísuðu þeir á Bjarna um frekari upplýsingar. Árni Bjarnason staðhæfði hins vegar í frétt í Morgunblaðinu þann 22. ágúst 1986 að gengið yrði frá „greiðslu eða greiðslutryggingu á allra næstu dögum“. Ennfremur var eftir honum haft að framleiðendur og Landsbankinn hefðu vitað að trygging lá ekki fyrir þegar skipið var sent af stað til Nígeríu. VILLANDI UPPLÝSINGAR Sú spurning hlýtur að vakna hvort framleiðendum hafi verið gefnar rangar eða misvísandi upplýsingar af útflytjendum um tryggingar áður en þeir skipuðu skreið sinni út. Enn- fremur af hverju bankarnir sendu ekki viðskiptavinum sínum varnað- arorð fyrr, áður en skipið var komið sjö daga siglingu til Nígeríu, en af skýrslunni er Ijóst að „bánkamenn hafi verið sammála um að engin greiðslutrygging hafi verið fyrir hendi“. Ennfremur má spyrja hvort viðskiptaráðuneytið hafi ekki brugðist skyldum sínum gagnvart framleiðendum, þar sem það hvorki upplýsti þá um stöðu mála né synj- aði útflytjanda um útflutningsleyfi þrátt fyrir mjög óvissa stöðu mála og þrátt fyrir að ljóst mátti vera að orð hans um tryggingar stóðust ekki. Sú afsökun sem sett er fram í skýrslunni, þess efnis að „viöskipta- ráðuneytið taldi sér ekki fcert aö synja um útflutningsleyfi gegn vilja útflytjanda og framleiðanda", hlýt- ur að teljast fáránleg og er í raun yfirlýsing um að ráðuneytið sé valdalaust í þessu efni gagnvart ósk- um þeirra aðila sem það á að taka afstöðu til. ÁBYRGÐ BANKANNA Það má því vera ljóst að jafnvel þó að framleiðendur séu þeir aðilar sem endanlega ábyrgð bera er ljóst að viðskiptabankarnir, Seðlabanki og viðskiptaráðuneyti, aiias ríkis- valdið, bera einnig ábyrgð i þessu máli. Því hlýtur ríkisvaldið að bera sína fjárhagslegu ábyrgð á því tjóni sem hefur hlotist, með hliðsjón af framgöngu ofangreindra aðila í þessu tiltekna máli. Það er síðan annar handleggur að deila tapinu með hliðsjón af öðrum ástæðum, hvort sem þær eru taldar þjóðhags- legar eða kenndar við mannúð. Þá má ekki gleyma ábyrgð útflytj- anda, en í skreiðarskýrslunni stend- ur að „allar upplýsingar sem gefnar höfðu verið, áður en skipið sigldi frá íslandi og á meðan verið var að lesta það hér, reyndust rangar og ósannar". Þessi útflytjandi hefur enn útflutningsleyfi frá ráðuneytinu og þegar HP spurði þann aðila sem nú sér um þær leyfisveitingar, Stef- án Gunnlaugsson, sem reyndar er einn skreiðarskýrsluhöfunda, hvað þyrfti til að útflutningsaðili missti leyfi sitt frá ráðuneytinu, sagði hann að þetta væri í fyrsta skipti sem hann heyrði einhvern hreyfa þessari hugmynd. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri að einhver gæli við þá hugmynd að menn missi út- flutningsleyfi. Það hef ég aldrei heyrt um fyrr,“ sagði Stefán Gunn- laugsson. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.